Fréttablaðið - 27.11.2006, Page 23

Fréttablaðið - 27.11.2006, Page 23
Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is Glæsilegt 183,2 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 47,6 fm bílskúr og verð- launagarði að Krókabyggð 1 í Mosfells- bæ er nú til sölu. „Það er alveg einstaklega gott að búa hérna, friðsælt og fallegt, þar sem stutt er í óspillta náttúruna,“ segir Karen Mellk, eigandi hússins, og bætir því við að húsnæðið sé enn fremur í góðu ásigkomulagi og krefjist lítils viðhalds. „Ég hef litlar sem engar endurbætur þurft að gera á húsinu síðan ég tók við því,“ útskýrir Karen. „Bæði vegna þess að húsið er tiltölulega nýtt, byggt árið 1991, og svo er allur frágangur á því til fyrirmyndar.“ Karen nefnir sem dæmi að allar innrétt- ingar, skápar og hurðir séu sérsmíðaðar úr lerki. Þá er gegnheilt parket úr hlyn á gangi, stofu og öllum svefnherbergjum, granítflís- ar á anddyri, eldhúsi, báðum baðherbergj- um og þvottaherbergi. Svo ekki sé minnst á innfellda halogenlýsingu í öllu húsinu og góða lofthæð. Er þá fátt upptalið. Húsið er teiknað af Jóni Guðmundssyni arkitekt og innanhússarkitekt er Finnur P. Fróðason. „Skipulagningin er svo góð að engu líkara er en allt hafi verið gert til að auðvelda íbúunum heimilisverkin,“ segir Karen. „Svo er lögun herbergjanna skemmtilega öðruvísi, en sem dæmi er svefnherbergið sjö veggja!“ Þar að auki er gufubað inn af öðru bað- herberginu og heitur pottur á lóðinni, svo ljóst er að í Krókabyggð 1 ætti ekki að vera vandkvæðum bundið að finna sér gott afdrep til að slaka á. Nánari upplýsingar fást hjá Fasteigna- miðlun Grafarvogs. Friðsælt og fallegt SPRON Myntlán eru veitt til kaupa, framkvæmda eða endurfjármögnunar á íbúðarhúsnæði eða atvinnuhúsnæði. Unnt er að taka fullt SPRON Myntlán eða blandað lán þar sem helmingur lánsins er myntlán og hinn helmingurinn í íslenskum krónum. Upplýsingar í næsta útibúi SPRON í síma 550 1200, í þjónustuveri SPRON í síma 550 1400 eða á spron.is Gæti lán í erlendri mynt verið lausnin? A RG U S / 06 -0 55 0 Myntlán

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.