Fréttablaðið - 27.11.2006, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 27.11.2006, Blaðsíða 52
Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á netfangið timamot@fret- tabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Alhliða útfararþjónusta í 16 ár Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Bruce Lee fæðist „Ég vinn eftir föngum, reyni bara að gefa svo lengi sem einhver vill taka á móti.“ Söngskólinn sem áður gekk undir nafninu Hjartansmál hefur nýverið flutt sig um set og skipt um nafn. Nú heitir hann eftir Sigurði Demetz, fyrrum söngkenn- ara, sem var sérstakur verndari skólans á meðan hann lifði. „Skólinn er rúm- lega tíu ára gamall og var lengst af til húsa í Ými í Skógarhlíð. Nú eru miklar breytingar fram undan þar og húsið ekki lengur í eigu Karlakórs Reykjavíkur sem var mikill samstarfs- aðili okkar að mörgu leyti,“ sagði Gunnar Guðbjörns- son, annar skólastjóra skól- ans. Skólinn kom sér því fyrir í nýju húsnæði við Grandagarð, og sagðist Gunnar vera hæstánægður með nýja staðinn. „Það er gaman að vera á svæði þar sem svona margt skemmti- legt að gerast. Svo er ekki heldur mikið af tónlistar- skólastarfsemi hérna, hún er mest hinum megin við miðbæinn,“ sagði Gunnar. Gunnar sagði skólann vera sprottinn úr grasrót- arstarfi. „Þetta var hópur af fólki sem var með einka- nemendur, en ákvað að halda einhvern veginn utan um þetta og setja saman skóla. Margir í þessum hópi voru gamlir nemend- ur og vinir Sigurðar Dem- etz, svo hann kom svolítið að þessu þó að hann hafi verið á níræðisaldri þegar þetta var,“ sagði Gunnar, en hann segir Sigurð hafa verið pottinn og pönnuna í því að Íslendingar eigi svo marga glæsta söngvara í dag. „Hann kom til lands- ins um miðja síðustu öld, þá rétt kominn inn á fimm- tugsaldurinn, og helgaði líf sitt sönglist á Íslandi upp frá því,“ sagði Gunnar. „Sigurður kenndi fjölda- mörgum söngvurum og mörgum kynslóðum, þar sem hann var á fullu í hálfa öld,“ sagði Gunnar, en á meðal nemenda Sigurðar eru Gunnar sjálfur og Kristján Jóhannsson. Sig- urður lést í apríl í ár, og var því ákveðið að heiðra minn- ingu hans með því að breyta nafni skólans. „Við fengum líka ýmsa persónulega muni hans í arf, svo við stofnuðum lítið safn í skól- anum,“ sagði Gunnar. Í dag stunda um níutíu nemendur nám við Söng- skóla Sigurðar Demetz. „Náminu er skipt niður í deildir og við bjóðum upp á grunnnám, miðnám og framhaldsnám,“ sagði Gunnar. Hann segir skól- ann hafa gengið mjög vel á síðustu árum. „Við útskrif- um marga nemendur, og gæði kennslunnar eru greinilega mikil því tveir nemendur hafa verið metnir beint inn í meist- aranám erlendis. Þetta er orðinn alvöru skóli,“ sagði Gunnar. Þórður Kristinsson, MA í mannfræði, flutti erindi um karla í hjúkrun í ReykjavíkurAkademíunni í síðustu viku. Í tveimur rannsóknum, sem Þórður vann annars vegar fyrir meist- araritgerð sína, hins vegar fyrir jafn- réttisnefnd Háskóla Íslands, kom í ljós að karlkyns hjúkrunarfræðingar verða varir við mikla fordóma samfélagsins í sinn garð, en karlar eru nú um 1% hjúkrunarfræðinga á Íslandi. „Við- mælendum fannst þeir þykja undar- legir í samfélaginu. Fólki fannst eitt- hvað hljóta að vera að þeim fyrst þeir kusu hjúkrun, þeir væru annað hvort of heimskir til að fara í eitthvað annað, eins og læknisfræði, eða samkyn- hneigðir,“ sagði Þórður, en hann komst einnig að því að karlkyns hjúkrunar- fræðingar voru líklegri til að fara í sérfræðihjúkrun en konur. Fréttablaðið spurði Þorstein Jóns- son hjúkrunarfræðing álits á niður- stöðum rannsóknarinnar, en hann kvaðst ekki verða var við mikla for- dóma. „Maður heyrir því fleygt í gríni að karlkyns hjúkrunarfræðingar séu of heimskir fyrir læknisfræðina, eða hommar, en það hefur enginn kastað þessu framan í mig,“ sagði Þorsteinn, sem kvaðst þó hafa tekið eftir því að karlkyns hjúkrunarfræðingar væru líklegri til að sérhæfa sig en konurnar. „Ég held að það tengist því að við förum með mótaðri hugmyndir í námið. Af því að hjúkrun hefur löngum þótt vera kvennastarf held ég að strákarnir sem ákveða að læra hjúkrun þurfi að hugsa meira um það, og séu meðvitaðri um hvað þeir vilja fara í,“ sagði Þor- steinn. Hann er þó sammála Þórði að því leytinu til að viðhorf samfélagsins til karlkyns hjúkrunarfræðinga geti breyst til hins betra. „Er þetta ekki bara það sama og þegar eldra fólk verður hissa að sjá konur sem lög- reglumenn?“ spurði hann. Óhefðbundið karlastarf „Jú, ég er nú þekktur fyrir að vera hláturmildur en hef ekki hlotið svona viður- kenningu fyrir það,“ segir Kristleifur Jónsson sem fyrir nokkru var eftirlýstur af leikfélaginu UMF Íslend- ingur. Leikararnir áttu þó ekkert saknæmt erindi við Kristleif heldur heillaði hlátur Kristleifs leikarana upp úr skónum og þeir ákváðu að bjóða honum aftur á sýninguna. „Ég hef aldrei lent í svona áður og mér var bara boðið frítt á næstu sýningar,“ segir Kristleifur sem starfar við smíðar í Borgarnesi. Elísabet Axelsdóttir, sem leikur eitt aðalhlut- verkanna í sýningunni Maður í mislitum sokkum, segir að allir í leikfélaginu hafi verið sammála um að Kristleifur ætti þessa viðurkenningu skilda. „Við vissum hins vegar bara að hann væri í rauðri flíspeysu og ákváðum að auglýsa eftir honum í Skessuhorni,“ útskýrir Elísabet. „Hópur- inn fór síðan í gervum sínum í heimsókn til Borg- arfjarðar og við sáum Krist- leif, þekktum hann bara þrátt fyrir að hann hefði ekki verið í flíspeysunni góðu,“ segir Elísabet og hlær. Maður í mislitum sokk- um hefur gengið fyrir fullu húsi í félagsheimilinu Brún og fengið prýðilega dóma en hver fer að verða síðast- ur til að berja hana augum og er næsta sýning hópsins á morgun. Leikfélag lýsir eftir áhorfanda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.