Fréttablaðið - 02.01.2007, Síða 12
Stefán Stefáns-
son, deildarstjóri í menntamála-
ráðuneytinu, segir að ráðuneytið
muni ráðstafa 70 milljónum króna
í styrki til íslenskukennslu fyrir
útlendinga í ár. Styrkirnir verða
auglýstir von bráðar. Verkefnis-
stjórn hafi verið sett á laggirnar
og unnið stíft. Vinna við nám-
skrárgerð og námsefnisgerð sé
þegar hafin og svo verði farið í
það að kanna menntun kennara. Í
tengslum við styrkveitingar verði
upplýsinga aflað til að nýta við
þessa vinnu.
Mímir - símenntun hefur þegar
ákveðið að lækka verð á íslensku-
námskeiði fyrir útlendinga um
rúmlega fimmtíu prósent. Fimm-
tíu stunda íslenskunámskeið kost-
ar ellefu þúsund krónur frá ára-
mótum en kostaði áður 23.300
krónur. Þetta er gert þó að ekki
liggi enn fyrir hvernig fjármögn-
un námskeiðanna verður hagað
eða hver eftirspurnin verður.
Hulda Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Mímis, segir að
ákvörðun um verðlækkunina hafi
verið tekin þó að ekki liggi enn
fyrir hvernig styrkjum frá ríkinu
verði hagað. Mímir þurfi að ganga
snemma frá upplýsingum um
námskeið á næstu önn. Nemendur
í íslensku fyrir útlendinga hafi
verið fimm hundruð talsins á síð-
ustu önn og svo stórum hóp sé ekki
hægt að halda í óvissu. „Við urðum
að ríða á vaðið,“ segir hún.
Útlendingar í Garðabæ, Mos-
fellsbæ og á Seltjarnarnesi hafa
sótt námskeið hjá Mími í samræmi
við samning Mímis við bæjarfé-
lögin en nú er stefnt að þeirri
breytingu að allir útlendingar geti
sótt námskeiðin óháð því hvar þeir
búa og verður gjaldið þá það
sama.
Íslenskunámskeið fyrir
útlendinga hafa yfirleitt verið
niðurgreidd af stéttarfélögum,
starfsmenntasjóðum verkalýðs-
hreyfingarinnar eða atvinnurek-
endum um fimmtíu til níutíu pró-
sent. Ekki er enn vitað hvort
reglurnar breytast í ár eða hvort
hlutfallið verður það sama. Nið-
urgreiðslan hefur verið þungur
baggi á sumum starfsmennta-
sjóðunum.
Þá eru símenntunarmiðstöðvar
úti á landi að hugsa sinn gang.
Guðrún Reykdal, framkvæmda-
stjóri Þekkingarnets Austurlands,
segir að ekki sé búið að verðleggja
námskeið á vorönn. Þau hafi verið
á 34–35 þúsund krónur í haust.
Þessi vinna hefjist nú í janúar.
Ráðstafa 70 milljónum
í íslenskukennslu í ár
Mímir símenntun ríður á vaðið og lækkar verð á íslenskunámskeiðum fyrir út-
lendinga um rúman helming þó að styrkir til kennslunnar liggi ekki enn fyrir.
Aðrar símenntunarmiðstöðvar hafa ekki ákveðið ennþá hvaða stefnu þær taka.
Verkalýðsfélag Akraness
hefur nú í tvígang gert könnun á
verði matarkörfunnar í matvöru-
verslunum á Akranesi. Matarkarf-
an var í báðum könnunum ódýrust
í Kaskó og dýrust í Grundavali.
Seinni könnunin, sem gerð
var 29. desember, sýndi að
matarkarfan kostaði
14.547 krónur í
Kaskó, 15.912 í
Krónunni, 15.965
krónur í Skaga-
veri og 17.471
krónu í Grundavali.
Í fyrri könnuninni
kostaði matarkarfan
10.505 krónur í Kaskó,
11.653 krónur í Skagaveri, 12.163
krónur í Krónunni og 13.591 krónu
í Grundavali.
Vörutegundir voru mun fleiri í
seinni könnuninni en þeirri fyrri,
eða þrjátíu og sex á móti tuttugu
og átta. Í seinni könnuninni
var meðaltalsverðið
tæpar 16 þúsund krónur
en í þeirri fyrri var
meðalverðið tæpar
12 þúsund krónur.
Aðeins var um verð-
samanburð að ræða
og er ekki lagt mat á
gæði eða þjónustu.
Verðkannanirnar eru
liður í reglulegum verð-
mælingum Verðlagseftirlits ASÍ
um allt land. Mælingarnar verða
gerðar reglulega fram á mitt
næsta ár til að fylgjast með þeim
breytingum sem verða á vöru-
verði á næstu mánuðum. Talið er
að þær geti skilað neytendum sex
til sjö milljörðum á ári í lægra
matarverði.
Verslun Einars Ólafssonar neit-
aði að taka þátt í könnununum.
