Fréttablaðið - 17.12.2006, Síða 82

Fréttablaðið - 17.12.2006, Síða 82
DHL-deild karla Iceland Express deild kv. Ítalska úrvalsdeildin Stjarnan vann í gær ÍR í Austurbergi en óhætt er að segja að um hreinan þjófnað hafi verið að ræða. ÍR-ingar leiddu leikinn allan tímann með 3-5 mörkum og voru með fimm marka forystu þegar fimm mínútur voru eftir. En þá hrukku Stjörnumenn í gang og sigruðu loks, 26-25. Kristján Halldórsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði eftir leik að enginn toppbragur hefði verið á leik sinna manna. „Þessi stig verða örugglega dýrmæt þegar fram í sækir en við getum ekki leyft okkur að vera sáttir við okkar leik.“ Um síðustu helgi vann Stjarnan topplið Vals með yfirburðum. „Eftir jafngóðan leik og gegn Val getur verið erfitt að koma mönnum aftur í gírinn og reyndist það vera svo í dag. Við vorum einfaldlega ekki með lengi vel.“ Stjarnan stal sigrinum af ÍR Valur vann í gær mikil- vægan sigur á HK í toppslag DHL- deildar karla. Niðurstaðan þriggja marka sigur, 25-22, sem hefði þó getað verið mun stærri. HK-ingar börðust hins vegar eins og ljón allan tímann og hefðu þess vegna getað stolið öðru stiginu í gær. En sigur Valsmanna þýðir að þeir hirða toppsætið af HK í lokaleik umferðinnar fyrir tæplega tveggja mánaða langt jóla- og HM-frí. „Við keyrðum okkar leik áfram af fullum krafti og ætluðum okkur við vinna þennan leik,“ sagði varn- armaðurinn Sigurgeir Árni Ægis- son hjá HK. „Í fyrri hálfleik feng- um við hins vegar mikið af hröðum mörkum á okkur en á móti kom að þegar við náðum að stilla upp í vörn hélt hún ágætlega. Sóknarleikurinn var hins vegar ekki nógu góður en það verður ekki tekið af Valsmönn- um að þeir spiluðu góða vörn.“ Eins og í fyrri leik liðanna í Digranesi í október höfðu Vals- menn ávallt undirtökin í leiknum. Staðan var 14-10 í hálfleik og fengu heimamenn þó nokkur tæki- færi til að stinga HK-inga af. Í stöðunni 20-13 virtist það ætla að verða raunin en leikmenn HK börðust með kjafti og klóm og tókst að skora sex mörk gegn einu. Þeir fengu svo tækifæri til að minnka muninn í eitt mark en misstu af því tækifæri og gengu Valsmenn aftur á lagið. „Mér fannst í raun litlu muna að við næðum að brjóta þá á bak aftur og jafna leikinn í lokin en það vantaði herslumuninn hjá okkur,“ bætti Sigurgeir Árni við. Þegar aðeins rúm mínúta var til leiksloka og HK-menn enn og aftur búnir að koma sér aftur inn í leikinn fengu þeir vítakast sem Gunnar Steinn Jónsson tók. Í fyrri hálfleik hafði Pálmar Pétursson varið tvö vítaskot frá Valdimari Þórssyni en nú stóð Ólafur Gísla- son í markinu og varði hann frá Gunnari Steini. Þar með missti HK af öðru tækifæri til að minnka muninn í eitt mark og kláruðu þess í stað Valsmenn leikinn. „HK er með mjög sterkt lið sem er erfitt að hrista af sér,“ sagði Markús Máni Michaelsson, besti maður leiksins. „Við vorum komn- ir í góða stöðu og fengum ágæt færi til að halda henni en það bara datt ekki okkar megin. Við feng- um einnig marga brottrekstra á okkur sem hjálpaði ekki til. En að mínu viti var það fyrst og fremst varnarleikurinn sem vann leikinn fyrir okkur í dag. Við fórum vel yfir okkar mál eftir tapleikinn gegn Stjörnunni og þéttum vörn- ina vel. Það réði úrslitum.