Fréttablaðið - 02.01.2007, Page 45

Fréttablaðið - 02.01.2007, Page 45
Þú gengur í Bónusklúbbinn og færð einn tíma með einkaþjálfara sem kennir þér á tækin og lætur þig fá æfi ngaprógram. Einnig færð þú bol, vatnsfl ösku og Mættu til að vinna kortið. Láttu árið 2007 verða æfingaárið þitt! Hreyfing hjálpar þér að ná markmiðum þínum. 31. janúar er síðasti skráningardagur. Vertu með! Þú mætir a.m.k. einu sinni í viku út mánuðinn og færð vandað sporthandklæði. Þú heldur áfram að mæta a.m.k. einu sinni í viku næsta mánuð og færð fl ott hálsband fyrir lykla eða gsm-síma. Þú mætir áfram a.m.k. einu sinni í viku þriðja mánuðinn og færð í lokin vandaða íþróttatösku. Að þessu loknu ertu komin/n yfi r erfi tt byrjendatímabil og komin/n á beinu brautina í líkamsrækt. Leitaðu frekari upplýsinga á www.hreyfi ng.is eða í síma 414 4000. Það er ekki óvenjulegt að leikarar í Hollywood fái að halda einhverj- um leikmunum eða búningum eftir þegar á tökum á myndum er lokið. Halle Berry hefur greinilega feng- ið að halda gúmmíbúningnum sem hún klæddist sem Storm í X-Men myndunum, en hún greindi nýlega frá því í viðtali við Ebony Maga- zine að hún noti búninginn til að lífga upp á sambandið við kærast- ann Gabriel Aubry. Berry sagði víst að þó að persónan stundi ekki kynlíf í myndunum geri hún það oft heima hjá sér. Klæðist gúmmíi í rúminu Justin Timberlake neitaði að fara í leiklistartíma til að undirbúa sig fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Alpha Dog. Þess í stað ákvað hann að notast alfarið við þá þjálfun sem hann fékk sem krakki. Söngv- arinn kunni leikur mann sem ásakaður er um að myrða táninga. Hann er ánægður með að takast á við svo krefjandi hlutverk. „Ég lærði leiklist þegar ég var krakki og reyndi bara að nota það sem mest. Það virkaði vel,“ segir Tim- berlake sem leikur á móti Bruce Willis og Sharon Stone í mynd- inni. Neitaði að læra leiklist Bítillinn Sir Paul McCartney er einn af auðugustu mönn- um Bretlands. Þrátt fyrir það finnst honum hreinasta synd að eyða pening- unum sínum í rán- dýra antíkmuni. McCartney hefur þess í stað oft fundið sér stofustáss sem annað fólk hefur hent út í tunnu. Hann segist hafa fundið nokkra gull- mola undanfarið, til að mynda seglbát. „Ég er bara þannig náungi að ég kann ekki við að sjá hluti í ruslinu. Þegar ég geng fram hjá ruslatunnu hugsa ég oft hvort ég gæti ekki notað þetta eða hitt. Bara í gær þurfti að draga mig frá einni slíkri svo að ég færi ekki að gramsa,“ segir McCartney. Ríki Bítillinn gramsar í ruslinu Það hefur lítið heyrst frá banda- rísku rokksveitinni System of a Down síðustu mánuði. Sveitin sendi frá sér tvær vinsælar plötur árið 2005 en frá því um mitt síð- asta ár hefur bandið verið í pásu. Liðsmenn sveitarinnar segjast ekki hafa tekið ákvörðun um að hætta, en tónlistarleg framtíð þeirra sé óljós. John Dolmayan, Daron Mala- kian, Serj Tankian og Shavo Odadjian hafa ákveðið að vinna að eigin verkefnum um hríð. Söngv- arinn Tankian telur að þessi pása hafi verið löngu tímabær. „Mig hefur langað að gera sólóplötu í mörg ár en það hefur ekki gefist neinn tími. Síðustu ellefu ár höfum við allir verið kvæntir þessari hljómsveit og nú viljum við taka okkur hlé. Ég veit í raun ekki hvort System of a Down er búin að vera. Kannski mun okkur langa að gera aðra plötu eftir nokkur ár. Það er ómögulegt að segja núna. Við verðum bara að komast að því í framtíðinni.“ Óljós framtíð System of a Down

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.