Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2007, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 02.01.2007, Qupperneq 2
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS NISSAN PATHFINDER LE IT Nýskr. 07.05 - Beinskiptur - Ekinn 24 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 4.860 .000. - Reynir, af hverju ertu ekki meira eins og Hannes Smára- son? Flugeldasala björgun- arsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar gekk vel fyrir nýliðin áramót. Salan jókst um að minnsta kosti 20 prósent um þessi áramót frá árinu á undan, sem var metár. Aukningin getur verið meiri þar sem nákvæmar sölutölur eru ekki komnar. Eftir þrettándann kemur í ljós hversu miklu þessi tekjulind skilar björgunarsveitunum. Á milli 500 og 600 tonn af flugeldum voru flutt til landsins í ár, sem er óvenju mikið. Söluaukning í ár Ómar Ragnarsson, Hannes Smárason, Róbert Wessmann, Ásta Lovísa Vil- hjálmsdóttir, Eiður Smári Guðjohnsen, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Dorrit Mousai- eff eiga það öll sameiginlegt að hafa verið valin maður ársins 2006. Mikil upphefð felst í því að vera maður ársins þar sem viðkomandi þykir fremstur meðal jafningja eftir árið. Ómar Ragnarsson gæti jafnvel talist enn fremri þar sem hann fékk tvær útnefningar sem maður árs- ins, hjá Fréttastofu Stöðvar 2 og Rás 2. Meðal þeirra sem útnefndu mann ársins voru Markaðurinn, Ísafold, DV, Nýtt líf, Útvarp Saga og Frjáls verslun. Nokkrir menn ársins 2006 Klukkan 24 mínútur yfir miðnætti á nýársnótt fæddist fyrsti Íslendingur ársins 2007 á Landspítalanum. Sá var drengur sem hafði látið foreldra sína, Ástu Ingibjörgu Aðalsteinsdóttur og Guðna Thorarensen, bíða lengi eftir sér. „Þetta er eitthvað sem enginn hefði þorað að láta sig dreyma um því að hún var sett á 19. desember,“ sagði hinn nýbakaði faðir og bætti við að tilfinningin væri ólýsanleg. „Maður var ekki mönnum sinnandi vegna stress og taugarnar að gera út af við okkur. Það er rétt svo að við munum eftir jólunum.“ Þau hjónin fóru upp á fæðing- ardeild upp úr klukkan átta á gamlárskvöld og það var strax byrjað að gantast með það að þetta gæti orðið fyrsta barn ársins að sögn Guðna. „En ég held að menn hafi nú ekki verið að meina það í alvöru.“ Nýársdrengurinn er annað barn Ástu og Guðna. Eiríkur Bogi Guðnason, sem varð 19 mánaða 28. desember, er ánægður með nýjasta fjölskyldumeðliminn. „Honum líst allavega núna í augna- blikinu vel á hann. Meðan hann gerir ekkert annað en að liggja kyrr og sofa þá er þetta allt í lagi. En ef það á að fara að gefa honum að drekka þá vill hann fá að vera með.“ Annað barn ársins 2007 kom í heiminn klukkan rúmlega fimm á Landspítalanum. Norðlenskur drengur fæddist á Akureyri klukkan rúmlega sjö á nýársdagsmorgun og næsti Norð- lendingur leit dagsins ljós á Dal- vík rétt fyrir tíu. Allt var með kyrrum kjörum á fjórðungssjúkrahúsunum á Ísa- firði og Neskaupstað og ekki vitað til þess að nýir Íslendingar hafi bæst í hópinn í þeim fjórðungum um nóttina. Höfðu beðið í tólf daga eftir stráknum Fyrsti Íslendingur ársins fæddist í Reykjavík þegar 24 mínútur voru liðnar af ár- inu. Drengurinn hafði látið bíða eftir sér frá 19. desember. Fyrsti Norðlendingur ársins fæddist klukkan rúmlega sjö á nýársdagsmorgun. Þrír fórust og 38 særð- ust í níu sprengingum í Bangkok í Taílandi á nýársnótt. Forsætisráð- herrann Surayud Chulanont sagði í gær að stuðningsmenn ríkisstjórn- arinnar sem steypt var af stóli fyrir þremur mánuðum stæðu að öllum líkindum bak við árásirnar. Enginn hefur þó lýst sig ábyrgan á þeim. Fyrrverandi forsætisráðherra Thaksin Shinawatra nýtur enn mikils stuðnings, en hópur herfor- ingja framdi valdarán og kom Surayud til valda fram að kosning- um sem verða haldnar í október. Thaksin er nú í útlegð erlendis. „Ódæðismennirnir