Fréttablaðið - 27.11.2006, Side 1
Smáauglýsingasími550 5000
Glæsilegt 183,2 fm einbýlishús á einnihæð ásamt 47,6 fm bílskúr og verð-launagarði að Krókabyggð 1 í Mosfells-bæ er nú til sölu.
„Það er alveg einstaklega gott að búa hérna,
friðsælt og fallegt, þar sem stutt er í óspillta
náttúruna,“ segir Karen Mellk, eigandi
hússins, og bætir því við að húsnæðið sé enn
fremur í góðu ásigkomulagi og krefjist lítils
viðhalds.
É
stofu og öllum svefnherbergjum, granítflís-
ar á anddyri, eldhúsi, báðum baðherbergj-
um og þvottaherbergi. Svo ekki sé minnst á
innfellda halogenlýsingu í öllu húsinu og
góða lofthæð. Er þá fátt upptalið.Húsið er teiknað af Jóni Guðmundssyni
arkitekt og innanhússarkitekt er Finnur P.
Fróðason. „Skipulagningin er svo góð að
engu líkara er en allt hafi verið gert til ð
auðvelda íbúunum h iK
Friðsælt og fallegt
í Krókabyggð
Í ítarlegri úttekt Fréttablaðsins á leik-
mannamarkaðnum á Íslandi kemur fram að
knattspyrnumenn í Landsbankadeild karla fái
mest yfir hálfa milljón króna á mánuði í laun.
Fjöldi leikmanna í deildinni fær í kringum 300
þúsund krónur í mánaðarlaun og jafnvel meira
gangi liði leikmannsins allt í haginn. Upplýsing-
arnar í úttektinni koma allar frá leikmönnunum
sjálfum.
Mikið er um árangurstengdar greiðslur í Lands-
bankadeildinni og hafa leikmanni verið boðnar
yfir 150 þúsund krónur fyrir spilaðan leik. Svartar
greiðslur eru á undanhaldi en heyra ekki sögunni
til. Leikmönnum eru einnig boðin ýmiss konar
fríðindi á borð við afnot af bíl, íbúð og jafnvel
þriggja milljóna króna niðurgreiðsla af nýrri íbúð.
Einnig kemur fram í úttektinni að öll félög
brjóta félagaskiptareglur og hafa samband við
samningsbundna leikmenn án leyfis þess félags
sem leikmaðurinn spilar með. Svo mikill er
ágangur forráðamanna félaganna að leikmenn
hafa neyðst til þess að slökkva á símum sínum til
að fá næði.
Leikmenn eru í flestum tilfellum fengnir til
þess að ræða við leikmennina eftirsóttu og svo
fara félögin í kringum reglurnar með því að hafa
samband við feður leikmanna og einnig mæður í
einstaka tilvikum.
Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri á Akureyri, varð
efstur í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Norðausturkjördæmi
sem fram fór um helgina. Kristj-
án hlaut 1.461 atkvæði í fyrsta
sæti.
Arnbjörg Sveinsdóttir,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins, hlaut annað sætið á list-
anum með 1.596 atkvæði í 1. til 2.
sætið. Ólöf Nordal fékk 1.426 í 1.
til 3. sæti. Alls gáfu níu manns
kost á sér í prófkjörinu, sex karl-
ar og þrjár konur.
Kristján Þór var hæstánægður
með úrslitin. „Þetta er gríðarlega
gott prófkjör og mikil þátttaka.
Það er góð vinna að baki og
drengileg barátta sem leiddi til
góðrar niðurstöðu. Ég er gríðar-
lega ánægður og sáttur og vil skila
þökkum til kjósenda og minna
stuðningsmanna fyrir þá miklu
vinnu sem þeir unnu.“
Kristján segir næst á dagskrá
að fara að búa til endanlegan lista.
„Nú þurfum við að byrja að undir-
búa vorið og kosningabaráttuna
þá. Það eru næg verkefni fram-
undan sem betur fer.“
Kristján Þór segist ekki hafa
tekið ákvörðun um hvort hann
muni hætta sem bæjarstjóri í kjöl-
far þessara úrslita. „Ég mun birta
ákvörðun mína fljótlega sem verð-
ur vonandi á næstu vikum.“
Arnbjörg Sveinsdóttir kvaðst
ánægð með sitt gengi og kosninga-
baráttu sína. „Ég hafði öflugt lið
stuðningsmanna með mér. En það
er auðvitað þannig að í svona kjör-
dæmi verður þetta eðlilega svæð-
isskipt. Akureyri er langstærsti
staðurinn og þegar vinsæll bæjar-
stjóri býður sig fram er eðlilegt að
hann hafi sterka stöðu sem birtist
í þessum tölum.“ Arnbjörg er sér-
staklega ánægð með hlut kvenna.
„Við erum með þrjár konur í efstu
fimm sætum listans.“
Þegar kjörfundur hófst voru
3.289 manns á kjörskrá. Alls
greiddu 2.535 manns atkvæði á
kjörfundi á kjördag. Í utankjör-
fundaratkvæðagreiðslu áður en
kjörfundur hófst greiddu 497
atkvæði. Þegar kjörfundi lauk
klukkan sex á laugardag voru
4.089 á kjörskrá. Alls kusu 3.033
og samsvarar það um 74 prósenta
kosningaþátttöku. Auðir seðlar og
ógildir voru 104.
Kristján Þór
varð efstur í
prófkjörinu
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, sigr-
aði í prófkjöri sjálfstæðismanna í Norðausturkjör-
dæmi. Hann segir næg verkefni vera framundan.
Arnbjörg Sveinsdóttir hlaut annað sætið.
Akureyri er langstærsti
staðurinn og þegar
vinsæll bæjarstjóri býður sig fram
er eðlilegt að hann hafi sterka
stöðu...
Teiti sem fór úr
böndunum
Slakar á
eftir sigurinn
www.postur.is
Jólakortavefur
Falleg og persónuleg
jólakort
í tölvunni þinni á
www.postur.is
Fagleg
og lögleg
þjónusta í boði
Fagfólk í Félagi íslenskra
snyrtifræðinga er að finna
um land allt. Sjá nánar
á Meistarinn.is.