Fréttablaðið - 27.11.2006, Qupperneq 12
Hið árlega jóla-
þorp á Thorsplaninu í Hafn-
arfirði var opnað um helg-
ina. Lúðrasveit spilaði vel
valin lög, jólasveinarnir
kíktu í heimsókn ásamt Sollu
stirðu sem heilsaði upp á
börnin. Jólaþorpið er úti-
markaður sem minnir á
gamla tíma og rak Frétta-
blaðið augun í einn bás sem
Jón Ásgeir Ríkharðsson
rekur.
Hann er hæstánægður
með viðbrögð fólks á fyrsta
degi jólaþorpsins. „Það er
búið að vera stórfínt að gera
en aðalfjörið hefst þegar
desember byrjar,“ segir Jón
Ásgeir.
Þetta eru fjórðu jólin sem
Jón er með bás í jólaþorpinu
og má fastlega búast við því
að hann komi aftur næstu
jól. Jón selur ilmkerti ásamt
húðvörum og baðvörum úr
Dauðahafinu. „Ég er búinn
að fá rosalega góð og sterk
viðbrögð frá fólki. Við selj-
um ilmkertin einnig í Bónus
og þar eru menn hæstánægð-
ir með þessar vörur líka.“
Jón Ásgeir er ánægður
með framtak Hafnarfjarðar-
bæjar að hafa jólaþorpið og
má með sanni segja að það
hafi sett sterkan svip á Hafn-
arfjörðinn.
Aðalfjörið hefst í desember
Um helgina opnaði
Bjarkarás, sem er hæfingarstöð
fyrir fólk með þroskahömlun,
árlegan jólamarkað sinn. Að sögn
Þórhildar Gunnarsdóttur for-
stöðuþroskaþjálfa gekk markað-
urinn vonum framar.
„Það er búið að vera rosalega
mikið að gera hjá okkur og þegar
ég kom rétt fyrir hádegi var biðröð
af fólki sem beið eftir að komast
inn“, segir Þórhildur. Þetta er í
fjórða skiptið sem jólamarkaður-
inn er haldinn í Bjarkarási og verð-
ur stærri með hverjum jólum.
Til sölu voru fallegir hlutir úr
gleri, leir og tré og fer allur pen-
ingaágóðinn af jólamarkaðnum til
styrktar starfsemi þeirra.
„Við leggjum mikla áherslu á
sköpun og þjálfun allan ársins
hring fyrir vangefna og er þessi
jólamarkaður sniðugur vettvang-
ur fyrir þroskahefta til að sýna
list sína,“ segir Þórhildur. „Enda
er þetta ekki föndur heldur list.“
Ekki föndur heldur list
Tveir evrópskir sprengjusér-
fræðingar misstu hvor sinn fótinn og
líbanskur læknir slasaðist er þeir stigu á
jarðsprengju nálægt þorpinu Deir Mimas á
föstudaginn. Fjórði maðurinn, Breti, missti
fótlegg daginn eftir á svipuðum slóðum. Að
mati sprengjusérfræðinga Sameinuðu
þjóðanna er því ljóst að hermenn Ísraelsrík-
is lögðu jarðsprengjur að nýju í suðurhluta
Líbanons í sumar, en það gerðu þeir einnig í
átján ára langri hersetu þar, sem lauk árið
2000. Sprengingar helgarinnar urðu á svæði
sem hafði áður verið hreinsað upp.
Mennirnir sem slösuðust á föstudaginn
reyndu að koma geitahirði til aðstoðar, sem
var strandaglópur á nýju ómerktu jarð-
sprengjusvæði, eftir að ein geita hans
drapst við sprengingu. Sérfræðingarnir
höfðu unnið fyrir breskt fyrirtæki við að
fjarlægja sprengjur síðan í september.
Hirðirinn slapp ómeiddur.
Suður-Líbanon er enn undirlagt af
klasasprengjum Ísraelsmanna síðan í
sumar. Talið er að ein milljón þeirra liggi
þar enn, en ekki var vitað til þess að
jarðsprengjum hefði einnig verið komið
fyrir. Sprengjusérfræðingar eru önnum
kafnir við hreinsunarstörf og bændur
bregða gjarnan til þess áhættusama ráðs að
hreinsa haga sína sjálfir, frekar en að bíða
eftir aðstoð frá þeim.
Breska ríkisstjórn-
in viðurkennir nú að aðgangur að
vatni tilheyri grundvallarmann-
réttindum en það er breyting frá
fyrri stefnu hennar. Bretar hvetja
aðrar ríkisstjórnir til þess að
viðurkenna líka vatn sem
grundvallarréttindi fólks. Á vef
BSRB segir að vonandi verði
þessi ákvörðun Breta til þess að
auðvelda stjórnarskrárnefndinni
hér heima að gera upp hug sinn,
en fyrir nefndinni liggur álit frá
bæði BSRB og þrettán öðrum
félögum og landssamtökum um
að litið verði á vatn sem grund-
vallarmannréttindi, ekki sem
hverja aðra verslunarvöru.
Vatn grundvall-
armannréttindi
Ársfundi Norð-
austur-Atlantshafs fiskveiði-
nefndarinnar, NEAFC, lauk í
London nýverið. Á fundinum var
meðal annars fjallað um verndun
viðkvæmra hafsvæða og
aðgerðir gegn ólöglegum og
óábyrgum fiskveiðum.
Samþykktar voru á fundinum
hertar reglur um opinbert eftirlit
í höfnum við löndun afla. Í
samhengi við gerð reglnanna um
hafnaeftirlit var framkvæmd
allsherjar endurskoðun á reglum
NEAFC um eftirlit og aðgerðir
gegn ólöglegum og óábyrgum
fiskveiðum, með það að mark-
miði að gera þær einfaldari og
aðgengilegri, og þar með
skilvirkari.
Eftirlit með
löndunum hert
R
V
62
20
Einstök hönnun
Mikið úrval
Frábær ending
Ný
sen
din
g!
Sko
ðið
úrv
alið
í ve
rslu
n
okk
ar a
ð R
étta
rhá
lsi 2
Postulín sem gleður – Pillivuyt