Fréttablaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 4
4 3. desember 2006 SUNNUDAGUR FlUGUmFeRðARStjóRAR Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur samþykkt að styrkja þá félagsmenn sem ekki hafa ráðið sig til Flugstoða, eiga ekki rétt á biðlaunum og verða launalausir vegna þessa í janúar 2007. Styrkur- inn skal nema fullum launum sem tapast, án aukavinnu, og greiðist í byrjun febrúar. Félagsfundur hefur falið stjórn félagsins að ganga frá fjármögnun vegna þessa og heimilar að eignir félagsins séu veðsettar til tryggingar láni ef þurfa þykir. Loftur Jóhannsson, formaður félagsins, segist vera bjartsýnni á að ágreiningur við stjórn Flug- stoða verði leystur eftir fund með stjórn félagsins á miðvikudaginn var og á von á að samningaviðræð- ur hefjist fljótlega. Á fundinum lögðu fulltrúar Flugstoða fram upplýsingabréf og yfirlýsingu til að skýra málið. Kröfur flugumferðarstjóra snúast um það að tryggja flug- umferðarstjórum sömu lífeyris- réttindi hjá Flugstoðum ohf. og þeir hafa haft sem opinberir starfsmenn. Loftur telur að breyt- ingar á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna sé besta lausnin. Tæplega þrjátíu umsóknir bár- ust um tæplega níutíu stöður flug- umferðarstjóra hjá Flugstoðum ohf. þegar umsóknarfrestur rann út í vikunni. - ghs LaunaLausir fá styrki Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur falið stjórn félagsins að fjármagna styrki til launa- lausra félagsmanna í janúar. Félag íslenskra flugumferðarstjóra styrkir launalausa flugumferðarstjóra í janúar: Veðsetja eignir ef með þarf GenGið 01.12.2006 Gjaldmiðlar kaup sala Heimild: seðlabanki Íslands 122,6835 GenGisvísitala krónunnar 67,72 68,04 133,16 133,80 89,58 90,08 12,015 12,085 10,962 11,026 9,92 9,978 0,5818 0,5852 102,22 102,82 Bandaríkjadalur sterlingspund evra dönsk króna Norsk króna sænsk króna japanskt jen sdr löGReGlUmál Lögreglan í Kópavogi handtók í fyrrakvöld tvo menn um tvítugt eftir að fíkniefni í söluumbúðum fundust í fórum þeirra. Í kjölfarið var gerð húsleit heima hjá öðrum mannanna og fundust þar um tvö hundruð grömm af hassi og lítilræði af amfetamíni. Einnig fundust peningar á heimili mannsins sem taldir eru vera ágóði af fíkniefnasölu. Mennirnir voru yfirheyrðir í fyrrinótt og viðurkenndi annar þeirra að hafa átt hluta efnanna og hafa ætlað þau til sölu. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og verst lögregla frekari frétta af málinu. - mh tveir handteknir í kópavogi: Með fíkniefni í söluumbúðum Blaðberaskortur dönsku fríblöðin sjá fram á að þurfa að flytja inn fleiri blaðbera því danir hafa engan áhuga á starfinu. Þótt 133 atvinnuleysisþegum, sem eru fullfærir um að starfa sem blaðberar, hafi verið boðin sú vinna í Frederiksberg, tóku eingöngu fimm starfinu. Í kaup- mannahöfn töldust 270 atvinnulausir hæfir og níu þeirra tóku boðinu. Danmörk New YoRk, Ap Hundruð manna söfnuðust saman í Queens í gær til að votta saklausu fórnarlambi skotárásar lögreglu virðingu sína. Hinn látni, Sean Bell 23 ára, var borinn til grafar í gær. Bell varð fyrir skotárás lög- reglu þegar hann var á leið heim úr steggjapartíi ásamt tveimur vinum. Lögreglan taldi ranglega að ungu mennirnir væru vopnaðir. Fimmtíu lögreglumenn skutu á þremenningana og lést Bell sam- stundis. Hinir tveir liggja alvar- lega særðir á sjúkrahúsi. Útförin fór fram í sömu kirkju og á þeim degi sem Bell hefði átt að ganga í það heilaga ásamt unnustu sinni. Málið hefur vakið mikla óánægju almennings í Bandaríkjunum og lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína. - áp Fórnarlamb lögregluofbeldis: Fjölmenni við útför Sean Bell BeLL minnst Fjöldi fólks vottaði hinum látna virðingu sína. meNNiNG Jólasýning Árbæjar- safns hefst klukkan 13 í dag. Ungir sem aldnir geta komið og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga og rölt á milli húsa. