Tíminn - 27.03.1979, Page 2
2
Þriöjudagur 27. mars 1979
Þrjátíu ára stríöi formlega lokiö:
ERLENDAR FRETTIR
Umsjón:
Kjartan Jónasson
BÚÐIN
/
Skipholti 19 Simi 29800
Einhver mesti tímamóta-
viðburður á okkar dögum
viMflinnil'ifM PmÍXammaimmÍmmIa Z — —1- 9-- - Z-
sagði Sadat eftir undirritun friðarsamninga i Washington
Washington/Reuter —
Þrjátíu ára stríði
Egyptalands og israels
lauk í gær formlega með
undirritun friðarsamn-
ings rikjanna í Hvíta hús-
inu i Bandaríkjunum.
Samningarnir voru undirrit-
aöir meö tilheyrandi ræðuhöld-
um af Begin forsætisráöherra
Israels og Sadat Egyptalands-
forseta en Jimmy Carter
Bandarikjaforseti var vottur. Á
meðan fóru um 2000 manns
syngjandi um götur i nágrenn-
inu slagorð gegn samningnum
og efni hans.
Begin og Sadat undirrituöu
fyrst lista yfir timasetningar
hinna ýmsu þátta friöarsamn-
ingsins og siöan sérstakt fylgi-
bréf sem felur i sér samninga
um timasetningar og aögeröir
er miöa eiga aö aukinni sjálfs-
stjórn Palestinu-Araba á
Vesturbakkanum og Gaza en
einmitt ákvæöi þessa samnings
þykja flestum Arabarikjum,
sósialistarikjum og ýmsum öðr-
um rikjum ekki ganga nógu
langt i að tryggja rétt Palestinu-
Araba til þess að friðarsamn-
ingurinn sé réttlætanlegur.
Friöarsamningar undirritaöir.
Siöast undirrituöu Begin,
Sadat og Carter aöalsamning-
inn á ensku, hebresku og
arabisku. Viðstaddir athöfnina
voru fjölmargir boðsgestir. I
upphafi athafnarinnar voru
þjóðsöngvar rikjanna þriggja
leiknir en siðan var stutt hljóð
og heyrðist þá greinilega til
slagorðasöngls þeirra er fyrir
utan mótmæltu og margir voru
Palestinumenn.
Þegar samningarnir höfðu
verið undirritaðir fluttu Carter,
Sadat og Begin stutt ávörp.
Spáði Carter þvi að Begin og
Sadat mundu hljóta rúman sess
i sögunni fyrir þetta afrek sitt.
Siðan áminntihann menn um að
enn ætti eftir að útbreiða friðinn
og kvaðst trúa þvi að fleiri
Arabariki en Egyptaland
mundu kjósa frið, þó þau teldu
sig enn ekki reiðubúin til að taka
neina áhættu i þvi efni eða taka
nægilegt tillit til óska og nauð-
synja andstæðingsins til þess að
grundvöllur samkomulags væri
Vorster dreginn inn í hneyksl-
ismálið mikla í S-Afríku
Höfðaborg/Reuter — Nokkrir
þingmenn stjórnarandstööunn-
ar i S-Afrlku voru I gær aö
leggja síöustu hönd á kröfugerö
á hendur þingsins þar I landi
þess efnis aö John Vorster for-
seti sæti ábyrgö og beri vitni i
miklu hneykslismáli sem kom
upp I S-Afriku seint á siöasta
ári.
Veröur hér um að ræða mik-
inn prófstein á stöðu Þjóðar-
flokksins i landinu sem verið
hefur við völd um 30 ára skeið.
Þá er þetta I fyrsta skipti að
krafist er afnáms friöhelgi for-
seta landsins allt siðan S-Afrika
varð lýðveldi árið 1961.
1 kröfugerö þingmannanna er
þess og farið á leit aö sérstök
nefnd veröi sett i þaö aö kanna
hugsanlega aðild Vorster að
hneykslismálinu sem lýtur að
meðferð á opinberu fé, en Vorst-
er var forsætisráðherra S-
Afriku i þá tið er misferlið átti
sér stað. Þegar hafa nokkrir
kunnir stjórnmálamenn i S-
Afriku flækst inn I máliö og einn
þeirra að minnsta kosti, Connie
Mulder, varð að segja af sér
ráðherraembætti á slðasta ári.
Sjónvarp og útvarp
TILVAUN
FERMINGARGJÖF
Verð aðeins kr.
149.500
fyrir hendi.
Sadat hrósaði Carter i ræðu
sinni og kallaði hann krafta-
verkamann og að ekki sist fyrir
hans tilstuðlan, væri nú risinn
nýr dagur og bjartari og nýr
kafli hafinn i sögu samskipta
þjóða. Hann sagðist ekki vera
að ýkja þegar hann segði að
undirritun friðarsamningsins
væri einhver mesti timamóta-
viðburðursem orðið hefði á okk-
ar dögum.
