Fréttablaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI 68% 40% 37% Fr é tt a b la › i› Fr é tt a b la › i› M b l. M b l. *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006. Þriðjudagur LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA allt landið B la ð ið B la ð ið 30 20 10 50 40 0 60 70 80 Sími: 550 5000 ÞRIÐJUDAGUR 2. janúar 2007 — 1. tölublað — 7. árgangur Smáauglýsingasími550 5000 Auglýsingasími Allt550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir is Saga Lágafellskirkju nær aftur til ársins 1774 þegar Mosfells- og Gufunessókn-ir voru sameinaðar með konunglegri tilskipun. Konunglega tilskipunin var reyndar aftur- kölluð einungis tveimur árum seinna. Það var ekki fyrr en rúmri öld síðar, árið 1886, að Magnús Stephensen landshöfðingi skipaði svo fyrir að sóknirnar skyldu sameinaðar. Þar við sat og reis ný timburkirkja á stein- grunni við Lágafell árið 1889 Þessi ki k stendur enn þó 1956 þegar kirkjan var lengd um eina þrjá metra og skrúðhús byggt norðan við kórinn. Á hundrað ára afmæli kirkjunnar var aftur ráðist í framkvæmdir en þá var ný viðbygg- ing opnuð. Mosfellskirkja tekur um 160 til 180 manns í sæti. Sagan segir að fyrir nokkrum árum hafi þáverandi kirkjuvörður, Jóhann S. Björnsson, sýnt landsþekktum miðli skrúð- húsið, kirkjugarðinn og kirkjuna sjálfa. Þegar Jón bauð miðlinum sæti sva ði „Nei því mið Setið í hverju sæti VEÐRIÐ Í DAG LÁGAFELLSKIRKJA Setið í hverju sæti Fasteignir Hús Í MIÐJU BLAÐSINS JÓN GNARR Vill bíl í afmælisgjöf Fertugur í dag TÍMAMÓT 26 ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON John Cleese tekur grínið alvarlega Ánægður með auglýsinguna og Áramóta- skaupið HÆGUR VINDUR - Í dag verður hæg suðlæg átt. Víða stöku snjór eða slydduél í fyrstu en vaxandi úrkoma, snjókoma eða slydda, sunnan og suðvestan til síðdegis. Hlárnar með ströndum smám saman í dag, síst norðaustan til. VEÐUR 4     Tónlist og bókmenntir. Eða leiklist? Einar Kárason segir sögur af KK sem tekur svo í gítar og syngur. MENNING 32 Pjúsari vill á þing Lára Stefánsdóttir, frambjóðandi Samfylkingarinn- ar, er forseti Pjúsarafélags Íslands. FÓLK 46 Guðjón í stórsókn Guðjón Þórðarson segir að mikið verkefni sé fyrir höndum hvað uppbyggingu knattspyrnunnar á Akranesi varðar og allir verði að takast á eitt til að koma liðinu í fremstu röð á ný. ÍÞRÓTTIR 38 Klúður „Klúðrið í samgöngumálum er átakanlegt og birtist í fáránleika- farsanum í kringum Flugstoðirnar sem eiga að taka til starfa eftir áramótin,“ segir Valgerður Bjarna- dóttir. Í DAG 22 VERÐHÆKKANIR Gjaldskrár hækk- uðu víða hjá sveitarfélögum um áramót. Þannig hækkaði verð í sund í stærstu sveitarfélögunum fimm og sorphirðugjald hækkaði einnig víða. Leikskólagjöldin hækkuðu ekki í neinum af stærstu sveitarfélögunum nema í Reykja- vík og Mosfellsbæ. Í Reykjavík hækkuðu þau um tæp níu prósent um áramótin. Matarverð á leik- skólum í Garðabæ hækkaði hins vegar um sjö prósent. Sorptunnugjaldið hækkaði í Kópavogi um sjö prósent, í Hafn- arfirði og Garðabæ um tíu pró- sent, á Akureyri um tæp 20 pró- sent og tæp 23 prósent í Reykjavík. Sorpgjöld á fyrirtæki hækkuðu frá tæpum 12 í rúm 14 prósent eftir eðli sorpsins á Akureyri. Í Reykjavík hækkaði verð á frí- stundastarfi eldri borgara um tæp tíu prósent og hádegis- og kvöld- matur hækkaði um rúm níu pró- sent auk þess sem gjald fyrir frí- stundaheimili hækkaði um tæp níu prósent. Í Mosfellsbæ hækk- aði verð félagsstarfs aldraðra um fimm prósent, fæðisgjald sömu- leiðis, vatnsveita og hitaveita. Í Hafnarfirði hækka þjónustu- gjöld um 30 milljónir en hækkunin hefur ekki verið útfærð. Sektir á bókasöfnum í Garðabæ og á Akur- eyri hækkuðu. Í Hlíðarfjalli hækk- uðu árskort og svo hækkuðu gjöld í tónlistarskóla á Akureyri og í Mosfellsbæ. Í Kópavogi er gert ráð fyrir sjö prósenta hækkun á lóðarleigu. Páll Magnússon bæjar- ritari segir að hækkunin sé bara