Fréttablaðið - 02.01.2007, Síða 6
Ólafur Ragnar Grímsson
forseti segir mikilvægt að stytta
vinnudaginn svo að foreldrar geti
betur sinnt börnum sínum.
Einnig þurfi að bregðast við
breytingum á loftslaginu og hækk-
andi sjávaryfirborði. Þetta kom
fram í áramótaávarpi hans á gaml-
ársdag.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra hafði málefni útlendinga að
umtalsefni í sínu ávarpi. Fjölgun
þeirra hér á landi sé einn angi
þeirrar þróunar sem alþjóðavæð-
ingin hefur haft í för með sér.
Hann talaði einnig um aukið
frjálsræði í efnahags- og viðskipta-
lífi og bættan hag launamanna og
fyrirtækja í landinu.
„Kapphlaupið um lífsins gæði,
langur og strangur vinnudagur,
kvaðir sem hvíla á foreldrunum,
kröfurnar sem gerðar eru – allt
hefur þetta dregið úr samvistum
foreldra og barna,“ sagði forsetinn
í ávarpi sínu.
„Börnin eru jafnvel skemur
með foreldrum sínum en kennur-
um sem taka við þeim árla morg-
uns og annast fullan vinnudag.
Mikilvægt er að stytta hinn langa
vinnudag og bæta þannig aðstöðu
foreldra til að sinna börnum
sínum.“
Hann sagðist einnig hafa ákveð-
ið að beita kröftum sínum til að
hrinda í framkvæmd þeirri hug-
sjón að Ísland verði miðstöð alþjóð-
legs samstarfs og samræðna um
hreinan orkubúskap jarðarbúa.
„Ekki verður lengur deilt um að
loftmengun skapar mannkyni nýja
ógn. Enginn sem finnur til ábyrgð-
ar getur lengur setið hjá,“ sagði
hann.
Geir H. Haarde sagði að mikil-
vægt væri fyrir okkur Íslendinga
að takast á við málefni útlendinga
á Íslandi með víðsýni að leiðar-
ljósi.
„Sjálfsagt er að við munum
fylgja fast eftir því eftirliti hér á
landi sem nauðsynlegt er til að
halda þeim fjarri okkar ströndum,
sem hingað vilja komast í annar-
legum eða ólögmætum tilgangi,“
sagði hann.
Hann nefndi einnig að afnám
hindrana og aukning frjálsræðis í
efnahags- og viðskiptalífi hefði
stækkað hagkerfi okkar um meira
en helming og kaupmáttur heimil-
anna hefði aukist enn meir.
„Við höfum enga ástæðu til ann-
ars en að vera bjartsýn og nýjustu
verðbólgutölur sýna að við erum á
réttri leið.“
Mikilvægt að stytta
vinnudag foreldra
Forseti Íslands vill stytta vinnudag svo að foreldrar geti betur sinnt börnum
sínum. Forsætisráðherra segir mikilvægt að takast á við málefni útlendinga á Ís-
landi. Þetta er meðal þess sem kom fram í ávörpum þeirra beggja á gamlársdag.
Sátt milli stéttarfélaga
um að ekki sé samkeppni um félags-
menn virðist hafa verið rofin, að
sögn Gunnars Páls Pálssonar, for-
manns VR.
Stjórnarmaður í Kjarafélagi
viðskiptafræðinga og hagfræðinga
birti grein nýlega þar sem hann
hvatti félagsmenn VR til að ganga
til liðs við Bandalag háskólamanna,
sem Kjarafélag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga tilheyrir.
Gunnar Páll telur að þetta sé í
fyrsta skipti sem stjórnarmaður í
öðru félagi hvetur til þess opinber-
lega að menn gangi úr einu félagi í
annað. Gunnar Páll segir að vilji
menn sækja að VR þá muni þeir
gjalda í sömu mynt og sækjast eftir
þeirra félagsmönnum. „Menn skulu
fara varlega að kasta steinum úr
glerhúsum.“
Heiða Björk Jósefsdóttir, for-
maður Kjarafélags viðskiptafræð-
inga og hagfræðinga, segir
umrædda grein hafa verið skrifaða
af einstaklingi og endurspegli ekki
skoðun félagsins. Aðspurð um sátt-
ina sem Gunnar Páll talar um seg-
ist Heiða ekki kannast við hana og
vísar til þess að félagafrelsi ríki á
Íslandi. „En ég tek fram að við
erum ekki að fara í neina baráttu
við VR.“
Halldóra Friðjónsdóttir, formað-
ur BHM, er hissa á að formaður VR
vísi á BHM og segir óheppilegt að
hann yfirfæri skoðanir stjórnar-
manns í aðildarfélagi á BHM sem
sé ekki í neinni útrás. „Við erum
ekki í því að, eins og hann orðar
það, stela félagsmönnum.“
Sátt rofin milli stéttarfélaga
Horfir þú á Áramótaskaupið?
Varstu ánægð(ur) með
Áramótaskaupið í ár?
