Fréttablaðið - 02.01.2007, Síða 49
GALLABUXUR frá 6.990,- NÚ 4.000,- 2stk. 6.000,-
BOLIR frá 2.990,- NÚ 1.500,- 2stk. 2.000,-
PEYSUR frá 4.990,- NÚ 2.500,- 2stk. 4.000,-
SKYRTUR frá 4.990,- NÚ 2.500,- 2stk. 4.000,-
JAKKAR 50%-70% afsláttur
SKÓR 50%-70% afsláttur
Ú
Ú
T
T
S
S
A
A
A
A
L
L
Ú
T
S
A
A
L
ÚT
SA
A
L
Þjóðverjar og gyðingar eru ugg-
andi yfir nýrri mynd svissneska
leikstjórans Dani Levy sem vænt-
anleg er í kvikmyndahús á megin-
landinu. Í mynd sinni gerir Levy
stólpagrín að einræðisherranum
en titill hennar „Mein Führer:
Hinn sannasti sannleikur um
Adolf Hitler“ ætti að gefa lesend-
um vísbendingu um innihaldið.
Þýski vefmiðillinn Deutsche
Welle greinir frá því að í myndinni
reyni Hitler til að mynda að kenna
þýskum fjárhundi nasistakveðj-
una og fari á hraðnámskeið í ræðu-
list hjá leiklistarleiðbeinanda af
gyðingaættum íklæddur heiðgul-
um íþróttagalla. Leikstjórinn er
sjálfur af gyðingaættum og ráð-
færði hann sig við móður sína,
sem sjálf var fórnarlamb helfar-
arinnar, um hvort grínið færi yfir
strikið. Svo var víst ekki raunin
enda verður myndin frumsýnd nú
í janúar. Móðirin ku þó hafa sagt
að pilturinn ætti ekki að koma
vælandi til sín ef gagnrýnendurn-
ir grýttu einhverju í hann.
Þjóðverjar hafa haft lítinn
húmor fyrir Hitlersspéi en leik-
stjórinn vill með verki sínu fella
fyrrgreindan herra af stór-
mennskustalli sínum og skýtur í
skjóli þess að hann megi nota
lúmskan gyðingahúmor í þeim til-
gangi.
Umdeilt
Hitlersspé
30 31 1 2 3 4 5
Miðvikudaginn 3. janúar mun tón-
smíðafélagið S.L.Á.T.U.R. halda
lúðratónleika í Fríkirkjunni klukk-
an 20. Saman er kominn hópur
frumkvöðla í ný-sensjúalískum tón-
smíðum. Um er að ræða 6 manna
hóp flytjenda er leika á lúðra en
tveir af þeim eiga einnig verk á
tónleikunum. Flutt verður ný tón-
list eftir Áka Ásgeirsson, Benedikt
Hermann Hermannsson, Guðmund
Stein Gunnarsson, Inga Garðar
Erlendsson, Maríu Huld Markan
Sigfúsdóttur og Pál Ivan Pálsson.
Tónlistin er bæði framsækin og
ómfögur, ágeng en vinaleg.
Flytjendur eru Áki Ásgeirsson,
Eiríkur Orri Ólafsson, Helgi Hrafn
Jónsson, Ingi Garðar Erlendsson,
Sigurður Már Valsson og Sturlaug-
ur Björnsson. Öll verkin eru ein-
ungis fyrir málmblásturshljóðfæri
svo sem trompeta, básúnur, horn og
túbu.
S.L.Á.T.U.R. stendur fyrir Sam-
tök listrænt ágengra tónsmiða
umhverfis Reykjavík og eru sam-
tökin eldri en marga grunar. Um er
að ræða hóp ungra og ágengra tón-
skálda sem staðið hafa fyrir ýmsum
uppákomum, árlegri sumarsól-
stöðuhátíð auk ýmissa uppákoma í
húsnæði félagsins að Hverfisgötu
32.
Löng hefð hefur skapast hér á
landi og víðar fyrir lúðratónleikum
í kringum nýár. Þátttakendur hafa
sína persónulegu sýn á viðfangs-
efnið sem kann að koma nýstárlega
fyrir sjónir oft á tíðum.
Slátur í Fríkirkjunni