Fréttablaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 41
ÍFréttablaðinu 11.12. svarar Jón Valur Jensson guðfræðingur grein minni í Fréttablaðinu 21.11. síðastliðinn er bar heitið Trú, trú- arbrögð og vísindi. Ég var farinn að halda að enginn af öllum þess- um „guðfræðingum“ þessa lands vildi tjá sig um þær fullyrðingar er ég sagðist hafa aflað mér og setti þarna fram. Jón Valur segir Guð lifandi og „persónulegan“. Lifandi er „hann“ efalaust, öll orka er lif- andi, minn skilningur er að „Guð“ sé orka sem innihaldi allt milli himins og jarðar, og að á himni og jörðu sé meira en heimspeki okkar geti ímyndað sér. Jón Valur gefur lítið fyrir full- yrðingar er ég sagðist hafa aflað mér og segir þær úr mínu eigin hugskoti, það er ekki svo, þó þær hljómi þægilega í eyrum mínum, eins og fullyrðingar „spámanna“ Biblíunnar láta í eyrum Jóns. Jón Valur segir mig gera tilraun að setja eitthvað fram sem ég álíti að sannleik. Eitthvað hefir grein mín farið illa í Jón og að ég spari ekki algyðisfullyrðingar um alheims- orku og sameðli allra hluta og að Guð hafni greinarmuni „rétts“ og „rangs“ og að enginn eigi yfir höfði sér eilífa útskúfun (í helvíti). Að segja að eitthvað sé rétt eða rangt er að segja hlutina svarta eða hvíta og ekkert þar á milli, þetta er kallað ofstæki í daglegu tali. Mér hefir heyrst að prestar og guðfræð- ingar hafi verið sammála um að Guð hafi gefið okkur frjálsan vilja, hvaðan hafa þeir fengið þá hug- mynd að þessi algóði Guð fari að senda okkur til Helvítis til að brenna í eilífum eldi, ef okkur tekst ekki vel upp í fyrstu tilraun okkar í lífinu, ekki hygg ég að Jón vildi fara þannig að með sín afkvæmi. Þær fullyrðingar er ég setti fram í grein minni eru úr bókaflokknum Samræður við Guð, ritaðar af Neale Donald Walsch, sú fyrsta kom út árið 1995, ég vísa á bók númer 4 er heitir Nýjar opinberan- ir. Þessar bækur eru í flestum bókasöfnum. Ég hvet alla er hafa áhuga á andlegum efnum að lesa þessar bækur, og sérstaklega presta og guðfræðinga svo að þeir geti kynnt sér það nýlegasta í þeim efnum, en séu ekki ennþá að grúska í eldgömlum sögnum og fullyrðing- um er voru settar í letur um 350 árum eftir að þeir atburðir áttu sér stað er verið er að tala um, það þarf ekki klukkutíma til að munnmæli fari algjörlega á hvolf í meðförum ólyginna hvað þá 350 ár. Ég er viss að hvorki Jón né nokkur annar fer í alda gömul skjöl til að afla sér nýjustu frétta um eitt og annað, þannig hlýtur það að vera í þessu tilfelli. Jón segir að tölusett atriði 1, 2, 4 og 5 í grein minni, rek- ist ekki á afstöðu hans (eftir því hvernig þau eru tekin) 1: Guð hefur aldrei hætt að tala við menn milliliðalaust, hefir gert það frá fyrstu tíð og gerir enn. Því skyldi hann ekki tala við mig, Jón eða Donald Walsch eins og fullyrt er í Biblíunni að hann hafi rætt við hina svokölluðu spámenn? 4: Guð þarfnast einskis, æskir einskis til að vera ánægður því hann er ánægjan sjálf. Þess vegna æskir hann einskis af neinum eða neinu í alheiminum. Hvaðan koma fullyrðingar um að við eigum að gera hitt og þetta til að þóknast Guði svo hann verði ánægður? 5: Guð er ekki einstök ofurvera sem lifir einhvers staðar í alheim- inum eða utan hans, og hefur ekki sömu tilfinningaþarfir eða býr við sama tilfinningarót og menn. Það- sem-Guð-er verður ekki sært eða skaddað á neinn veg og þarf því ekki að leita hefnda eða refsa. Þetta atriði segir Jón ekki rekast á afstöðu sína, eftir því hvernig það er tekið, (vantar skýringu) en skýt- ur sig svo óðara í fótinn með því að vitna í Bíblíuna og „spámennina“ þar sem Guð boðar refsingar og dóma til hægri og vinstri er hann komi að vitja sauða sinna, lifandi og einnig þeirra sem hafa legið í gröfum sínun síðustu 2000 ár (full- yrðingar Boðunar kirkjunarinnar). Jón segir að meginkenning um Guðdóminn sem ég set fram í grein minni og eru byggðar á fullyrðing- un fyrrnefndra bóka séu fjarri því að vera kristin, þar fór í verra, að nýlegar upplýsingar Guðs til Don- alds og okkar eru ekki kristin. Jón, hvað er að vera kristinn? Er það að halda sig við gamlar sagnir og afneita öllu öðru? Það þarf eitt- hvað mikið til að fólk geti komið sér saman til að lifa í sátt og sam- lyndi, þegar öllum þessum „trúarbrögðum“ er öll hafa gefist misilla er veifað framan í fólk og fólk drepið í millj- ónavís í krafti þeirra í gegnum ald- irnar og á síðustu dögum. Ég sé ekki að Jón eða aðrir guð- fræðingar verði þeir sættarar er duga meðan þeir halda sig við það að Biblían sé Guðs orð, bók sem var samansafn 350 ára munnmæla- sagna er valdhafar þeirra tíma létu safna saman til að geta tuktað eftir sínu höfði, hina guðhræddu og hjá- trúarfullu þegna sína. Biblían er að mínu áliti ekki orð Guðs frekar en að Íslendingasögurnar séu orð Guðs. Eftir lestur minn á bókunum Samræður við Guð annars vegar og hins vegar tilvitnanir presta í Biblí- una og lítilsháttar lestur að auki og lestur Kóransins sem ég hvet fólk að lesa, er borðliggjandi mikill munur á skilningi og framsetningu þessara rita hvernig við nálgumst lokatakmark okkar hér á jörðu sem er kærleikur og umgengni við allt og alla á þeim nótum, en ekki hams- laus trúarbragða og efnishyggja. Jón kallar grein mína „gagnsemis- hyggju“ (pragmatisma) og er ef til vill að gefa í skyn að um henti- stefnu sé að ræða sem láti þægi- lega í eyrum og að menn þurfi ekki að standa skil á gerðum sínum, þar sem þeir þurfi ekki að óttast reiði neins. Lífið er ekki svo einfalt, það byggist á orsökum og afleiðingum menn uppskera eins og þeir sá, menn dæma sig sjálfir með umgengni sinni, Kom þú fram við aðra eins og þú vilt að komið sé fram við þig, ef þú villt vera sjálf- um þér samkvæmur. Höfundur er leigubílstjóri í Keflavík. Glansmynd eða guðsmynd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.