Fréttablaðið - 02.01.2007, Side 4
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Rúmlega 80 manns
komu á slysadeild Landspítalans á
nýársnótt. Þema næturinnar var
líkamsárásir, að sögn læknis á
slysadeild, en flestir sem þangað
komu voru meiddir eftir slagsmál
og ölvunarslys. Þá þurftu fjórir
læknishjálp vegna flugeldaslysa.
Ánægja ríkir þó meðal lögreglu-
manna á höfuðborgarsvæðinu
með það að nóttin hafi verið að
mestu stóráfallalaus.
Ungur maður höfuðkúpu-
brotnaði þegar tveir menn réðust
á hann að tilefnislausu í Vestur-
bæ Reykjavíkur. Maðurinn ætl-
aði að ganga einsamall heim úr
samkvæmi þegar mennirnir
veittust að honum. Vitni voru að
árásinni sem gátu gefið greinar-
góða lýsingu á árásarmönnunum
en þeir eru enn ófundnir. Fórnar-
lambið liggur á heila- og tauga-
skurðdeild en er ekki í lífshættu,
hélt meðvitund í allan gærdag og
þurfti ekki að vera í öndunarvél.
Þó er líklegt að hann þurfi að fara
í skurðaðgerð á næstu dögum.
Karlmaður slasaðist talsvert
þegar sprengja sprakk í höndum
hans og þurfti hann að gangast
undir skurðaðgerð um nóttina.
Tveir ungir drengir brenndust í
andliti og voru lagðir inn á sjúkra-
hús vegna fikts með flugelda.
Þeir höfðu tekið skotkökur í sund-
ur og sett innihaldið í poka sem
þeir svo kveiktu í. Klukkan níu í
gærmorgun var svo farið með
einn sjúkling á augndeild með
augnskaða eftir skoteld.
Tilkynnt var um eignaspjöll á
níu stöðum, mest við skóla og
verslunarmiðstöðvar, þar sem
rúður höfðu verið sprengdar með
flugeldum. Þá voru dælubílar
slökkviliðsins kallaðir út átta
sinnum en í öllum tilvikum var
um minniháttar eld að ræða.
Alls voru sjúkrabifreiðar kall-
aðar út um 50 sinnum frá hálf
átta um kvöldið fram til morguns
og setti ófyrirséð hálka á götum
borgarinnar þar strik í reikning-
inn. Margir runnu til í hálkunni
og kenndu sér meins á eftir og
leigubílstjórar voru margir
hverjir afar ósáttir með að götur
hefðu ekki verið saltaðar. Tíu
árekstrar voru skráðir, þar af
einn nokkuð harður.
Aðeins þrír voru teknir fyrir
ölvunarakstur þessa nýársnótt,
sem er mun minna en verið hefur
undanfarin ár. Varðstjóri lög-
reglu segir það geta skýrst af því
að lögreglan hafi einfaldlega haft
í nægu öðru að snúast en að
stöðva ölvaða ökumenn.
Líkamsárásir voru
þema nýársnætur
Áttatíu höfuðborgarbúar komu á slysadeild á nýársnótt. Ungur maður höfuð-
kúpubrotnaði eftir fólskulega árás. Fjórir meiddust eftir meðhöndlun flugelda,
þar af einn alvarlega. Ánægja er meðal lögreglu með stóráfallalausa nýársnótt.
Forseti Djíbútís og
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, boða til ráðstefnu um
nýtingu jarðhita í löndum Afríku
síðar í þessum mánuði.
Á ráðstefnunni, sem haldin
verður í Djíbútí, munu forystu-
menn fimm Afríkuríkja koma
saman til að ræða nýtingu
jarðhitans í löndum sínum. Þar
verða einnig íslenskir vísinda-
menn, fulltrúar Reykjavíkurborg-
ar og hagfræðingurinn Jeffrey
Sachs, sem boðar til ráðstefnunn-
ar ásamt forsetunum tveimur.
Ræða um jarð-
hita í Djíbútí
Starfsmaður við Kárahnjúkavirkjun
var stunginn þrisvar sinnum af samstarfsmanni
sínum um klukkan eitt á nýársnótt vegna kvenna-
mála. Árásarmaðurinn, sem er kínverskur, stakk
ítalskan starfsmann einu sinni í kviðinn og tvisvar í
handleggi sem hann bar fyrir sig við árásina.