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga, guðsþjónusta verður í kirkjunni ásamt því að gestir fá að föndra, syngja jólalög og ferðast um í hestvagni. Sýningin er aðeins opin í dag og næstkomandi sunnudag frá klukkan 13 til 17. - áp Jólasýning Árbæjarsafns: Jólahald með gamla laginu JóLasýninG sýningin hefur skipað sér fastan sess í menningarlífi borgarinnar. StjóRNmál „Vandi Samfylkingar- innar liggur í því að kjósendur þora ekki að treysta þingflokkn- um – ekki enn þá,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi flokksins í Reykjanesbæ í gær. Hún segir Samfylkinguna þurfa að komast í ríkisstjórn til þess að skapa henni endurnýjunarkraft. Ingibjörg Sólrún lagði áherslu á það í ræðu sinni að Samfylkingin væri tilbúin til þess að axla ábyrgð og stýra málum af festu í ríkis- stjórn eftir kosningarnar næsta vor. „Ég er ekki sátt við að flokk- urinn sé með um 25 prósenta fylgi í skoðanakönnun vegna þess að það er undir kjörfylgi. Mér finnst það benda til þess að það vanti upp á traust kjósenda á þingflokknum vegna þess að hann gegnir mikil- vægu hlutverki. Þetta hafa stjórnarandstöðuflokkar, sem eru öflugir, glímt við í mörgum ríkjum í kringum okkur. Til dæmis má nefna Demókrataflokkinn í Banda- ríkjunum áður en Bill Clinton varð forseti, Verkamannaflokkinn í Bretlandi áður en Tony Blair komst til valda og hægriflokkana í Svíþjóð. Ég tel Samfylkinguna þurfa að aga málflutning sinn fram að kosningum og á þeim forsendum tel ég ljóst að við munum fá það traust sem þarf til þess að komast í ríkisstjórn.“ Í ræðu sinni fór Ingibjörg Sólrún hörðum orðum um frammi- stöðu ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins. Sagði hún kosningaloforð stjórnarflokkanna í síðustu kosningum „í formi skattalækkana og hærri húsnæðis- lána“ hafa reynst „hjóm eitt“. Sagði hún útreikninga sýna það „svart á hvítu að allar lækkanir á skatthlutföllum væru þegar upp- étnar úr vösum venjulegs fólks og gott betur“. Átvöglin hétu „vextir og verðbólga“. Ingibjörg Sólrún segir langa stjórnarandstöðu hafa styrkt flokkinn og nú þurfi flokksmenn að sameinast um að fella ríkis- stjórnina í kosningunum næsta vor. „Ég skynja það sterkt að Samfylkingin þarf að nýta þau greinilegu sóknarfæri sem skap- ast hafa fyrir kosningarnar í vor. Ég finn að það er útbreidd skoðun meðal fólks að Samfylkingin þurfi að vera í ríkisstjórn, eftir kosning- arnar næsta vor, til þess að það skapist í henni endurnýjunar- kraftur fyrir íslenskt samfélag. Ég er tilbúin til þess að leggja mikið á mig til þess að ná fram vilja fólks og Samfylkingarfólk er tilbúið til þess líka.“ magnush@frettabladid.is Samfylkingin skapi endurnýjunarkraft Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði kjósendur ekki treysta Samfylkingunni nægi- lega vel í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi flokksins. Hún segist finna fyrir því hjá fólki að tími sé kominn til að koma ríkisstjórnarflokkunum frá völdum. frá funDinum ingibjörg sólrún flytur ræðu sína á flokksstjórnarfundinum. ingibjörg sólrún segist finna fyrir vilja hjá fólki til þess að hleypa nýjum flokkum að í ríkis- stjórn. FréttaBlaðið/Hilmar ���������������������������������� ������������� �������� ���� �������� �� ��������� ������ ����� ��������� ��������������� ������ �������� �������� ������� ���� ������� �� ���������������� ��������������� �������������� ������������������ ����������������� ������������ ������������ ����������� ����������� ��������������� ����������� ������������� ��������������� ������������� ��������������� ��������� ��������������� ��������� �������������� ������� ��� ������� ���������������������� ������������������� ��� �������� ���������� �� ���� ��������� ������ ��� ���� ��������������� ���� � �������������� ����� ���� � �������� �� �������������� ������������� � ���������� ��������� ��������� ���� � �� ��� �������� ���������� ���� � ������������������� ��������� �� ����� ����������������� �������� ���� ���� ���� ���������� �� ����� ��� ����������� ���������������� ����� �������� ��� �� ���� ��������������� � ����� ��� ��������� �� ������ �� ���������� ������� �� ��� � � � � � � � � � � �� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � HeilBRiGðiSmál Umfang reykinga hér á landi hefur verið á hægri en stöðugri niðurleið síðan árið 1991. Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun Capacent Gallup sem gerð var fyrir Lýðheilsustöð. Í könnuninni kom fram að 21 prósent karla reykja daglega en einungis 17 prósent kvenna. Lítill og ómarktækur munur er á hlutfalli kvenna og karla sem reykja af og til. Daglegar reykingar eru algengastar hjá fólki á aldrinum 20 til 29 ára og háskólamenntað fólk reykir minna en þeir sem eru einungis með grunnskólamennt- un. - hs ný könnun um reykingar: Þeim fækkar sem reykja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.