Fréttablaðið - 02.01.2007, Page 8
Hersveitir sómölsku
bráðabirgðastjórnarinnar með
liðsstyrk eþíópískra skriðdreka og
orrustuþotna hafa fellt seinasta
vígi hreyfingar íslamista, þriðju
stærstu borg landsins, Kismayo,
að sögn forsætisráðherra bráða-
birgðastjórnarinnar, Ali Mohamed
Gedi.
Forsætisráðherrann hefur
lofað vígamönnum íslömsku her-
sveitanna sakaruppgjöf, gefi þeir
sig fram, en leiðtogar vígahóp-
anna verði að svara til saka.
Jafnframt boðaði forsætisráð-
herrann allsherjar afvopnun í
landinu, en nóg hefur verið til af
vopnum í Sómalíu eftir fimmtán
ára borgarastyrjöld. Vígamönnum
er jafnframt skylt að skila inn
vopnum sínum.
„Tími stríðsherranna í Sómalíu
er liðinn og ef við náum þeim, þá
afhendum við Bandaríkjamönnum
þá,“ sagði Gedi. Bráðabirgða-
stjórn, studd af Sameinuðu þjóð-
unum, hefur stjórnað landinu í
rúman áratug. Æðstaráð íslamista
tók völdin í höfuðborginni
Mógadisjú fyrir hálfu ári og
stefndi að því að gera Sómalíu að
ríki að íslömskum sið.
Íslamistar eiga enn afdrep
nærri landamærunum að Kenía,
en þeir yfirgáfu Mógadisjú frið-
samlega fyrir fáeinum dögum og
flýðu undan herliði bráðabirgða-
stjórnarinnar og eþíópísku her-
sveitunum.
Íslamistarnir hafa verið sakað-
ir um tengsl við al-Kaída, en þeir
hafa hafnað þeim ásökunum. Leið-
togar hryðjuverkahópa hafa hvatt
vígamenn íslamista til dáða og
hótað skærum í líkingu við þær
sem hrjá Írak um þessar mundir.
Stjórnvöld Bandaríkjanna hafa
verið beðin um aðstoð við eftirlit
með lofthelgi og landhelgi Sómalíu.
Heraflar bráðabirgðastjórnar-
innar og Sómalíu fjarlægðu
jarðsprengjur af hafnarsvæði Kis-
mayo.
Forseti Kenía hefur hvatt til
allsherjarfundar um ástandið í
Sómalíu og ráðamenn á Vestur-
löndum hafa þrýst á að herlið, leitt
af Afríkuríkjum, verði sent til
landsins til að koma á jafnvægi.
Síðasta vígi íslamista
tekið með hervaldi
Hersveitir bráðabirgðastjórnarinnar í Sómalíu náðu þriðju stærstu borg lands-
ins á sitt vald í gær. Forsætisráðherra lofar hermönnum íslamista sakaruppgjöf
og boðar afvopnun. Vígamenn hóta skærum í líkingu við óöldina í Írak.
Hvaða útvarpsstöð var lokað
í fyrradag?
Hver var valinn maður ársins
á Rás 2?
Hvaða undarlega jólagjöf
leyndist í einum pakka fram-
kvæmdastjóra ítalska knatt-
spyrnuliðsins Palermo?
Jólagjafir eru misjafnar
að verði, umfangi og gæðum og þeir
eru þó nokkrir sem eru svo heppnir
að fá nýja bíla í jólagjafir þó dregið
hafi úr slíku á undanförnum árum.
Egill Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Brimborgar, segir að almennt
sé desember ekki umsvifamikill
mánuður í bílasölu en að það komi
alltaf fyrir að einhverjir fái bíl í
jólagjöf. „Auðvitað getur verið erf-
itt fyrir okkur að meta til hvers bíl-
arnir eru keyptir en það hefur komið
fyrir að við erum beðnir um að setja
slaufur á bíla og þá er ekki um að
villast að bíllinn er ætlaður til gjaf-
ar.“
Egill segir þessi tilfelli vera 1-3 á
ári og séu stöðug á milli ára. „Fyrir
þessi jól gerðist líka það merkilega
atvik að við vorum beðnir að útbúa
gjafakort fyrir mann sem vildi gefa
móður sinni bíltúr á Ford GT sport-
bíl en sá bíll kostar 30 milljónir.“
Rúnar H. Bridde sölu- og mark-
aðsstjóri hjá Ingvari Helgasyni
segir mjög sjaldgæft að bílar séu
keyptir í jólagjafir en man eftir
einum bíl sem var keyptur fyrir
þessi jól sem var útbúinn sem gjöf.
„Í því tilviki var eiginmaðurinn að
gefa konu sinni bíl í jólagjöf.“
Hjá Bifreiðum og landbúnaðar-
vélum fengust þær upplýsingar að
sala á bílum til jólagjafa hefði
dregist saman á milli ára. Þó eru
alltaf einhverjir sem detta í lukku-
pottinn og fyrir þessi jól fékk kona
ein bifreið frá eiginmanni sínum
og er verðmæti bílsins á þriðju
milljón.
Sem dæmi um bíla sem keyptir
hafa verið í jólagjafir frá B&L má
nefna Renault, BMW og Hyundai
Sonata.