“ Valsmenn komu sér í toppsæti DHL-deildar karla með sigri á HK, 25-22, í upp- gjöri toppliðanna í lokaumferðinni fyrir vetrarfrí. Valsmenn hafa unnið báðar viðureignir liðanna í deildinni í vetur og virðast vera með gott tak á liðinu. Haukar unnu öruggan sigur á Fylkismönnum á heima- velli sínum í gær 33-29. Sigur þeirra var aldrei í hættu en þeir höfðu forystuna frá upphafi til enda og hleyptu gestum sínum aldrei of nálægt. Of mikið óðagot var á leik Fylkis á löngum köflum og leikmenn liðsins gerðu sig seka um slæm og dýrkeypt mistök. Haukar voru betri allt frá byrjun, voru yfir 19-13 í hálfleik, og lögðu snemma grunninn að þessum fjög- urra marka sigri. „Við vorum með þetta í okkar hendi nánast allan tímann. Fylkis- menn náðu einhverjum rispum en við vorum mjög beittir. Mér fannst þeir greinilega sakna Bubba í markinu og við náðum yfirleitt að skora, þrátt fyrir að vera komnir í vandræði. Við vorum í fínum gír, boltinn gekk vel í sókninni og við náðum að stærstum hluta að leysa þær varnir sem þeir stilltu upp á móti okkur. Maður fann það fyrir leikinn að andinn var góður og ég hafði aldrei áhyggjur í dag með fullri virðingu fyrir Fylki. Það voru náttúrulega þjálfaraskipti hjá þeim og stundum virkar það þannig að leikmenn koma yfir- spenntir til leiks. Óli þarf tíma til að vinna með þetta lið, þeir eru að fá Heimi aftur og verða klárlega sterkari eftir áramót,“ sagði hornamaðurinn geðþekki Samúel Ívar Árnason. Haukamenn léku vel saman í gær en Arnar Pétursson var markahæstur í þeirra liði með sex mörk, hann átti góðan leik og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Eins og Samúel minntist á var mark- vörðurinn Hlynur Morthens ekki með Fylki í þessum leik og hafði það sitt að segja. Það virtist skorta á einbeitingu hjá Fylkismönnum í leiknum en Eymar Krüger og Vladimir Duric voru markahæstir í þeirra liði með sex mörk. Lið Fylkis er komið í erfiða stöðu í næstneðsta sæti með sjö stig en Haukar fara inn í jólafríið með ellefu stig í fimmta sætinu. Fyrirhafnarlítill sigur Hauka á Fylki Það var ekki mikill Íslandsmeistabragur á Frömurum sem sóttu Akureyri heim í KA- heimilinu í gær. Norðanmenn skelltu meisturunum, unnu 33-28 eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik, 16-16. Framarar höfðu undirtökin fram af fyrri hálfleik og komust mest fjórum mörkum yfir en með góðum kafla undir lokin, þegar markvarsla Framara datt niður og náðu Akureyringar að jafna og þeir komust svo yfir í fyrsta skipti í leiknum með því að skora fyrstu mörk síðari hálfleiks. Litlu mátti muna að upp úr syði á köflum en leikmönnum, og þjálf- urum, var orðið ansi heitt í hamsi. Þjálfararnir voru að kýta sín í milli og leikmenn voru æfir út í dómara leiksins sem missti tök á honum á löngum köflum. Jafnfræði var með liðunum í síðari hálfleik en í stöðunni 25-25 skildu leiðir þegar Hreiðar Levý Guðmundsson kom aftur í mark Akureyringa og varði hvað eftir annað á meistaralegan hátt. Hreið- ar lagði grunninn að baráttusigri Akureyringa sem skutust þar með upp fyrir Framara í töflunni. „Við vorum búnir að tapa tveim- ur leikjum gegn þeim á skömmum tíma, einum í deildinni og hinum í bikarnum og það kom ekki til greina að tapa fyrir þeim aftur. Þetta var mjög mikilvægur leikur fyrir okkur. Það lá ljóst fyrir að við myndum tryggja okkur þriðja sætið með sigri og það skipti miklu máli að ná því fyrir hlé,“ sagði Sævar Árnason, annar þjálfara Akureyris eftir leikinn. Hann hrósaði Hreiðari einnig fyrir sitt framlag. „Það munaði gríðarlega um að fá markvörsluna í lokin. Þetta hefur verið styrkur okkar að markmennirnir okkar hafa komið sterkir inn, báðir tveir. Hreiðar er markmaður í landsliðs- klassa og við ætlumst til mikils af honum, hann stóð svo sannarlega undir þeim væntingum núna,“ sagði Sævar. Kom ekki til greina að tapa fyrir þeim aftur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.