Tíminn - 25.03.1979, Side 6

Tíminn - 25.03.1979, Side 6
6 Sunnudagur 25. mars 1979. Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigur&sson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, * framkvæmdastjórn og auglýsingar Sibumúla 15. Sími 86300. — Kvöldsimar bla&amanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I iausasölu kr. 150.00. Askriftargjald kr. 3.000.00-á mánuöi. Bla&aprent Bætt aðstaða fyrir fatlaða og lamaða Erlent yfirlit Karl Carstens verður eftirmaður Scheels Hvernig semur honum og Schmidt? Alexander Stefánsson, Vilhjálmur Hjálmarsson og Hilmar Rósmundsson fluttu snemma á þessu þingi frumvarp um breytingu á tollskrárlögunum þess efnis, að rikisstjórnin fengi auknar heimildir til að lækka og fella niður gjöld á bifreiðum fyrir lamað fólk og sjúkt fólk. Jafnframt voru i frum- varpinu auknar heimildir til að fella niður gjald af innfluttum gervilimum og öðrum svipuðum hjálpartækjum. Frumvarp þetta hlaut góðar undirtektir á Alþingi og er nú orðið að lögum með litlum breyt- ingum. Samkvæmt hinum nýju lögum, eykst fjöldi bif- reiða til öryrkja, sem njóta eiga eftirgjafar á að- flutningsgjöldum úr 350 i 400 árlega. Eftirgjöf má nema 1 milljón króna i stað 500 þús kr. áður. Þó má hún nema tveimur milljónum króna á 25 bilum árlega, þegar um er að ræða þá, sem eru mestir öreigar, en geta þó ekið sjálfir sérstaklega útbún- um bifreiðum. Samkvæmt nýju lögunum ná framangreindar undanþágur til bæklaðs fólks og lamaðs, svo og fólks með lungnasjúkdóma, hjartasjúkdóma og aðra hliðstæða sjúkdóma, allt á svo háu stigi að það á erfitt með að fara ferða sinna án farartækis. Þá heimila nýju lögin fjármálaráðuneytinu að lækka eða fella niður fyrir framangreint fólk gjöld af gervilimum, sem ekki verða gerðir hér á landi, svo og af áhöldum og hjálpartækjum, sem sérstak- lega eru gerð með tilliti til þarfa þess samkvæmt læknisvottorði og henta ekki öðru fólki. Er þetta mun rýmri heimild en áður var tilsvarandi i lög- um. 1 greinargerð fyrir frumvarpinu var rætt nokkuð almennt um málefni þessa fólks og sagði þar m.a.: „Málefni öryrkja og annarra, er orðið hafa fyrir áföllum i þjóðfélagi okkar, hafa verið mikið til um- ræðu að undanfömu, og er það vel. Bæði er að samtök öryrkja hafa eflzt og unnið ötullega að þvi að vekja athygli á stöðu öryrkja og nauðsyn þess að samfélagið veiti lið i lifsbaráttu þeirra svo og að f jölmiðlar hafa tekið þessum umræðum jákvætt og komið á framfæri á eftirminnilegan hátt, hversu margt er ógert i dag til að hjálpa þessu fólki og um leið að nýta starfskrafta þess og hæfileika fyrir þjóðfélagið við ýmis mikilvæg störf. Komið hefur fram, að það hefur farið fram hjá flestum er séð hafa um hönnun framkvæmda og byggingarstarfsemi i landinu, að taka tillit til hreyfilamaðs fólks til að komast i og um flestar byggingar. — 1 nýjum byggingarlögum er þetta leiðrétt, þannig að gera má ráð fyrir að hér eftir verði fullt tillit tekið til þessa við hönnun og bygg- ingu nýrra mannvirkja, en brýnasta þörfin i dag er að framkvæma nauðsynlegar breytingar á eldri byggingum, fyrst opinberum byggingum, svo sem heilsugæzlustöðvum, skólum, samkomuhúsum, söfnum o.s.frv., til að auðvelda þessu fólki greiðan aðgang. Má vera að þörf sé á sérstakri reglugerð um þetta atriði og að gera skipulagt átak i þessu skyni við gerð fjárlaga rikis og fjárhagsáætlana sveitarfélaga. Þetta frumvarp til laga um breytingu á tollalög- um er lagt fram til að reyna að lagfæra hluta af vandamálum fatlaðs fólks. Samþykkt þess mun koma að miklu gagni, enda i fullu samræmi við ákveðnar óskir öryrkjabandalags Islands og Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra”. Það er vel, að frumvarpið er orðið að lögum. Það sýnir, að málefni fatlaðra eiga batnandi undirtekt- um að fagna. Þ.