Kaskó var með lægsta verðið á Akranesi
Styrktartónleikar
íslenskra popptónlistarmanna
fyrir Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna voru haldnir í átt-
unda sinn milli jóla og nýárs. Það
er Einar Bárðarson sem hafði veg
og vanda af tónleikahaldinu nú
sem áður. Voru félaginu afhentar
2,4 milljónir króna af þessu tilefni
og telst Einari til að samtals sé
fjárstyrkur síðustu átta ára far-
inn að nálgast 17 milljónir.
„Þetta er bara partur af hátíð-
arundirbúningnum hjá mér og
mér finnst þetta bara ómissandi.
Það er með eindæmum hvað
íslenskt tónlistarfólk er örlátt á
tíma sinn og hæfileika og ég verð
að segja að þetta árið var listi
flytjenda alveg óvenju glæsileg-
ur. Ég er mjög stoltur af þessu
verkefni og þakklátur öllum þeim
sem láta þetta verða að veruleika
á hverju ári með mér,“ segir Einar
Bárðarson.
Þess má geta að hljómsveitin
Sálin hans Jóns míns kom fram á
tónleikunum í áttunda sinn, og
hefur hún komið fram öll árin sem
tónleikarnir hafa verið haldnir.
Allir sem komið hafa að tónleika-
haldinu gefa vinnu sína til fulls.
Auk tónlistarmanna hefur
Háskólabíó lagt til aðstöðuna og
allir tæknimenn og aðrir starfs-
menn tónleikanna gefa vinnu
sína.
Árlega greinast að meðaltali
tíu til tólf börn og unglingar 18
ára og yngri með krabbamein á
Íslandi. Markmiðið með stofnun
SKB var meðal annars að styðja
við bakið á þeim og aðstandend-
um þeirra fjárhagslega og félags-
lega. Styrktartónleikar popptón-
listarmanna á undanförnum árum
hafa skipt miklu máli í starfi
félagsins.
17 milljónir hafa safnast síðustu átta ár
Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga hefur
óskað eftir upplýsingum frá
þremur sveitarfélögum um það
hvernig þau ætli að bregðast við
viðvarandi halla á rekstri
sveitarsjóðs og hver þróunin var
árið 2006 í samanburði við
fjárhagsáætlun ársins. Um er að
ræða Bolungarvíkurkaupstað,
Ísafjarðarkaupstað og Skaga-
fjörð.
Nefndin hefur kannað sérstak-
lega fjárhagsstöðu sveitarfélaga
á Austurlandi og lagt til við
sveitarstjórnir Breiðdalshrepps
og Djúpavogshrepps að þær
undirriti samning um fjárhags-
legar aðgerðir og eftirlit. Þá
verða fjármál Seyðisfjarðar
áfram til skoðunar vegna
viðvarandi halla. Fjármál
Vestmannaeyjabæjar hafa einnig
verið til skoðunar.
Þrjú beðin um
upplýsingar
Ólafur Ragnar
Grímsson forseti afhenti viður-
kenningu Alþjóðahúss, Vel að
verki staðið, 29. desember.
Viðurkenningin á að vekja athygli
á jákvæðu starfi sem unnið er hér
á landi í málefnum innflytjenda.
Viðurkenningin var veitt í fjórða
skipti.
Að þessu sinni fékk Morgun-
blaðið verðlaun fyrir vandaðar og
uppbyggilegar greinar um
málefni innflytjenda, séra
Miyako Þórðarson fyrir braut-
ryðjendastarf í þágu heyrnar-
lausra og Anna Guðrún Júlíus-
dóttir fyrir uppsetningu og vinnu
við Fjölmenningarvef barna.
Verðlaun fyrir
jákvætt starf
Jónína Bjartmarz
umhverfisráðherra bauð öllum
þeim sem tóku þátt í aðgerðum á
strandstað flutningaskipsins
Wilson Muuga til móttöku í
ráðherrabústaðnum við Tjarnar-
götu fyrir helgi. Tilefnið var að
fagna því að bráðaaðgerðum til að
forða mengunarslysi lauk á
fimmtudag, en þá var megninu af
olíunni í tönkum skipsins dælt úr
þeim. Alls tóku aðgerðirnar um
þrjátíu klukkustundir.
Um níutíu og fimm tonnum af
olíu var dælt í land en tíu til
fimmtán tonn eru eftir í skipinu.
Losun á þeim kallar á annars
konar aðgerðir.
Fagna lokum
bráðahreinsunar
Nítján manns létu
lífið vegna götuofbeldis í Rio de
Janeiro í Brasilíu síðustu daga
ársins 2006. Sá seinasti lést á
spítala í gær af brunasárum, en
hann var í langferðabíl sem
glæpamenn báru eld að. Sjö aðrir
létust af brunasárum sínum.
Lögregla sem réðst gegn
gengjum í fátækrahverfum banaði
fimm mönnum sem grunaðir voru
um að vera meðlimir glæpagengja
í tveggja klukkutíma löngum
skotbardaga í gærmorgun.
Viðbúnaður lögreglu hefur
verið aukinn vegna ofbeldisins í
fátækrahverfum borgarinnar.
Átta létust af
brunasárum