Fréttablaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 10
 Einar K. Guð- finnsson sjávarútvegsráðherra hefur úthlutað níu styrkjum sam- tals að upphæð 25 milljónir króna úr samkeppnisdeild Verkefna- sjóðs sjávarútvegsins. Þrjátíu og þrjár umsóknir bár- ust sjóðnum og var sótt um sam- tals 117,5 milljónir króna. Jakob K. Kristjánsson, formað- ur stjórnar sjóðsins, segir verk- efnið hafa heppnast samkvæmt björtustu vonum. „Við fengum mjög mörg góð verkefni, það var vandi að velja úr þeim. Áherslan átti að vera á lífverurannsóknir og við tókum mið af því við ákvörðun úthlutunarinnar.“ Stjórn Verkefnasjóðsins mat tólf stærri verkefni og þrjú smærri afburðagóð. Ekki reynd- ist hægt að styrkja öll þau verk- efni og því var ákveðið við end- anlega forgangsröðun að sex stór verkefni og þrjú minni yrðu fyrir valinu að þessu sinni sem styrk- þegar. Verkefnin taka til átta mismunandi tegunda sjávarlíf- vera. Þrjú verkefni fengu fjögurra milljóna króna styrk; Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins til rannsóknar á stofnerfðafræði leturhumars á Íslandsmiðum, Líffræðistofnun HÍ fyrir kortlagn- ingu líffræðilegs fjölbreytileika þorsks með áherslu á atferli í tengslum við æxlun og far og Sjáv- arrannsóknarsetrið Vör við Breiða- fjörð vegna rannsóknar á útbreiðslu og þéttleika beitukóngs í Breiða- firði og Faxaflóa. Erla Björk Örnólfsdóttir er for- stöðumaður Sjávarrannsóknarset- ursins Varar og mun stýra verk- efninu. „Rannsóknin fer fram næsta sumar. Við erum að fara að skoða stofnstærð beitukóngs í Breiðafirði og Faxaflóa og hvar er skynsamlegt að fara til veiða. Þetta er mjög hagnýt rannsókn þar sem hún er tengd vinnslu í Breiðafirði sem vinnur beitukóng- inn.“ Hún segir styrkinn happafeng fyrir rannsóknarmenn. „Heildar- upphæðin sem sótt var um í sjóð- inn segir allt sem segja þarf um þörfina á svona sjóði.“ Sjávar- rannsóknarsetrið Vör var sett á laggirnar í maí síðastliðnum og leggur áherslu á rannsóknir á líf- ríki í Breiðafirði. 25 milljónir til níu rannsóknarverkefna Húsasmiðjan gaf Barnaspít- alanum nýverið 300.000 krónur en starfsmenn Húsasmiðjunnar ákváðu að styrkja Barnaspítala Hringsins í stað þess að gefa vinnufélögum sínum jólagjafir. Starfsmennirnir héldu böggla- uppboð á jólahlaðborði starfs- manna og yfirstjórn fyrirtækis- ins tvöfaldaði upphæðina sem safnaðist og var ákveðið að hún rynni til Barnaspítala Hringsins. Það var Jón Viðar Stefánsson, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar, sem afhenti þeim Önnu Ólafíu Sigurðardóttur, hjúkrunarfor- stjóra barnasviðs, og Ásgeiri Haraldssyni, sviðssstjóra lækningasviðs Barnaspítalans, gjöfina. Styrkir Barna- spítalann Stefnt er að því að stofna fagháskóla við Iðnskólann í Reykjavík. Baldur Gíslason, skóla- meistari Iðnskólans, vill sjá skól- ann fremstan í flokki við að fram- fylgja hugmyndafræði um þróun í skólastarfi sem Starfsnámsnefnd á vegum menntamálaráðherra setti fram fyrr á þessu ári. Þar var var meðal annars sett fram hug- mynd um stofnun fagháskóla á Íslandi. Baldur segir að í breytingum í samfélaginu felist tækifæri. „Ég fagna mjög hugmyndum Starfs- námsnefndar um fagháskóla. Við munum gera þær breytingar á skólanum sem þarf til að taka upp nám á fagháskólastigi án þess að rýra á nokkurn hátt það nám sem við erum nú með, þvert á móti tel ég að það muni eflast. Ég held að við sambýli framhaldsskólans og fagháskóla muni þeir styrkja hvor annan.“ Hvenær fagháskólastiginu verður hleypt af stokkunum er of snemmt að segja til um en að sögn Baldurs er töluvert síðan beiðni var lögð fyrir menntamálaráð- herra um að hefja slíkt skólastarf. „Við stefnum að því að hefja nám á fagháskólastigi í haust en höfum ekki fengið grænt ljós ennþá.“ Nú þegar er boðið upp á marg- víslegt nám í Iðnskólanum sem er á háskólastigi þar sem er krafist stúdentsprófs eða fagprófs við inntöku. „Við erum því þegar með greinar sem við getum byrjað með litlum fyrirvara. Aðeins þarf að breyta áherslum og vinnubrögð- um“, segir Baldur. Iðnskólinn verði fagháskóli Engar geymslur eru í Þjóðleikhúsinu við Hverfisgötu að heitið getur. Leikhúsið þarf að leigja geymslupláss á mörgum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn eru í stöðugum flutn- ingum á leikmunum og leikmynd- um sem er kostnaðarsamt og veldur skemmdum og óhagræði. Leikhússtjóri segir nauðsynlegt að byggja við Þjóðleikhúsið ætli það sér að uppfylla kröfur um nútímaleikhús. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóð- leikhússtjóri segir nauðsynlegt að byggja við Þjóðleikhúsið því aðstaðan sé með þeim hætti að hún miðist ekki við reksturinn. „Það vantar allt sem tilheyrir nútímaleikhúsi. Það þarf að byggja hliðarsvið til austurs og geymslu- pláss fyrir leikmuni og þjónustu- byggingu fyrir búningageymslu og saumastofu þar fyrir neðan.“ Vegna geymsluleysis þarf Þjóð- leikhúsið að leigja húsnæði á mörgum stöðum á höfuðborgar- svæðinu. Þetta veldur miklu óhag- ræði í störfum leikhússins. „Það er mjög slæmt að vera ekki með neinar nærgeymslur og að þurfa að keyra hluti á milli staða. Þess gerist jafnvel þörf að keyra muni á milli einstakra sýninga,“ segir Tinna. „Á meðan munir leikhúss- ins eru í þessum geymslum og fara þarf ferðir í hvert einasta skipti sem breytinga er þörf er lítið hægt að dvelja við í viðhaldi, sem væri hægt ef hlutirnir væru nær. Það þarf jafnvel að hluta allt niður í minni einingar til að koma því á milli staða. Svo er þetta mjög kostnaðarsamt vegna leigu.“ Innt eftir því hvort leikmunir eða leikmyndir hafi skemmst í flutningum segir Tinna að svo sé. „Ýmis dæmi eru um að leikmunir, húsgögn og leikmyndir hafi skemmst í þessum flutningum. Það liggur bara í hlutarins eðli. Þetta er ófremdarástand vegna þess að þetta eru lifandi geymslur þar sem munir eru í sífelldri end- urnotkun. Því betur sem við getum umgengist þessa hluti því betur nýtast þeir.“ Í skýrslu sem starfshópur um varð- veislu- og geymslumál menningar- stofnana sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra hefur látið vinna kemur fram að mat Þjóðleikhússins á geymslu- þörf sé um 1.500 fermetrar. Þörf er á rúmgóðri leikbúningageymslu, stórri leikmunageymslu með nauð- synlegum aðgengisbúnaði auk leik- myndageymslu og tækja- og skjala- geymslu. Nútímaleikhús þarf sérstakt geymsluhús Engar geymslur eru í Þjóðleikhúsinu og keyra þarf leikmuni og leikmyndir á milli borgarhluta. Flutningar valda skemmdum á munum, óhagræði og kostn- aði. Aðstaðan sögð ekki í samræmi við nútímaleikhús, segir þjóðleikhússtjóri. Hreinsunarstarfi í flutningaskipinu Wilson Muga lýkur á næstu dögum að sögn Hávars Sigurjónssonar, upplýs- ingafulltrúa Umhverfisstofnun- ar. Aðeins er eftir að hreinsa upp 10 til 15 tonn af olíu úr lest skipsins. „Nota þarf sérstaka skilju til að ná olíunni úr sjónum og verður henni dælt upp í tanka sem verða fluttir með þyrlu af skipinu.“ Að þessu loknu er bara eftir að fjarlægja skipið sem er á ábyrgð eigandans. „Það er ætlast til að búið verði að fjarlægja skipið innan sex mánaða en hann fær svigrúm til að gera áætlanir um hvernig hann ætli að standa að því. Við gerum ráð fyrir að hann leggi þær fram í janúar.“ Hreinsunar- starfi að ljúka Stöðug fjölgun hefur orðið í öllum stærstu heilbrigðisstéttunum miðað við íbúafjölda á tímabilinu 1981-2005. Þessi fjölgun á reyndar ekki við um sjúkraliða en þeim hefur fækkað hlutfallslega frá árinu 1998. Þetta er meðal þess sem fram kemur í samantekt Svanhildar Þorsteinsdóttur, verkefnisstjóra á heilbrigðistölfræðisviði hjá Landlæknisembættinu. Í samantektinni má sjá að starfandi hjúkrunarfræðingum hefur fjölgað úr 1.262 árið 1981 í 2.546 á síðasta ári. Þá fjölgaði læknum úr 509 í 1.104 á sama tíma- bili en sjúkraliðum fjölgar hlutfallslega minnst eða úr 910 árið 1981 í 1.474 árið 2004. Fleira heilbrigð- isstarfsfólk Tveir menn hafa verið dæmdir í þrjátíu daga skilorðs- bundið fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir að stela bíl á Patreksfirði í júlí árið 2003, keyra hann ölvaðir og eyðileggja hann. Mennirnir stálu bílnum eftir að hafa verið á dansleik á Patreksfirði og keyrðu hann að Ódrjúgshálsi í Djúpadal þar sem ökumaðurinn missti stjórn á honum þannig að hann lenti utan vegar og fór margar veltur niður snarbratta fjallshlíð. Ekki tókst að sanna að báðir mennirnir hefðu keyrt bílinn, þrátt fyrir að þeir hefðu sagt lögreglumönnum frá því á slysstað. Maðurinn sem keyrði bílinn var auk þess dæmdur til að greiða 50 þúsund krónur í sekt. Stálu bíl og eyðilögðu hann Lögreglan í Keflavík fékk tilkynningu um alvarlega líkamsárás fyrir utan veitingastað í bænum á fimmta tímanum aðfaranótt sunnudags. Þar var maður sleginn í höfuðið aftan frá með flösku og hlaut hann stóran og djúpan skurð á hnakkann. Hann var fluttur með sjúkrabíl á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja þar sem gert var að sárum hans en hann hlaut ekki lífshættulega áverka. Árásarmaðurinn var handtek- inn og vistaður í fangageymsl- um. Ekki er vitað hvert tilefni árásarinnar var. Hlaut djúpan skurð á hnakka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.