Þ. EF FORSETI Vestur-Þýzka- lands væri kjörinn i almennum kosningum, likt og i' Bandarikj- unum og Frakklandi, myndi Walter Scheel auöveldlega ná endurkosningu. Forráöamenn Vestur-Þýskalands töldu Þjóð- verja hafa slæma reynslu af þjóðkjörnum og valdamiklum forseta á dögum Weimarlýðveld isins, þegar Hindenburg var kjörinn forseti og notaöi vald sitt til að gera Hitler að kansl- ara. Þeir ákváöu þvi að fbrset- inn skyldi vera valdalitill og þvi kjörinn af sérstöku kjörþingi, þar sem sæti eiga allir þing- menn á sambandsþinginu I Bonn ogfulltrúar frá fylkisþing- unum. Alls eiga þar sæti 1036 fúlltrúar. Eins og nú háttar eru núverandi stjórnarflokkar, sósialdemókratar og frjáls- lyndir demókratar, i minnihluta þar. Þeir hafa þar samanlagt 505 fulltrúa,en krisfilegir demó- kratar hafa 531. Næsti forseti Vestur-Þýzkalands veröur þvi úr hópi þeirra, en forsetakjör fer fram 23. mai næstkomandi. Um nokkurt skeið voru taldar horfur á þvi, að Scheel kynni aö gefa kost á sér aftur I trausti þess, að einhverjir fulltrúar kristilegra demókrata á kjör- þinginu kynnu að greiða honum atkvæði sitt sökum vinsælda hans, en skoðanakannanir benda til, að nær 80% kjósenda óski eftir þvi aö Scheel veröi forseti áfram. Við könnunkom I ljós, að Scheel gæti ekki gert sér von um nema tvo af fulltrúum kristilegra demókrata. Hann hefur lýst yfir þvi, að hann gefi ekki kost á sér til endurkjörs. ÞAÐ er þannig oröiö fullvist, ef ekkert óvænt kemur fyrir, hver næsti forseti Vestur- Þýzkalands verður. Kristilegir demókratar hafa orðiö sam- mála um að bjóöa fram Karl Carstens, sem nú er forseti sambandsþingsins i Bonn. Þetta hefur ekki breyzt neitt við þá gagnrýni, sem Carstens hefur sætt siðan til tals kom, aö hann yrði forsetaefni kristilegra demókrata. Karl Carstens verður 65 ára á þessu ári, fæddur i Bremen 1914. Hann er lögfræöingur aö menntun, en lagöi jafnframt stund á hagfræöi á námsárum sinum. Auk námsins i Þýzka- landi stundaði hann einnig nám i Frakklandi og Bandarikjunum og talar þvi bæði firönsku og ensku. Astriðsárunum varhann iflughernum og gat sér þar gott orö. Að striðinu loknu ^a 1945 hóf hann lögfræðistörf i Bremen og var um skeið eins konar Karl Carstens sendifulltrúi fylkisstjórnarinnar þar hjá sambandsstjórninni i Bonn. Arið 1954 gekk hann i utanrikisþjónustuna og hlaut þar skjótt mikinn frama. Arið 1960 varð hann eins konar að- stoöarráðherra i utanrikisráðu- neytinu, 1967 hlaut hann svipaö embætti I varnarmálaráöuneyt- inu og 1968 i forsætisráðuneyt- inu og var hann þá náinn sam- verkamaður Kiesingers kansl- ara. Árið 1969 varð hann yfir- maður þekktrar stofnunar, sem hefúr það hlutverk að afla við- tækra upplýsinga um utanrikis- mál og birta skýrslur um ein- staka þætti þeirra. Mun þar um aðræða ekki ólikt starf oghinni nýju öryggismálanefnd hér er ætlaö að leysa af hendi. Jafn- framt þessum störfum hefur hann annazt kennslu við háskól- ann i Bonn. Hann hóf fyrst veru- leg afskipti af stjórnmálum, þegar hann var kjörinn á sam- bandsþingiði Bonn 1972. Honum var spáð þar miklum frama og kom jafnvel til tals, aöhann yrði eftirmaöur Kiesingers sem for- maöur kristilegra demókrata, en Barzel varð honum hlut- skarpari. Um skeið var Car- stens formaður þingflokks kristilegra demókrata, en lét fljótlega af þvi og varð þá for- seti sambandsþingsins i Bonn. Sennilega hefur hann þá veriö farinn að hafa auga á fórseta- embættinu. Carstens hefur verið talinn heyra til hægra armi kristilegra demókrata og hafa margir leið- togar sósialdemókrata og frjálslyndra demókrata látið I ljós óánægju sina yfir þvi, að kristilegir demókratar skyldu ekkiheldur velja forsetaefni sitt úr vinstra arminum eða miðj- unni. Einkum hefúr Helmut Schmidtkanslari verið ómyrkur i máli um það,að hann telji val- iö á Carstens óheppilegt af þess- ari ástæðu. CARSTENS hefur sjálfur svarað þessari gagnrýni á þann hátt, aö forsetanum sé fyrst og fremst ætluð formleg völd og muni hann fylgja ákvæðum stjórnarskrárinnar um það efni. Þessvegnasjái hann ekki annað en að honum og Schmidt geti komið vel saman. Sumir draga þetta þó I efa og byggja það meðal annars á þvi, að Carstens hefur ekki þótt allur, þar sem hann er séður. Eftir aö Carstens kom til tals sem forsetaefni, var þaö dregið fram i dagsljósiö, að hann hefði um skeið verið skráður félagi i flokki nazista. Hann gaf þá skýringu, að hann heföi þurft það vegna náms sins. Bæði Scheel og Schmidt höföu verið skráðir í flokkinn af svipaöri ástæðu og féll þessi gagnrýni á Carstens þvi um sjálfa sig. A svipaðan hátt lauk einnig þeirri gangrýni.aðhann hafi misnotað stööu sina i forsætisráöuneyt- inu. Sennilega hafa þessar mis- heppnuðu árásir á Carstens orðiö til þess, að flokksbræöur hans fylktu sér fastar um hann en ella. Þ.Þ. Scheel og Carstens

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.