Tíminn - 11.03.1979, Blaðsíða 25
Sunnudagur 11. mars 1979.
25
Tvær hnúðjurtir í stofu
Hérskal rættum hnúöbegóni-
ur og sumargull. Hnúöbegónia
(Begonia tuberhybrida) er
ræktuö vegna fagurra blóma,
ýms kynbætt afbrigði, en upp-
runasvæöiö eru regnskógar i
Suður-Ameriku, þar sem árstiö-
irnar eru regntimi og þurrka-
timi. Hér eru venjulega hnúöar
til sölu i blómabúöum og eru
þeir settir niöur á vorin i
marz-aprilmánuöi, i góöa, ögn
sendna, mold. Eru hnúöarnir
settir grunnti jurtapotta ogekki
haft mjög heitt á þeim fyrst i
stað. Moldinni er haldið rakri,
en þóvökvaö meögætni uns blöö
koma I ljós. Þá er vökvun aukin
og jurtirnar settar i birtu og
hlýju. Sterk sól getur sviðiö
jurtirnar, en vel fer um þær i
austur- eða vesturglugga, eöa á
boröi innan viö glugga. Varist
aö flytja þær eöa snúa þegar
blóm fara aö myndast. Ella er
hætta á aö blómhnappar detti
af. Gott hafa þær af áburðar-
vatni þegar verulegur vöxtur er
kominn i þær. Blóm hnúö-
begóniu eru fjölbreytileg og
mjög litauöug — rauö, gul eða
hviteftir afbrigöum. Oft allstór
og ofkrýnd, sum á hangandi
greinum, en oftast upprétt.
Blómgunartiminn er langur.
Takast má aö hafa þær úti á
svölum I góðu skjóli um hásum-
Sumargull (Sinningia = Gloxinia)
Sumargull (Sinningia
speciosa eöa Cloxinia) er
skrautleg hnúöjurt frá Brasiliu.
Kom til Evrópu fyrir rúmri öld.
Hún er lika fulltrúi veöráttu þar
sem skiptust á regntimi og
þurrkatimi. Jurt þessi hefur
gilda stöngla með stórum loön-
um blööum, sem eru æöi stökk
og hættir til aö brotna. Blómin
eru mjög tilkomumikil, stór,
klukkulaga og flauelskennd —
hvit, rauð eöa blá. Þau koma
fram mörg saman, likt og blóm-
vöndur væri ofan við blööin.
sé blönduö mómylsnu og lauf-
mold. Vökvaö er og pottarnir
settir I austur- eöa vestur-
giugga. Þegar hnúöarnir taka
að spira má gefa áburöarvatn —
og sföar jafnvel vikulega, þvi aö
þetta eru gráðugar jurtir, sem
launa veleldiö. Effleiri en þrjár
spirur koma i ljós, skal brjóta
aukaspirurnar af, ella veröa
blómsprotar veikbyggðir. Sum-
argull þarf góöa birtu, en blöðin
gulna I sterku sólskini. Best er
aö vökva i undirskálina sem
potturinn stendur i, þvi aö hin
r
Ingólfur Davíðsson:
GRÓÐUR OG
GARÐAR
loönu blöö þola illa vatn, og
blöðin sitja svo þétt aö erfitt er
aö vökva ofanfrá án þess aö þau
blotni. Ef menn vilja halda I
jurtirnar eru gömlu blómin
skorin af að lokinni blómgun og
hætt aö vökva i miöjum — eöa
seinni hluta- september. Þegar
blööineru visnuö er jurtapottur-
inn settur á svalan staö (10-15)
og geymdur til vors. Þá er hnúö-
urinn tekinn upp, dauöar rætur
og mold hreinsuö burt og
gróðursett i nýja mold. En
algengast er aö rækta jurtina
aöeins eitt sumar. Sumargull er
sannarlega skrautleg jurt I
blómi — stór blá, hvit eöa rauö
blóm og oft tvilit. Gott þykir aö
moldin sé dálitiö sandblandin.
Munið aö hafa pottana vel fram-
ræsta. Vökviö varlega framan
af meöan á spirun stendur og
meöan jurtin er enn litil, siöar
er vökvun aukin.
Nefna má gullskúfinn
(Forsythia), sem athygli vekur
i blómabúöum um þessar
mundir. Þetta er útlendur runni
sem ber fjölda fagurgulra
blóma á vorin áöur en blöð
koma i ljós, og myndar þá mjög
fallega fagurgula skúfa. Blóm-
gun er oft flýtt i gróðurhúsum
svo að blómgaöar greinarnar
koma á markað i febrúar til
marz. Haldast talsvert lengi i
vatni afskornar. Um þetta leyti
má lika fara aö taka greinar af
ribsi, viöi og birki, setja þær I
vatn og laufgast þær þá fljótlega
inni i hlýrri stofu.
I blómabúðum ber nú mest á
afskornum túlipönum og páska-
liljum úr gróöurhúsunum. Inn
eru ööru hvoru fluttar nellikur
frá Hollandi. Svo faraaö koma á
markaö Chrysanthemum og
rósir o.fl. úr islensku gróöur-
húsunum, þegar sól hækkar á
lofti.
Hnúöbegónia
arið. Venjulega er þeim fleygt
eftir blómgun, en vilji menn
halda i þær er dregið úr vökvun
að haustinu og þeim loks leyft
að þorna alveg og fella blööin.
Geymdar til vors á frostlausum
staö.
Getur staöiö I blómi mestan
hluta sumarsins. Hnúöarnir eru
settir niöur eins og sagt var um
begóniur, ekki dýpra en svo aö
þeir fari aöeins i kaf. Gætiö
jafnan aö þvi aö hnúöar oglauk-
ar snúi rétt? Gott er aö moldin
Áuéi
0300
oryggi
íbak
ogfyrir
Öryggisgrind Audi tyggist á víðtækum
rannsóknum og tilraundm sem miðuðu
að því að hún stœðist þyngstu shelli
frá öllum hliðum. Hemlakerfið er tvöfalt,
þaulprófaður öryggisbúnaður í stýrissúlu,
sjálfstillt tannstangarstýri og hlífðar-
panna undir vél og tíensíngeymi.
Allt til að vernda þig og þína í tíah
ogfyrir. SÉRHÆFÐ VARAHLUTA-OG
VIÐGERÐAÞJÖNUSTA.
H _■
WlÆt H Jvak HLgJH
nr 2
Laugavegi 170-172 Sími 21240
KápawgskaiiistaiHr H
Lóð í Kópavogi
Kauptilboð óskast i lóðina nr. 45 við Holta-
gerði Kópavogi. Tilboð miðist við að fjar-
lægja skuli mannvirki á lóðinni fyrir 1. júli
n.k. og að viðkomandi öðlist byggingarrétt
á lóðinni samkvæmt venjulegum úthlut-
unarskilmálum Kópavogskaupstaðar.
Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir ein-
býlishúsi á lóðinni.
Athygli er vakin á ákvæðum 3. gr. reglu-
gerðar um gatnagerðargjöld i Kópavogi
númer 130,1976. Skriflegum tilboðum sé
skilað á bæjarskrifstofu Kópavogs fyrir
23. mars n.k., en tilboð verða opnuð á
skrifstofu minni þann dag kl. 11.
f.h. Kópavogskaupstaðar,
Bæjarlögmaður.
Opinber stofnun óskar
að ráða starfsmann
til innheimtustarfa nú þegar.
Getur orðið um framtiðarstarf að ræða.
Laun samkvæmt samningum rikisstarfs-
manna.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf
sendist blaðinu merkt INNHEIMTA fyrir
16. þ.m.