Fréttablaðið - 02.01.2007, Page 49

Fréttablaðið - 02.01.2007, Page 49
GALLABUXUR frá 6.990,- NÚ 4.000,- 2stk. 6.000,- BOLIR frá 2.990,- NÚ 1.500,- 2stk. 2.000,- PEYSUR frá 4.990,- NÚ 2.500,- 2stk. 4.000,- SKYRTUR frá 4.990,- NÚ 2.500,- 2stk. 4.000,- JAKKAR 50%-70% afsláttur SKÓR 50%-70% afsláttur Ú Ú T T S S A A A A L L Ú T S A A L ÚT SA A L Þjóðverjar og gyðingar eru ugg- andi yfir nýrri mynd svissneska leikstjórans Dani Levy sem vænt- anleg er í kvikmyndahús á megin- landinu. Í mynd sinni gerir Levy stólpagrín að einræðisherranum en titill hennar „Mein Führer: Hinn sannasti sannleikur um Adolf Hitler“ ætti að gefa lesend- um vísbendingu um innihaldið. Þýski vefmiðillinn Deutsche Welle greinir frá því að í myndinni reyni Hitler til að mynda að kenna þýskum fjárhundi nasistakveðj- una og fari á hraðnámskeið í ræðu- list hjá leiklistarleiðbeinanda af gyðingaættum íklæddur heiðgul- um íþróttagalla. Leikstjórinn er sjálfur af gyðingaættum og ráð- færði hann sig við móður sína, sem sjálf var fórnarlamb helfar- arinnar, um hvort grínið færi yfir strikið. Svo var víst ekki raunin enda verður myndin frumsýnd nú í janúar. Móðirin ku þó hafa sagt að pilturinn ætti ekki að koma vælandi til sín ef gagnrýnendurn- ir grýttu einhverju í hann. Þjóðverjar hafa haft lítinn húmor fyrir Hitlersspéi en leik- stjórinn vill með verki sínu fella fyrrgreindan herra af stór- mennskustalli sínum og skýtur í skjóli þess að hann megi nota lúmskan gyðingahúmor í þeim til- gangi. Umdeilt Hitlersspé 30 31 1 2 3 4 5 Miðvikudaginn 3. janúar mun tón- smíðafélagið S.L.Á.T.U.R. halda lúðratónleika í Fríkirkjunni klukk- an 20. Saman er kominn hópur frumkvöðla í ný-sensjúalískum tón- smíðum. Um er að ræða 6 manna hóp flytjenda er leika á lúðra en tveir af þeim eiga einnig verk á tónleikunum. Flutt verður ný tón- list eftir Áka Ásgeirsson, Benedikt Hermann Hermannsson, Guðmund Stein Gunnarsson, Inga Garðar Erlendsson, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Pál Ivan Pálsson. Tónlistin er bæði framsækin og ómfögur, ágeng en vinaleg. Flytjendur eru Áki Ásgeirsson, Eiríkur Orri Ólafsson, Helgi Hrafn Jónsson, Ingi Garðar Erlendsson, Sigurður Már Valsson og Sturlaug- ur Björnsson. Öll verkin eru ein- ungis fyrir málmblásturshljóðfæri svo sem trompeta, básúnur, horn og túbu. S.L.Á.T.U.R. stendur fyrir Sam- tök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík og eru sam- tökin eldri en marga grunar. Um er að ræða hóp ungra og ágengra tón- skálda sem staðið hafa fyrir ýmsum uppákomum, árlegri sumarsól- stöðuhátíð auk ýmissa uppákoma í húsnæði félagsins að Hverfisgötu 32. Löng hefð hefur skapast hér á landi og víðar fyrir lúðratónleikum í kringum nýár. Þátttakendur hafa sína persónulegu sýn á viðfangs- efnið sem kann að koma nýstárlega fyrir sjónir oft á tíðum. Slátur í Fríkirkjunni

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.