Fréttablaðið - 02.01.2007, Page 25
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Saga Lágafellskirkju nær aftur til ársins
1774 þegar Mosfells- og Gufunessókn-
ir voru sameinaðar með konunglegri
tilskipun.
Konunglega tilskipunin var reyndar aftur-
kölluð einungis tveimur árum seinna. Það
var ekki fyrr en rúmri öld síðar, árið 1886, að
Magnús Stephensen landshöfðingi skipaði
svo fyrir að sóknirnar skyldu sameinaðar.
Þar við sat og reis ný timburkirkja á stein-
grunni við Lágafell árið 1889. Þessi kirkja
stendur enn þó svo hún sé vart þekkjanleg í
dag, svo miklar hafa endurbæturnar verið.
Stærstu breytingarnar áttu sér stað árið
1956 þegar kirkjan var lengd um eina þrjá
metra og skrúðhús byggt norðan við kórinn.
Á hundrað ára afmæli kirkjunnar var aftur
ráðist í framkvæmdir en þá var ný viðbygg-
ing opnuð.
Mosfellskirkja tekur um 160 til 180 manns
í sæti. Sagan segir að fyrir nokkrum árum
hafi þáverandi kirkjuvörður, Jóhann S.
Björnsson, sýnt landsþekktum miðli skrúð-
húsið, kirkjugarðinn og kirkjuna sjálfa.
Þegar Jón bauð miðlinum sæti svaraði hún:
„Nei, því miður. Hér get ég hvergi sest. Hér
eru öll sæti upptekin af prúðbúnum og glað-
værum kirkjugestum.“
Heimildir: Heimasíða Kjalarnesprófasts-
dæmis.
Setið í hverju sæti
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
3,4%
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006
Nánari upplýsingar hjá lánafulltrúum Frjálsa
og á www.frjalsi.is, þar sem einnig er hægt
að reikna greiðslubyrði.
Lánstími alltað40 ár