Fálkaorðan var veitt á Bessastöðum í gær, eins
og venja er á nýársdag. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Gríms-
son, sæmdi fjórtán Íslendinga riddarakrossi fálkaorðunnar
fyrir framlag sitt til íslenskrar menningar og þjóðlífs.
Meðal annars fengu Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur
og athafnamaður, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla
Íslands, og Helga Steffensen brúðuleikari verðlaunin í ár.
„Það er ánægjulegt að þessi listgrein fái slíka virðingu og
sé talin með,“ segir Helga. „Ég tek við þessari viðurkenningu
fyrir hönd allra þeirra sem stunda þessa listgrein.“ Hún seg-
ist telja að þetta sé í fyrsta skipti sem fálkaorðan sé veitt
fyrir brúðuleik. „Þetta er tiltölulega ný listgrein, við sem
stundum hana erum enn frumkvöðlar.“
Að orðuveitingunni lokinni var árleg nýársmóttaka for-
seta Íslands á Bessastöðum fyrir ráðherra, hæstaréttardóm-
ara, alþingismenn, sendiherra, ræðismenn, forystumenn
ríkisstofnana og aðra gesti. Að sögn Örnólfs Thorssonar for-
setaritara komu nokkur hundruð manns í móttökuna.
Frambjóðendur Samfylking-
arinnar á Suðurlandi ákváðu að
dreifa sérstæðu jólakorti í
kjördæminu þessi jólin með
uppskriftum að jólasalati,
eftirrétti og betra Íslandi. Vakti
uppátækið mikla lukku að sögn
Björgvins G. Sigurðssonar alþing-
ismanns.
Betra Ísland er kynnt sem
kosningaréttur fyrir 300.000
Íslendinga og meðal hráefna er
jöfnuður, réttlæti og bræðralag.
„Eftir ár verðum við síðan
kannski í ríkisstjórn og þá verður
hugsanlega einhver önnur
uppskrift.“
Uppskrift að
betra Íslandi
Héraðsdómur Austur-
lands hefur dæmt karlmann á
sextugsaldri til að greiða 70
þúsund króna sekt fyrir að hafa
ruðst inn á vinnusvæði Bechtel á
álverslóð í Reyðarfirði, í ágúst
2006, og klippt í sundur víra í
girðingu sem afmarkar lóðina.
Maðurinn neitaði að fara af lóðinni
eftir að hafa framið eignaspjöllin
og lá vinna á svæðinu niðri í tvo
tíma.
Karlmaðurinn ruddist inn á
svæðið til að mótmæla byggingu
álvers á svæðinu. Fyrir dómi
viðurkenndi maðurinn að hafa gert
það sem hann var ákærður fyrir en
neitaði að það væri refsivert.
Olli eignaspjöll-
um á álverslóð
Þjóðhátíðarsjóður
auglýsir eftir umsóknum um
styrki úr sjóðnum á árinu 2007.
Tilgangur sjóðsins er að veita
styrki til stofnana og annarra
aðila, er hafa það verkefni að
vinna að varðveislu og vernd
þeirra verðmæta lands og
menningar, sem núverandi
kynslóð hefur tekið í arf.
Á næstu fimm árum, frá og
með árinu 2007, mun sjóðurinn
hafa um 20 milljónir króna á ári
til úthlutunar. Úthlutunum lýkur
að þeim tíma liðnum, eða árið
2011, og er þá reiknað með að
sjóðurinn hafi þegar úthlutað öllu
fé sínu í samræmi við tilgang
hans.
Auglýst eftir
umsóknum
Hrannar Pétursson,
upplýsingafulltrúi Alcan, segir að
þeir Hafnfirðingar sem vilja skila
mynd- og geisladisknum með
Björgvini Halldórssyni, sem
fyrirtækið sendi í um 7.200
eintökum inn á hvert heimili í
Hafnarfirði, geti farið með hann á
næsta pósthús og sent Alcan hann
sér að kostnaðarlausu. „Við getum
greitt sendingarkostnaðinn fyrir
þá sem vilja skila diskinum,“ segir
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Alcan, og undirstrikar að
fólk þurfi þá að láta það koma
fram á umslaginu að móttakandi
greiði sendingarkostnaðinn.
Að sögn Hrannars barst Alcan
einn diskur seinasta föstudag og
hefur átján diskum þá verið skilað
en meðlimir samtakanna Sól í
Straumi skiluðu sautján diskum
daginn áður.
Ókeypis skil á
diski Bó Hall
Kjartan Gunnarsson,
fráfarandi framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, lét af störfum
um áramótin eftir 26 ár í starfi.
Eftirmaður hans, Andri Óttarsson,
tók við 3. október síðastliðinn.
Kjartan, sem starfað hefur með
fjórum formönnum á þessu
tímabili, segir Sjálfstæðisflokkinn
í dag vera með öfluga stöðu og
sterka möguleika til þess að láta
áfram til sín taka.
Kjartan vildi ekki tjá sig um
starfslokin en aðspurður um hvað
tæki við sagði hann ekkert sérstakt
starf bíða sín. „Ég held bara áfram
að lifa mínu hægláta lífi.“
Kjartan hættur