Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2007, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 02.01.2007, Qupperneq 48
 Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00. SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt. Kúlan Smíðaverkstæðið kl. 20:00 PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker. Lau. 6/1 nokkur sæti laus, fös. 12/1 kl. 16:30 nokkur sæti laus, lau. 13/1 örfá sæti laus, lau. 20/1. Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis. Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is. STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1, lau. 27/1. SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson. Lau. 6/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus. BAKKYNJUR eftir Evrípídes 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1. Stóra sviðið kl. 20:00 fl group er aðalstyrktaraðili sinfóníuhljómsveitar íslands SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS græn tónleikaröð í háskólabíói Hljómsveitarstjóri ::: Christopher Warren-Green Einsöngvari ::: Þóra Einarsdóttir MIÐVIKUDAGINN 3. JANÚAR KL. 19.30 LAUS SÆTI Vínartónlist eftir Johann Strauss yngri, Johann Strauss eldri, Carl Millöcker og Richard Heuberger Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru í huga margra jafn ómissandi hluti af því að fagna nýju ári og flugeldar og brennur. Líklega verður uppselt á Vínartónleika venju samkvæmt og því er ráðlegt að tryggja sér miða í tíma á www.sinfonia.is tónleikar utan raða í háskólabíói FIMMTUDAGINN 4. JANÚAR KL. 19.30 LAUS SÆTI FÖSTUDAGINN 5. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS LAUGARDAGINN 6. JANÚAR KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS Vínartónleikar Njörður P. Njarðvík prófessor hlaut á dögunum menningarverð- laun Sænsk- íslenska menningar- sjóðsins. Sjóður þessi var stofnaður árið 1995 í kjölfar gjafar sænsku ríkis- stjórnarinnar til Íslendinga á fimmtíu ára lýðveldisári. Menningar- sjóðurinn var stofnaður skömmu síðar og hafa verið veitt verðlaun úr honum næstum annað hvert ár síðan. Í umsögn styrknefndarinnar er þess getið að Njörður hafi lagt mikið af mörkum til menningar- samskipta Íslands og Svíþjóðar, meðal annars verið mikilvirkur þýðandi sænskra og Finnlands- sænskra ljóða. Ennfremur var Njörður lektor í íslensku við Gautaborgarháskóla 1966–71 og gegndi þá jafnframt formennsku í samtökum erlendra lektora í Svíþjóð og sat í stjórn félags háskólakennara þar. Samtímis sinnti hann kennsluskyldu við háskólann í Lundi. Hann var for- maður Sænsk-íslenska félagsins á Íslandi 1971–75. Árið 2000 hlaut hann verðlaun Sænsku akademí- unnar fyrir kynningu á sænskri menningu erlendis. Hlotnast heiður 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Önnur sýning Söguloftsins í Land- námssetrinu í Borgarnesi leit dags- ins ljós á föstudag. Önnur sýning var á laugardagskvöld: Einar Kára- son og KK flytja þar Menn eru svona sem byggir að miklu leyti á minningum KK sem Einar skráði eftir honum sjálfum og fleirum og gaf út á bók 2002 og svo söngvum KK, bæði frumsömdum og sóttum í sjóði söngvaskáldsins. Þetta er dag- skrá sem teygir sig í tvo klukku- tíma, þægileg áheyrnar og skemmti- leg kvöldstund sem líður hratt. Söguloftið býr til eitthvað sem kalla má baðstofutilfinningu: á vörulofti er raðað tuttugu stólum undir súð í tveimur andstæðum röðum. Milli þeirra er langur gang- ur og stilla listamennirnir sér á andstæða enda hans, Einar gengur mikið inn gólfið og út meðan hann segir frá, nokkuð kvikur og var á köflum óöruggur, tafsaði og mis- mælti sig. Hvergi var honum gefið skjól í röðum áhorfenda hvorki til enda eða í miðju, afdrep þar sem hann gat sett sig niður, slakað á, talað úr annarri hlið yfir í hina, sem ég trúi að mætti reyna. Það gæfi frásagnarmanninum beint ávarp á helming salarins og hann talaði þá í skjóli hins. Það mætti ætla að svona einfalt form byði ekki upp á marga mögu- leika í flutningi. Það er rangt. Munnlegur flutningur skreyttur smá spili eða andsvari getur verið býsna snúið mál – aðeins stigbygg- ing munnlegrar frásagnar er list sem ekki öllum er gefin. Getur hver fundið það á sjálfum sér. Nú er Einar í sinn hóp fínn sögu- maður, hann er undraskjótur að bregða upp andrúmslofti og aðstæð- um, skissa upp helstu persónur. Frásögn hans af vesturför Kristj- áns Einarssonar lífslistamanns, völundar og verkfræðings með trygga eiginkonu og stóran barna- hóp, ber í sér marga ósagða kafla. Vitaskuld dvelur hann mest við Kristján sjálfan, teiknar hann upp hratt, en það eru útlínur, í persónu- myndinni verða flákar huldir; það vakna raunar fleiri spurningar en svarað er. Einar snýr sig alltaf haglega áfram á leiðinni, spinnur upp ný svæði, nýtt söguumhverfi. Hann berst ekki mikið á í frásögninni, höndlar stór örlög með úrdrætti, kaldhömruðum knöppum lýsing- um. Áhorfandanum verður oft hugsað til mannsins sem á móti situr, KK sjálfs, sem öll frásögnin snýst um: hvernig líður honum í þessari flökun og snyrtingu á færi- bandi frásagnarinnar? Inn skellir svo KK hugljúfum lögum sínum, riffinu sínu í marg- breytilegum blúsuðum tilbrigðum. Hann stendur einhvern veginn nær manni á sinn hógværa hugljúfa máta: yfirlýsing í sjálfum sér – svona slapp ég úr þessu. Hvort manni er boðin fægð mynd er áheyrandinn ekki viss um. Jafnvel slarkár niðri í Evrópu meðan Þór- unn kona hans sat heima í Svíþjóð verða sakleysislegar sögur þótt djús og hösl séu þá daglegt brauð í lífi hans. Báðum þeim feðgum voru gefnar konur sem umbáru brokk- genga ferð þeirra um táradalinn – þær verða samt ekki lifandi persónur í frásögninni heldur ein- hverjar huldur handan við líf lukk- uriddarans. En það er svona – frásagnar- menn velja sér hetjur – þess eru jú dæmi af löngum ævisögum karl- manna að konur þeirra fái hálfa línu, þótt þær hafi lagt til meira en hálft konungsríkið og höllina með, haldið veislu langa ævi og vaskað allt upp. Umfram allt verður þetta þægi- leg kvöldstund sem á eftir að slíp- ast til, fágast á fundum áheyrenda og sögumannanna. Á laugardags- kvöldið skemmtu gestir sér kon- unglega, kímnin hitti misjafnlega en þar tókust menn á loft í kostu- legum lýsingum á liðnum tíma þar sem Einar dró okkur frá föstum hugmyndum, kallaði beinlínis á endurskoðun í ljósi sögunnar. Blíða stillu, límið í söguna, setti svo KK inn svo hún hélst saman. Stundum tók Einar undir í söngnum en því var okkur ekki boðið að syngja með? Söguloftið er með markvissum hætti að vinna með einfaldasta dramatíska formið: söguna. Átthagafræði samkvæmt bók KK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.