Samkvæmt samningnum
munu ísraelsmenn láta af hendi
við Egypta i nokkrum stökkum
allan Sinaiskaga, borgina E1
Arish innan þriggja mánaða og
oliuborunarsvæðin innan sjö
mánaða en skagann allan innan
þriggja ára.
Innan tiu mánaða munu rikin
taka upp sendiherraviðskipti og
sagt er að Begin og Sadat hafi
auk þess komist að samkomu-
lagi um að leggja mjög
skjótlega af allar takmarkanir á
ferðafrelsi milli landanna. Viö-
skiptabanni Egyptalands á
Israel verður einnig aflétt.
Innan mánaðar verða svo
hafnar samningaviðræður um
framtiöarstjórnarfar og sjálfs-
stjórnarform fjalestinumanna á
Vesturbakkanum og Gaza. Á
þessum viðræðum að ljúka á
eir.u ári og á þá að kjósa til
sveitarstjórna meöal Palestinu-
manna, en það á að vera fyrsta
skrefið til sjálfsstjórnar þeirra.
I samningnum segir að öðru
leyti að þeir skuli hljóta sjálfs-
stjórn ,,svo fljótt sem auðið
verði”.
Fáist Jórdaniumenn ekki til
að taka þátt i þessum samning-
um, munu Egyptar, Israels-
menn og Bandaríkjamenn
standa einir að þeim.enfulltruár
Palestinumanna munu og taka
fullan þátt. Hefur Carter
stungiö upp á þvi að samninga-
viðræðurnar fari fram i E1
Arish.
En á sama tima og allt þetta
var undirritað i Washington
sprakk sprengja I úthverfi
Jerúsalemborgar og særðust
þar 13 manns. I Libanon kom til
átaka milli Palestinu-Araba og
vinstrimanna annars vegar og
kristinna hins vegar. Þá var
skotið að israelskum herskipum
er gerðu sig likleg til að nálgast
strönd S-LIbanon. Hvaðanæva
úr Arabaheiminum bárust
mótmæli við undirritun frðar-
samninganna og munu fulltrúar
Arabarikja, annarra en
Egyptalands, koma saman i dag
til að ræða refsiaðgerðir.
Ráðherrar 0PEG í Genf:
íran vill 20%
olfuverðshækk-
un nú þegar
Genf/Reuter — Ráöherrar
OPEC-rikja komu I gær saman
til sérstakrar ráöstefnu I Genf
og bárust þær fréttir þaöan um
ákvöröun um hækkun oliuverös
nú þegar yröi mjög liklega tekin
á fundinum. Höföu þessar frétt-
ir meöal annars þau áhrif aö
dollarinn féll allverulega i veröi
á gjaldeyrismörkuðum en hann
hefur nú um lengri tima veriö
nokkuö stööugur.
I desember siðastliðnum
ákváðu ráðherrar OPEC, sem
eru samtök olluframleiöslu-
rikja, allverulega hækkun oliu á
þessu ári, og eru nú 11 af 13 ráð-
herrum OPEC sagðir hlynntir
enn frekari hækkun og það nú
þegar, ofan á aður ákveðnar
hækkanir.
Ráðherrar Irans á ráðstefn-
unni hvetur til 20% hækkunar
oliuverðs ofan á þær hækkanir
sem áður höfðu verið ákveðnar,
en ráðstefnan nú I Genf átti upp-
haflega að f jalla um ástand oliu
markaðarins vegna stöðvunar
oliuútflutnings frá Iran um tima
og oliuskorts sem af þvi leiddi.
Nú er hins vegar unnið að þvi
bak við tjöldin aö afla ráðstefn-
unni heimildar til ákvörðunar á
oliuverði og hækkunar þess þó
ekki hafi fyrstu verið ráð fyrir
sliku gert.
Ekki eru þó allir ráðherrar
OPEC rikja sammála um að
hækka oliuverð. Hefur til dæmis
oliumálaráðherra Venezuela
mótmælt frekari hækkunum en
áður hafa verið ákveðnar og
sem ekki hafa allar tekiö gildi
enn sem komið er. Ráðherra
Saudi-Arabiu á fundinum sagði
og fréttamönnum i gær að hann
mundi gera allt sem i hans valdi
stæöi til að hindra frekari oliu-
hækkanir.
Þó er búist við að hinir veröi
ofan á sem vilja hækka olíuna
eitthvaö i verði en þó ekki eins
mikið og Iranir. Þetta staðfesta
meðal annars fjárlög Oman fyr-
ir árið 1979 en þar er greinilega
gert ráö fyrir oliuverðshækkun-
um.