Fréttablaðið - 17.12.2006, Qupperneq 62
Þ
egar leikstjórinn
Tony Scott gerir
kvikmyndir þá má
bóka að mikið sé lagt
í spennu og hasar.
Vanalega springa
nokkur farartæki og stundum
jafnvel byggingar eða þá mann-
eskjur. Hann er þekktastur fyrir
myndirnar Enemy of the State,
True Romance, Top Gun og Man
on Fire sem skartaði Denzel Wash-
inton í aðalhlutverkinu. Þeir félag-
ar leiða saman hesta sína á nýjan
leik í myndinni Dejà Vu. Myndin
fjallar um rannsóknarlögreglu-
mann, leikinn af Denzel, sem rann-
sakar sprengingu í ferju í New
Orleans. Auðvitað er um hryðju-
verk að ræða en hetjuna grunar að
málið tengist öðru dauðsfalli sem
átti sér stað um klukkutíma fyrir
sprenginuna. Vegna yfirburðagetu
sinnar í starfi fær FBI hann í lið
með sér að finna sökudólginn.
Honum til mikillar undrunar býr
FBI yfir leynilegri tækni sem
gefur rannsóknarlögreglumönn-
um fært að skoða atburði nákvæm-
lega fjóra daga aftur í tímann.
Hægt og rólega fylgjast þeir með
því hvernig atburðir fortíðarinnar
leiddu til sprengingar ferjunnar.
Myndin er sú fyrsta sem er tekin í
New Orleans eftir að fellibylurinn
hörmungar, Katarina, skall á borg-
inni á síðasta ári. Koma tökuliðs-
ins frá Hollywood hjálpaði víst til
við að reisa við efnahaginn í borg-
inni en yfirvöld þar standa enn í
mikilli uppbyggingu eftir hvirfil-
bylinn og flóðin sem fylgdu í kjöl-
farið.
„Við vorum virkilega þakklátir
borgaryfirvöldum að gefa okkur
leyfi til þess að fara þangað,“ segir
Jerry Bruckheimer, framleiðandi
myndarinnar. „Þau geta hins vegar
þakkað Denzel fyrir stuðninginn,
því hann átti hugmyndina að því
að gera þetta í New Orleans.“
Í myndinni er lykilatriði þegar
ferja springur í loft upp á Missis-
sippi ánni í New Orleans. Þetta
var framkvæmt í alvörunni þrátt
fyrir að hæglega hefði verið hægt
að gera atriðið frá upphafi til enda
á tölvu. Leikstjórinn Tony Scott er
af gamla skólanum og er mikill
sprengjusérfræðingur. Hann er á
þeirri skoðun að tölvuteiknaðar
sprengingar hafi aldrei sömu áhrif
á kvikmyndagesti og raunveru-
legar. Það var heilmikið mál að
sprengja upp ferju og það vakti
mikla athygli í borginni.
„Þetta var alveg magnað,“
hrópar leikstjórinn nánast upp
yfir sig. „Þrátt fyrir að við hefðum
tilkynnt í öllum fjölmiðlum þar að
það myndi verða sprenging á ánni,
þá bárust lögreglunni samt hundr-
uð símhringinga frá fólki að til-
kynna um hryðjuverk. Það er líka
svolítið skrítið að vinna svona
mikla undirbúningsvinnu fyrir
sprengingu, sem tekur svo bara
mínútu að framkvæma.“
Þrátt fyrir að myndin heiti Dejà
Vu kemur það fyrirbrigði aldrei
fyrir í myndinni. Þetta er vísinda-
skáldsaga og spennutryllir sem
fjallar um tímaflakk. Er titillinn
kannski örlítið villandi?
„Ég skoðaði orðabók til þess að
fá útskýringu á því hvað dejà vu
þýðir,“ segir Tony Scott. „Þar stóð
að þetta lýsi óþægilegri tilfinn-
ingu um að hafa verið á sama stað
á sama tíma áður. Þannig líður
persónunum í myndinni þegar
þær eru að fylgjast með atburðum
fortíðarinnar í gegnum tæki sín.“
Óskarsverðlaunaleikarinn Denzel
Washington er nú orðinn 52 ára
gamall. Maður hefði kannski hald-
ið að framleiðendur myndarinnar
hefðu því leyft honum að taka því
nokkuð rólega, en raunin er önnur.