Ítalinn slasaðist ekki mjög alvarlega í árásinni,
sem átti sér stað í búðum starfsmanna Impregilo
við aðgöng tvö. Læknir hlúði að honum á staðnum
og reyndist sárið á kvið hans ekki mjög djúpt.
Lögreglumenn frá Egilsstöðum handtóku árásar-
manninn í búðunum skömmu eftir árásina og fluttu
hann í fangageymslur. Lögreglan yfirheyrði mann-
inn í gærdag og játaði hann brotið. Málið telst upp-
lýst.
Talið er að ástæða þess að mönnunum sinnaðist
svo með þessum afleiðingum sé sú að stjakað hafi
verið við konu í samkvæminu og þeim kínverska
hafi gramist það mjög. Báðir eru mennirnir starfs-
menn Impregilo og starfa við aðgöng tvö á heiðinni
fyrir ofan Fljótsdal.
Orkuveita Reykjavíkur,
opinbert fyrirtæki, býður upp á
heildarlausnir í útilýsingu, allt frá
hönnun til uppsetningar og
viðhalds. Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins hafa margoft sagt
að takmarka skuli starfssvið
Orkuveitunnar við grunnþjónustu
á borð við að veita vatn og
rafmagn, en ekki á þeim sviðum
þar sem samkeppni ríkir á
markaðnum.
„Við erum fyrst og fremst að
koma til móts við viðskiptavini
okkar og veita góða þjónustu,“
segir Brynjar Stefánsson,
sviðsstjóri sölusviðs hjá Orku-
veitu Reykjavíkur. „Þetta er
þjónusta sem við höfum veitt í
fjölda ára.“
Á hönnunar- og
viðhaldsmarkaði
157 kílógramma
tígrisdýr át megnið af hægri
handlegg starfskonu dýragarðs í
San Francisco í Bandaríkjunum
22. desember síðastliðinn.
„Tígurinn át hönd hennar og
hélt hægt og rólega áfram að
kjamsa á restinni af handleggn-
um,“ sagði vitni að atburðinum.
Tatiana, sem er þriggja ára
Síberíutígur, sleppti ekki fórnar-
lambinu fyrr en annar starfsmað-
ur dýragarðsins laust hana í
höfuðið með löngu priki. Fórnar-
lambið hefur þurft að dvelja á
sjúkrahúsi síðan atvikið átti sér
stað.
Tígur át hand-
legg starfskonu
Ríkisstjórn Íraks
fyrirskipaði í gær lokun einkarek-
innar sjónvarpsstöðvar, sem hún
sagði hvetja til ofbeldis og haturs
í dagskrárgerð sinni.
Fréttamaður hjá stöðinni, sem
heitir al-Sharqiya og sendir út frá
Dubai í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, segir hins vegar
að stöðin hafi lokað útibúi sínu í
Bagdad fyrir þremur mánuðum
vegna árása á starfsmenn.
Fyrirskipunin hafi því engin áhrif.
Stöðin hefur haft Saddam
Hussein heitinn í hávegum og
stutt við bakið á súnníum, en
ríkisstjórnin er að mestu skipuð
sjía-múslimum.
Vilja láta loka
sjónvarpsstöð
Notkun þunglyndislyfja
hjá sjúklingum sem eru 24 ára eða
yngri eykur líkurnar á sjálfsvíg-
um. Þetta kemur fram í nýrri
rannsóknaskýrslu bandarískra
heilbrigðisyfirvalda. Hins vegar á
hið öfuga við þegar sjúklingarnir
eru komnir yfir þrítugt.
Talsmenn bandaríska mat-
væla- og lyfjaeftirlitsins leggja
því til að merkingum á þunglynd-
islyfjum verði breytt, svo
viðvörun komi fram á umbúðum
lyfja sem ætluð eru börnum og
ungu fólki. Þar yrði jafnframt
mælt með því að sjúklingar á
öllum aldri væru undir eftirliti
sérfræðinga, sérstaklega við
upphaf lyfjameðferðar þegar
hættan á sjálfsvígi er mest.
Ungir líklegri
til sjálfsvíga