Fréttablaðið - 27.11.2006, Síða 4
og 2 lítra Pepsi
10 bitar, stór franskar
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 6
0
7
8
8
Erninum Sigurerni var
sleppt í gær eftir að hafa dvalist í
Húsdýragarðinum í Laugardal frá
því að Sigurbjörg Sandra
Pétursdóttir bjargaði honum í
sumar.
Tómas Óskar Guðjónsson,
forstöðumaður Húsdýragarðsins,
sagði allt hafa gengið að óskum er
erninum var sleppt á heimaslóð-
um í Grundarfirði. „Það var
greinilegt að hann var kominn
heim,“ sagði Tómas, sem telur um
100 manns hafa verið saman-
komna til að taka á móti erninum.
Tómas sagði Sigurörn hafa verið í
góðu ástandi og er sannfærður
um að hann spjari sig.
Sigurerni sleppt
í Grundarfirði
Peter Hain, ráðherra N-Írlandsmála í
bresku ríkisstjórninni, sakaði í gær Vladimír Pútín
Rússlandsforseta um „miklar árásir á frelsi
einstaklingsins og lýðréttindi,“ en hryðjuverka-
varnadeild bresku rannsóknalögreglunnar
rannsakar nú lát fyrrverandi rússnesks njósnara í
London.
Alexander Litvinenko lést á fimmtudag og
fannst geislavirka efnið pólóníum 210 í líki hans.
Hann var sannfærður um að eitrað hefði verið
fyrir sér og sakaði Pútín um að standa á bak við
það. Hann tjáði lögreglu að sér hefði verið byrlað
eitrið er hann var að rannsaka morðið á rússnesku
blaðakonunni Önnu Politkovskaju 1. nóvember
síðastliðinn.
Um þrjú hundruð manns hafa haft samband við
heilbrigðisyfirvöld í London vegna ótta um að hafa
orðið fyrir geislun eftir að geislavirkni varð vart á
heimili njósnarans fyrrverandi, á veitingastað sem
hann mataðist á og hóteli sem hann heimsótti í
byrjun mánaðarins.
Ummæli Jóns Sigurðs-
sonar, formanns Framsóknar-
flokksins, um að stuðningur
Íslands við innrásina í Írak hafi
verið mistök, eru skynsamleg
hernaðaráætlun fyrir Framsókn-
arflokkinn að mati Gunnars Helga
Kristinssonar, prófessors í stjórn-
málafræði.
„Bakgrunnurinn fyrir því að
hann er opinn fyrir því að skoða
embættisfærslur ríkisstjórnar
undanfarin ár er væntanlega vont
gengi flokksins. Framsóknar-
flokkurinn þarf að hugsa sinn
gang og velta fyrir sér hvað hann
ætlar að fara með kjósendur næsta
vor. Hvað hann vill verja af gjörð-
um ríkisstjórnarinnar og hvað
ekki. Þannig að Jón er að hluta til
væntanlega að búa til þægilegri
vígstöðu fyrir flokkinn í því sam-
hengi.“
Gunnar Helgi segir skynsam-
legt hjá Framsóknarflokknum að
reyna að undirbúa jarðveginn
fyrir næsta vor á þennan hátt.
„Þannig að þeir séu ekki endalaust
að hjakka í því að vera að verja
eitthvað sem er mjög erfitt fyrir
flokk eins og Framsóknarflokkinn
að verja.“
Jón segir í ræðu sinni að
ákvarðanir um öryggismál og
alþjóðaverkefni beri ævinlega að
taka eftir vandaðasta undirbúning
og eftir trúnaðarsamráð við lög-
mætar stofnanir eins og utanríkis-
málanefnd Alþingis. Gunnar Helgi
segir Jón þarna vera að taka skýra
afstöðu í því máli.
„Það virðist mega lesa þetta á
þann hátt að hann túlki aðstæður
þannig að það hefði átt að hafa víð-
tækara samráð við utanríkismála-
nefnd.“
Fulltrúar stjórnarandstöðu
kalla eftir afsökunarbeiðni frá rík-
isstjórninni og Jón segist sjálfur
gera ráð fyrir að fræðimenn muni
fjalla um hvort stjórnvöld þurfi að
biðjast afsökunar á stuðningnum.
Gunnar Helgi segir það vera
stjórnmálamanna og kjósenda að
ákveða slíkt. „En þetta er vissu-
lega óvenjulegt. Hann er þarna
búinn að biðjast afsökunar hálfa
leiðina fyrir hönd síns flokks. Það
verður líka að skoða í því ljósi að
Framsóknarflokkurinn hefur
vissa þörf fyrir að afmarka sig
gagnvart Sjálfstæðisflokknum.
Og það er ekkert verra fyrir Fram-
sóknarflokkinn ef það verður styr
um þetta mál milli ríkisstjórnar-
flokkanna. Flokkurinn þarf núna
að byggja upp eigin ímynd í
aðdraganda kosninganna. Hluti af
því hlýtur að vera að deila um
ýmsa hluti við Sjálfstæðisflokkinn
enda er þetta ekki sami flokkurinn
og eðlilegt að þeir geti átt í deil-
um. Ég sé ekki betur en Jón sé
beinlínis að lýsa því yfir að flokk-
urinn þurfi að marka sig betur
gagnvart Sjálfstæðisflokknum og
það gerist ekki öðruvísi en að
flokkarnir deili.“
Skynsamlegt útspil
Framsóknarflokks
Framsóknarflokkurinn þarf að ákveða hvað af gjörðum ríkisstjórnarinnar
hann vill verja, segir prófessor í stjórnmálafræði. Jón Sigurðsson sé að skapa
þægilega vígstöðu flokksins með því að segja stuðning við innrásina mistök.