verðlagshækkun og þýði raun- lækkun á þjónustu. Í Mosfellsbæ verður hækkun í leikskólum, frí- stundaseljum, tónlistarskóla og íþróttamiðstöðinni um fimm pró- sent 1. ágúst. En þetta eru ekki eintómar hækkanir. Strætisvagnaferðir eru ókeypis á Akureyri frá áramótum og ferjugjöld í Hrísey sömuleiðis fyrir íbúana. Í Mosfellsbæ fá öll fimm ára börn ókeypis vistun í átta tíma á leikskóla og í Garðabæ fá þau fjóra tíma á dag frá áramót- um og sex tíma í haust. - ghs Gjaldskrárhækkanir víða um áramótin Gjaldskrár hækkuðu víða hjá sveitarfélögunum um áramótin. Sorphirðugjald og sundferðir hækkuðu í flestum sveitarfélögum. Á Akureyri eru strætisvagna- ferðir ókeypis. Í Garðabæ og Mosfellsbæ fá fimm ára börn ókeypis leikskólavist. TRÚMÁL Herra Karl Sigurbjörns- son, biskup Íslands, var harðorð- ur í nýárspredikun sinni í gær þegar hann vék að stríðinu í Írak og aftöku Saddams Hussein. „Árið sem leið var ár stríðs og hörmunga, haturs og hermdar- verka,“ sagði Karl í predikuninni. „Aftaka Saddams var einn við- bjóðslegi þátturinn í þeirri ömur- legu atburðarás og verður eflaust vatn á myllu hermdarverka- manna sem nota það tækifæri til að réttlæta enn meiri dráp og skelfingu.“ Drjúgan hluta predikunarinn- ar helgaði biskup þeim einstakl- ingum sem þjóðin missti í umferð- arslysum á síðasta ári. „Skelfileg umferðarslys ollu dauða 30 karla, kvenna, barna, og skilja eftir harm og sorg. Og svo eru ótalin þau mörgu sár og örkuml sem slysin valda. [...] Það er ekki bara samgönguvandi sem við er að etja. Þarna er líka siðferðismein á ferðinni, vaxandi yfirgangur og æsingur í samfélaginu. Fregnir af háttsemi vegfarenda sem komu þar að sem stórslys urðu á þjóð- vegum, og með frekju og óþolin- mæði trufluðu störf lögreglunnar og þeirra sem hlynntu að slösuð- um, eru ótrúlegar og skelfileg- ar.“ Þá var biskup ómyrkur í máli í garð ofbeldisdýrkunar nútíma- samfélagsins, sem hann sagði meðal annars birtast ungu fólki í tölvuleikjum. Börn væru dýr- mætasta eign okkar og ekki væri nægilega vel búið að fjölskyldum þeirra. - sh Biskup fjallaði um stríðið í Írak, aftöku Saddams og banaslys í nýárspredikun sinni: Ár stríðs, hörmunga og haturs KARL SIGUR- BJÖRNSSON BISKUP MENGUN Svifryksmengun í Reykjavík sló öll met á nýársnótt, í samræmi við metár í sprengju- æði landsmanna. Stillt veður var í borginni og fram eftir nóttu var eins og þoka lægi yfir öllu vegna skotelda- mengunar og púðuragna. „Við vitum í raun ekki nákvæmlega hvað mengunin var mikil því að mér sýnist hún hafa farið upp fyrir mælisvið mælitækisins þegar mest var,“ segir Lúðvík E. Gústafsson, deildarstjóri mengunarvarna borgarinnar. Mengunin fór langt yfir heilsuverndarmörk og segir Lúðvík ástandið geta verið óheilsusamlegt fólki með við- kvæm öndunarfæri. „Það má spyrja sig að því hvort eðlilegt sé að björgunarsveitir byggi afkomu sína á að selja eitthvað sem er hættulegt heilsu sumra. En þetta er vissulega skemmtilegt.“ - sh Mengunin sprengdi skalann: Svifrykið ómæl- anlega mikið LÚÐVÍK E. GÚSTAFSSON ÁVARP Margrét Þórhildur Danadrottning segir atburði ársins undirstrika nauðsyn þess að Danir sýni erlendum menning- arheimum meira umburðarlyndi og skilning. Þetta kom fram í áramótaávarpi hennar. Skopmyndir af Múhameð spámanni, sem birtust í Jyllands- Posten snemma á síðasta ári, ollu miklu uppnámi meðal múslima um allan heim. „Við erum að byrja að gera okkur grein fyrir því að við verðum að auka skilning okkar og reyna að útskýra fyrir öðrum á hvaða gildum þjóðfélag okkar byggist,“ sagði hún. - sþs Margrét Danadrottning: Þurfa að sýna meiri skilning BEÐIÐ Í OFVÆNI Höfuðborgin líkist jafnan vígvelli þegar birtir á fyrsta degi ársins og sjá má sviðna jörð nær hvert sem litið er. Þeir Skafti og Jón skemmtu sér við það í gær að sprengja upp leifar gamla ársins og virtust allsendis óhræddir við neistaflugið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.