Fékk bíl fyrir rúmar tvær milljónir
Talsmanni neytenda
hefur borist kvörtun vegna
þjónustugjalds sem Velferðarsvið
Reykjavíkurborgar innheimtir af
þeim sem leigja á vegum Félags-
bústaða hf. Þetta er í fyrsta skipti
sem Gísli Tryggvason, talsmaður
neytenda, tekur fyrir mál sem
snýr að opinberri þjónustu.
Sem dæmi um upphæð þjón-
ustugjalds fyrir leigjanda Félags-
bústaða hf. má nefna 16.500 krónur
á mánuði og niðurgreiðir Reykja-
víkurborg tæp 60 prósent af þeirri
upphæð þannig að hver íbúi greið-
ir á milli 6.000–7.000 krónur á
mánuði.
Félagsbústaðir hf. senda sund-
urliðaðan gíróseðil til íbúa en þar
kemur fram að heildarupphæðin
skiptist í húsaleigu, gjald í hússjóð
og þjónustugjald. Í þjónustugjaldi
felst sólarhringsvakt, stjórnun,
skrifstofuhald og aðstaða í sam-
eiginlegu rými.
Gísli segist hafa ákveðið að
skoða þetta mál á grundvelli rétt-
mætis þjónustugjaldsins þar sem
opinberir aðilar innheimti gjöld af
öldruðum sem falli utan við þá
þjónustu sem Félagsbústaðir hf.
veita.
Gísli segir að gert sé ráð fyrir
að rekstur Félagsbústaða hf. sé
sjálfbær og engu að síður sé gert
ráð fyrir arði sem verja megi til
framkvæmda við frekari upp-
byggingar.
„Umdeilanlegt hvort opinberar
stofnanir eigi að skila arði en ef
þeim er ætlað það er fremur en
ella hægt að skoða starfsemi
þeirra frá neytendasjónarhóli.“
Kannar réttmæti
þjónustugjalda BæjarráðVestmannaeyjabæjar vill
endurbyggja skipalyftuna sem
skemmdist í október og hefur
óskað eftir því að við gerð
samgönguáætlunar verði gert ráð
fyrir kostnaðarþátttöku ríkisins í
enduruppbyggingunni.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Vestmannaeyjabæjar, telur að út
frá hafnarlögum sé ekkert því til
fyrirstöðu að ríkið taki á sig 60
prósent kostnaðar við endurbygg-
ingu skipalyftunnar í Vestmanna-
eyjahöfn sem sé forsenda þess að
bærinn geti ráðist í framkvæmdir.
Skipalyftan skemmdist í haust
þegar vír gaf sig með þeim
afleiðingum að mannvirkið
hrundi eins og spilaborg. Lyftan
er að öllum líkindum það illa
farin að það svarar ekki kostnaði
að laga hana í óbreyttri mynd að
sögn Elliða.
Ekki hefur verið hægt að taka
upp skip til að þjónusta í Vest-
mannaeyjum síðan lyftan
skemmdist þar sem hún var eina
upptökumannvirkið. „Allur
flotinn hér hefur þurft að sigla til
þjónustu annars staðar sem er
algjörlega ótækt.“
Vill endurreisa
skipalyftuna
Lögreglan í
Keflavík hugðist stöðva bifreið
sem var yfir löglegum hraða á
Sandgerðisvegi á laugardags-
kvöld. Ökumaðurinn sinnti ekki
stöðvunarmerkjum og ók undan
lögreglu áleiðis til Keflavíkur.
Fleiri lögreglubifreiðar tóku
þátt í eftirförinni og náðist að
stöðva ökumanninn á Hringbraut
skammt frá Mánatorgi í Keflavík.
Maðurinn, sem var allsgáður, gaf
þá skýringu að hann væri „tæpur
á punktum“, og átti þá við
refsipunkta í ökuferilskrá.
Sagðist með of
marga punkta
Rússi nokkur, sem
sakaður er um að hafa njósnað
fyrir ríkisstjórn sína í Kanada,
var á þriðjudag gerður brottræk-
ur með valdi frá Kanada.
Að sögn Stockwell Day,
almannavarnaráðherra Kanada,
var maðurinn, sem gekk undir
nafninu Paul William Hampel,
handtekinn í nóvember eftir að
upp komst að kanadískt fæðing-
arvottorð hans var falsað.
Maðurinn gaf yfirvöldum upp
þjóðerni sitt og nafn í skiptum
fyrir að þau tilkynntu fjölmiðl-
um ekki rétt nafn hans, því hann
óttaðist um öryggi sitt og
fjölskyldu sinnar.
Telja stjórnvöld hann vera
rússneskan njósnara á vegum
rússnesku leyniþjónustunnar og
fóru fram á að honum yrði
fyrirvaralaust vísað úr landi.
Rússi brottræk-
ur frá Kanada
Karlmaður á fertugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
að hafa að morgni 29. júlí
síðastliðins brotið gegn vald-
stjórninni. Maðurinn var þá
staddur fyrir utan skemmtistað-
inn Gullöldina við Hverafold í
Grafarvogi og er honum gefið að
sök að hafa hótað lögreglumanni
sem var þar við skyldustörf lífláti
og slegið hann í brjóstkassann. Á
hann að hafa haldið slíku atferli
áfram í lögreglubíl á leið til
lögreglustöðvarinnar við Hverfis-
götu og hótað öðrum lögreglu-
manni ítrekað lífláti.
Maðurinn er auk þess ákærður
fyrir umferðarlagabrot.
Hótaði lögreglu
ítrekað lífláti