hafa slæmar fyrirætlanir og vilja að árásirnar hafi áhrif á stjórnmálaástandið. Þeir vilja láta líta út fyrir að ójafn- vægi ríki á Taílandi,“ sagði forsæt- isráðherrann. Íslamskir vígamenn hafa fram ið árásir í suðurhluta landsins, en flest bendir þó til að sprengingarn- ar hafi ekki tengst þeim skærum. Heimildarmaður innan hersins segir hóp hátt settra manna í her- num hafa skipulagt sprengingarn- ar ásamt stjórnmálamönnum sem misstu völd sín í valdaráninu. Ætl- unin hafi verið að skaða trúverðug- leika ríkisstjórnarinnar. Þrír fórust í níu sprengingum Jón Sveinsson hæstaréttarlögmaður hefur óskað eftir því að láta af starfi formanns í einkavæðingar- nefnd. Hann segir ákvörðun- ina ekki tengjast umfjöllun Fréttablaðsins um sölu á hlut íslenska ríkisins í Íslenskum aðalverktök- um ehf. „Ég tek þessa ákvörðun af persónulegum ástæðum,“ segir hann. „Ég hef verið mikið veikur á þessu ári og ákvað að skipta um vettvang.“ Við formennsku í nefndinni tekur Baldur Gunnlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu- neytinu. Hættir í einka- væðingarnefnd Lögreglan í Keflavík handtók mann á heimili sínu í Grindavík um klukkan tvö á nýársnótt þar sem hann var ölvaður í miklu ójafnvægi og sveiflaði hníf í kringum sig. Þegar lögreglu bar að garði róaðist maðurinn og kom því ekki til átaka. Maðurinn svaf úr sér í fangaklefa ásamt þremur öðrum sem handteknir höfðu verið vegna óláta og ölvunar. Lögreglan í Keflavík þurfti í tvígang að slökkva eld í brunnum skottertum sem hafði verið staflað upp. Einnig þurfti að slökkva eld í ruslagámi við verslun í bænum. Ölvaður maður sveiflaði hníf „Ef allt gengur samkvæmt áætlun á ég að komast heim í lok næstu viku,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, sem brenndist illa á baki rétt fyrir aðfangadagskvöld. Hann átti að fá að vera á heimili sínu yfir áramótin en fékk skyndilega hita og þurfti að fara aftur á spítalann þar sem hann er í einangrun. „Það er mikil hætta á sýkingu á meðan sárin eru að gróa,“ segir hann. Síðar í þessari viku verður ljóst hvort færa þarf skinn af læri á bakið. Þurfi þess mun Guðlaugur dvelja lengur á sjúkrahúsinu. „Ég verð kominn á ról í janúar,“ segir Guðlaugur og ætlar sér að taka fullan þátt í alþingis- kosningunum í vor. Mestu skipti að taka það rólega fyrstu vikurnar. Á ról í janúar Viðbúnaðaráætlun Flug- stoða um flugumferðarþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu tók gildi á miðnætti á nýársnótt þar sem ekki hafði náðst niðurstaða í deilu Félags íslenskra flugumferð- arstjóra og Flugstoða. Prýðilega gekk að stjórna flug- umferð í gær að sögn Þorgeirs Páls- sonar, forstjóra Flugstoða. Engar tafir urðu á flugi þó að umferðin í svæðinu hafi verið yfir meðallagi miðað við það sem gerist á þessum tíma árs með um 150 vélar, þar af 11 vélar í flugi milli Íslands og ann- arra landa. „Menn eru að fljúga eftir föst- um ferlum og flughæðum sem að þeim er nánast úthlutað. Þeir fá kannski ekki þær flugleiðir eða flughæðir sem þeir vildu en þetta hefur gengið lipurlega.“ Góður árangur náðist í viðræð- um um lífeyrismál á gamlársdag að sögn Þorgeirs sem vildi ekkert spá fyrir um hvort deilan væri að leysast. „Ég er hvorki bjartsýnn né svartsýnn og vil bara sjá hvernig þetta þróast.“ Þráðurinn verður aftur tekinn upp í dag. Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur lýst áhyggjum yfir viðbúnaðaráætlun- inni og telur að hún feli í sér skert flugöryggi. Flugmálastjórn árétt- aði í kjölfarið að með viðbúnaðará- ætluninni muni draga úr afkasta- getu en fullu flugöryggi verði haldið uppi. Þorgeir segir áhyggj- ur öryggisnefndarinnar óþarfar. „Viðbragðsáætlunin var gerð sam- kvæmt reglum Alþjóðaflugmála- stofnunarinnar sem hefur sam- þykkt hana.“ Viðbúnaðaráætlunin í gildi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.