Fréttablaðið - 02.01.2007, Page 50
Máni kennir fjölbreytta og skemmtilega tíma
þar sem aðal markmiðið er að hreyfa sig og
hafa gaman af því.
Vertu með og láttu skrá þig strax í dag
í síma 414 4000 eða með tölvupósti
afgreidsla@hreyfi ng.is.
Nánari upplýsingar um námskeiðið er einnig
að fi nna á www.hreyfi ng.is Stott Pilates kerfi ð þjálfar fl ata og sterka kviðvöðva.
Jafnvægi á milli styrk- og teygjuæfi nga framkallar langa,
granna vöðva og auðveldar hreyfi ngar.
Stöðug áhersla á öndun bætir súrefnisfl æði í blóði, bætir
blóðfl æði til heilans sem eykur einbeitingu og vellíðan.
8 vikna námskeið hefst 8. janúar
Byrjenda- og framhaldshópar
Hefst 8. janúar
Renée Zellweger hefur strengt
það nýársheit að hafa betri stjórn
á ástarlífinu þetta árið. Zellweger
var á lausu allt síðasta ár eftir
hörmulegt ár þar á undan. Þá gift-
ist hún kántrísöngvaranum Kenny
Chesney en það hjónaband entist
einungis í fjóra mánuði. Nú ætlar
leikkonan að taka sig á. „Einkalíf-
ið verður í betri skorðum í ár. Svo
ætla ég að elda mikið og hugsa vel
um köttinn minn.“
Betra ár í
ástamálunum
Leikkonan Kate Beckinsale segist
hreinlega elska að sýna líkama
sinn. Nýlega var hún með annað
brjóstið úti
í viðtali við
japanskan
blaðamann
og nú við-
urkennir
hún fús-
lega að það
hafi ekki
verið í
fyrsta
skiptið.
„Ég held
reyndar að
ég hafi
skelft þennan blaðamann full
mikið,“ segir Beckinsale og hlær
að uppátækjunum í sjálfri sér.
Finnst gaman
að striplast
Nokkrum dögum fyrir jól
var kvikmyndaleikstjórinn
Gus Van Sant handtekinn
fyrir ölvunarakstur. Gus
bætist í stóran hóp frægðar-
menna sem tekin hafa verið
fyrir ölvunarakstur. Frétta-
blaðið rifjaði upp sögur af
frægum stútum við stýrið.
Sjónvarpsstjarnan Nicole Richie
var á dögunum tekin ölvuð á bíl,
en hún hafði þá keyrt á röngum
vegarhelmingi í dágóðan tíma.
Nicole neitaði auðvitað að hafa
verið ölvuð og sagðist hafa
verið nýbúin að taka verkjalyf,
sem hafi greinilega verið of
sterk. Þetta er í annað sinn
sem Nicole hefur verið
tekin, en áður var hún
tekin undir stýri með
kannabisefni í fórum
sínum. Nú gæti hún átt
yfir höfði sér fangelsis-
dóm.
Vinkonur Richie,
þær Tara Reid og
Paris Hilton, hafa
líka verið teknar
fyrir að keyra undir áhrifum.
Fleiri þokkagyðjur hafa lent í
óhöppum í umferðinni, en Halle
Berry stakk af eftir að hafa lent í
árekstri fyrir nokkrum árum.
Ekki er þó vitað hvort hún hafi þá
haft vín um hönd. Ólíklegri aðilar
hafa einnig verið teknir ölvaðir og
ber þar hæst barnastjörnuna
Haley Joel Osmond, sem var tek-
inn aðeins 17 ára gamall.
Kvikmyndaleikstjórar hafa gjarn-
an verið duglegir við að keyra
undir áhrifum en eins og
þekkt er var leikarinn og
leikstjórinn Mel Gibson
handtekinn í sumar eftir að
hafa þeyst um götur Malibu
ölvaður. Mel brást hinn
versti við þegar hann var
handtekinn og kenndi gyð-
ingum um allt saman,
líka stríð heimsbyggð-
arinnar. Oliver Stone
hefur í tvígang
verið handtekinn
undir stýri. Bæði
fullur og undir
áhrifum kanna-
bisefna, en í
seinna skiptið hafði
hann einnig efni í
fórum sínum. Nú síðast
var það Van Sant sem var hand-
tekinn.
Í Hollywood eru góð-
kunningjar lögreglunnar
til, eins og annars staðar.
Hasarmyndaleikarinn
Jean Claude Van
Damme var eitt sinn
þekktur fyrir heil-
brigðan lífsstíl og
hraustlegt viðmót, en
það breyttist fljótt eftir
að leikarinn var tekinn
ölvaður á bifreið sinni.
Í kjölfarið fór hann í
meðferð vegna fíknar
sinnar á kókaíni og
vinsældir hans dvínuðu
fljótt. Daniel Baldwin,
sem er elstur þeirra
Baldwin-bræðra, lenti
svo í því að deyja
áfengisdauða við
stýrið með þeim
afleiðingum að hann
klessti á. Þeir Robert
Downey Jr. og Nick
Nolte hafa einnig
gerst brotlegir, með
áfengi í annarri og
stýri í hinni.
Stórrreykingamaðurinn Harry
Bretaprins hefur ákveðið að
hætta að reykja nú um áramót-
in. Harry, sem er 22 ára, er
þekktur fyrir að reykja um það
bil pakka af sígarettum á hverju
kvöldi. Þessi ákvörðun hans er
talin munu gleðja Karl föður hans
mikið, en Karl hefur ætíð verið
mikið á móti reykingum sonar
síns.
„Harry reynir að
láta ekki sjá sig með
sígarettu á almanna-
færi. En bak við
luktar dyr og í
partíum er hann
alltaf með sígar-
ettu í kjaftinum.
Hann elskar að
fá sér í glas og
þetta virðist
fara vel saman
hjá honum. Pabbi
hans er alltaf að
skammast í honum
fyrir þetta,“
segir
heimildarmaður The Sun hjá kon-
ungsfjölskyldunni.
Harry prins byrjaði að reykja
þegar hann var 14 ára í Eton-skól-
anum. Ástæðan fyrir því að hann
ákveður að hætta núna er sú að
reykingabann verður sett í her-
num, þar sem Harry er liðsfor-
ingi, í mars. Þessa dagana er
Harry í Mósambík með kærustu
sinni, Chelsy Davy. Harry flýg-
ur heim á föstudag og þá kemst
hann að því hvort herfylki
verður sent til Írak.
Harry prins hættir að reykja