Tíminn - 27.03.1979, Side 21
Þriöiudagur 27. mars 1979
21
„Sparivelta” Samvinnubankans:
Sparið áður en þið farið
Getraunir
tímaritsins SKÁK
Dregið í
einu fyrir
þrjú ár
AM — Fyrir sameiningu flugfé-
laganna var þaö siöur aö Ft
birti skákþraut á forsiöu hvers
tölublaös timaritsins SKÁK og
skyldu iausnir sendast allar I
einu árlega. Þær lausnir sem
réttar reyndust komu siöan tii
útdráttar og hlaut vinningshafi
utanlandsferö fyrir tvo meö ein-
hverri ferö Ft eftir eigin vali.
Flugleiöir héldu þessum góða
sið áfram eftir sameiningu flug-
félaganna, en af óviöráöanleg-
um örsökum var ekki dregiö úr
réttum lausnum í þrjú ár, árin
1975, 1976og 1977. Loks nú fyrir
skömmu voru svo dregin út öll
verölaunin i senn og sagði rit-
stjóri SKAKAR, Jóhann Þórir
óíafsson, blaðinu i gær, að vinn-
ingshafi fyrir áriö 1975 heföi
orðiö Bergur Bjarnason lög-
fræöingur, 1976 Guðmundur
Pétursson hjá byggingarfull-
trúa og 1977 Matthias Kristins-
son frá ísafirði. Jóhann sagði að
þótt margar lausnir bærust
væru ekki nema fáir sem kæmu
til álita þegar dregiö er. Til
dæmis hefðu óaðfinnanlegar
lausnir aðeins verið 10 árið 1975,
8 árið 1976 og ekki nema 2 (!)
árið 1977.
Jóhann sagði vert að geta
þess um Matthias Kristinsson,
sem hlaut verðlaunin 1977, ann-
ar af tveimur með alit rétt, að
hann hefði tekið þátt I þessari
getraun frá upphafi og jafnan
verið með allar þrautirnar
óaðfinnanlega leystar.
Jóhann sagði að lokum, að
fjöldi áskrifenda SKÁKAR hefði
aukist jafnt og þétt, þrefaldast
á sl. þrem árum. Þeir
áskrifendur SKAKAR, sem
greiða áskriftargjaldið fyrir 15.
febrúar ár hvert fá senda jóla-
gjöf, skákbók, að jafnviröi upp-
hæð áskriftargjaldsins.
Að ungtemplarafélagiö GRY er
sannarlega félag innflytjenda
kom vel i ljós á félagskvöldi i
GRY nýlega segir i texta meö
þessari mynd sem tekin var úr
norsku dagblaöi en myndin er af
tveim nýjustu félögunum, þeim
Marsibil Benjaminsdóttur frá
tslandi og Ranjith Gunatilaka
frá Sri Lanka. Til vinstri á
myndinni er Hanne Widding
sem er norsk. Ungtemplara-
félag þetta hefur einn formleg-
an fund og einn starfsfund
mánaöariega, þess utan hittast
félagarnir i heimahúsum félag-
anna til skiptis.
HEI — Ein af þeim nýjungum,
sem Samvinnuferöir — Landsýn
bendir farþegum sinum á i sum-
ar, til aö auðvelda þeim aö afla
sér farareyris og jafnframt aö
minnka áhyggjur fólks af gjald-
föllnum vixlum eftirá út á sæl-
una er tilboð frá Samvinnu-
bankanum um nokkurs-konar
sparilánakerfi, eöa „Spari-
veltu” eins og þeir nefna hiö
nýja lánafyrirkomulag.
Spariveltan byggist á þvi að
eftir lágmarkstima i reglu-
bundnum sparnaöi sem er þrir
mánuðir, fá menn sparifé sitt
endurgreitt og auk þess jafnháa
upphæð að láni. Það lán greiðist
siðan til baka á jafn mörgum
mánuðum og sparað var.
Hámarkssparnaðartimi i
spariveltu Samvinnubankans
eru sex mánuðir og hámarks-
upphæð á mánuöi 75 bús.
Tuttugu
árekstrar
frá
áramótum
— á Hornafirði
GP — Aðeins 20 árekstrar hafa
oröiöáHöfná Hornafiröi frá þvi
um áramót eftir þvi sem lög-
reglan þar tjáöi blaðinu. Höföu
lögreglumenn þar á oröi, að á
Hornafiröi byggi skynsamt fólk
sem væri litiö fyrir aö aka hvort
á annað. Engin slys hafa oröiö I
árekstrum þessum utan eitt viö-
beinsbrot.
Sem dæmi má nefna mann
sem leggur inn 50þús. á mánuði
i fjóra máriuði. Þá hefur hann
til ráðstöfunar sparnað sinn 200
þús og til viðbótar 200 þús. kr.
lán sem hann greiöir siðan á
næstu fjórum mánuðum eftir
heimk.omuna. Vonast Sam-
vinnuferöir — Landsýn til að
þetta geri mörgu fólki bæði
auðveldara og ánægjulegra að
ferðast.
Aðalfundur
Fulltrúaráðs
framsóknar
félaganna:
Sóknar-
hugur
í Framsóknarmönnum
HEI — Aöalfundur Fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna I Reykja-
vik var haldinn s.l. þriöjudag.
Kosið var I stjórn fulltrúaráös-
ins og fulltrúar I miöstjórn
flokksins.
Formaður, Jón Aðalsteinn
Jónasson, og varaformaður,
Guðmundur Gunnarsson, voru
endurkjörnir einróma. Aðrir i
stjórn voru kjörnir Sigrún
Magnúsdóttir, Ólafur Tryggva-
son, og Gestur Jónsson. Vara-
menn voru kjörnir Jón Snæ-
björnsson, Leifur Karlsson,
Þóra Þorleifsdóttir, Sigfús
Bjamason og Sigurður Hólm.
1 Miðstjórn voru kjörnir
Markús Stefánsson, Kristinn
Finnbogason, Hannes Pálsson,
Sigrún Sturludóttir, Sveinn
Jónsson, Björk Jónsdóttir og
Ómar Kristjánsson.
Fundurinn var vel sóttur, og
sóknarhugur í mönnum.
Stuttar
fréttir
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
R