Í myndinni er hann í hverju hasar-
atriðinu á fætur öðru sem hefur
án efa reynt mikið á leikarann.
Var eitthvað við gerð þessarar
myndar sem þig langaði alls ekki
að framkvæma?
„Ég er mjög lofthræddur,“ við-
urkennir hann. „Það er atriði í
myndinni þar sem ég hangi fram
af brún brúar til þess að teygja
mig í sönnunargögn undir brúnni.
Ég lét engan vita af lofthræðslu
minni en þegar kom að því að
skjóta atriðið spurði leikstjórinn
mig hvort ég vildi setjast aðeins
niður fyrst og tala um ótta nn. Ég
þvertók fyrir það og vildi bara
ljúka þessu af sem fyrst! Við
getum talað þegar við erum búnir
að taka upp. Fram að þessum degi
þurfti ég að keyra yfir þessa brú á
hverjum morgni. Í eitt skiptið
stöðvaði ég bílinn og kíkti yfir
brúnina, saup hveljur og blótaði
leikstjóranum.“
Þessi mynd fjallar um tíma-
flakk, og tilraun aðalpersónunnar
til þess að breyta hlutum sem
þegar hafa átt sér stað. Trúir þú á
örlög? Voru það þín örlög að njóta
svona mikillar velgengni?
„Biblían segir að trú án vinnu
sé einskis virði. Örlögin eru frá-
bær og trúin er frábær en maður
verður að leggja sitt af mörkum.
Ég er bara eins og allir, að gera
mitt og fylgjast með því hvað ger-
ist í kringum mig. Ég er mjög
ánægður með hvernig hefur geng-
ið hjá mér hingað til.“
Hvað er það við tímaflakk sem
bíógestum þykir svo heillandi?
„Ætli það sé ekki tilhugsunin að
um að ná að stjórna einhverju sem
við eigum ekki möguleika á í raun-
veruleikanum.“
Ef þú gætir farið aftur í tím-
ann, hvaða ráð myndir þú veita
yngri útgáfunni af sjálfum þér?
„Ég veit það ekki. Ég myndi
aldrei fara til baka, og ég myndi
aldrei breyta neinu. Ég held að
myndin gefi það í skyn, að það sé
ekkert sérstaklega skynsamlegt.
Ef maður breytir einhverju, þá
verður maður að lifa með útkom-
unni. Það myndi ég líklega segja
við sjálfan mig.“
Hefur þú einhvern tímann upp-
lifað dejà vu?
„Nokkrum sinnum. Ég veit
ekki hvort það er dejà vu eða
eitthvað annað en lengi dreymdi
mig sama drauminn um að vera
ferðast til hliðar í lyftu. Svo
þegar ég fór í Eiffelturninn í
París lenti ég í lyftu sem ferðað-
ist til hliðar. Þá fannst mér eins
og ég hafði verið þar áður. Mig
dreymdi líka reglulega sama
drauminn um stað, úthverfi í
borg. Svo einn daginn þegar við
vorum að skjóta The Siege
Brooklyn áttaði ég mig á því að
hverfið sem við vorum í, var
sami staðurinn og ég hafði séð í
draumum mínum. Kannski
heimsótti ég þennan stað þegar
ég var ungur, og hafði gleymt
því. Það er svo erfitt að segja
hvað deja vu er. Svörin eru jafn
mörg og þær hugmyndir sem
fólk hefur um það,“ segir Denz-
el að lokum.
Örlögin ráða ekki öllu
Denzel Washington reynir að breyta fortíðinni í spennumyndinni Dejà Vu. Birgir Örn Steinarsson
hitti leikarann, leikstjórann Tony Scott og ofurframleiðandann Jerry Bruckheimer og komst að því að
sjálfur vill Denzel engu breyta í sinni fortíð.
Ef maður
breytir ein-
hverju, þá
verður mað-
ur að lifa
með útkom-
unni. Það
myndi ég
líklega segja
við sjálfan
mig.