Fréttablaðið - 02.01.2007, Síða 56

Fréttablaðið - 02.01.2007, Síða 56
 Brett Favre felldi tár eftir leik Green Bay Packers og Chicago Bears í NFL-deildinni í ameríska fótboltanum á gamlársdag. Favre er fyrir löngu orðinn goðsögn hjá Packers. „Ef þetta er minn síðasti leikur, vil ég minnast hans vel. Þetta er erfitt. Ég elska þessa stráka, ég elska þessa íþrótt. Það yrði frá- bært að kveðja þessa íþrótt í þessu frábæra liði. Ég gæti ekki beðið um betri leið til að enda ferilinn,“ sagði Favre, sem neitaði að svara því hvort hann væri búinn að gera upp hug sinn hvort hann væri hættur eða ekki. Favre er á leiðinni í aðgerð vegna þrálátra meiðsla á ökkla en hann er aðeins sjö snertimarka- sendingum frá meti Dan Marino, sem eru 420 sendingar. Hann er einnig jafn Marino í öðru sæti yfir flesta unna leiki á ferlinum 147 talsins, og á aðeins einn leik í að jafna met Johns Elway. Favre er almennt talinn vera einn besti, litríkasti og skemmtilegasti leik- maður NFL-deildarinnar. Green Bay fær bæði nýjan þjálfara og nánast nýja sóknarlínu fyrir næsta ár og eftir erfiða aðgerð núna eftir tímabilið hjá Packers þarf Favre að ákveða hvort hann bindur enda á feril sinn eða heldur áfram í eitt tíma- bil til viðbótar. NFL-deildarkeppninni lauk um helgina og er æsispennandi úrslitakeppni fram undan. Fjögur lið sitja hjá í fyrstu umferð, San Diego Chargers, Baltimore Ravens, New Orleans Saints og Chicago Bears. Þessi fjögur lið koma svo inn eftir fyrstu umferð úrslitakeppninnar og taka þá við hefðbundin átta liða úrslit. Leikurinn um sjálfa Ofurskál- ina, „Superbowl“ fer svo fram sunnudaginn 4. febrúar í Flórída. Brett Favre að binda enda á glæstan feril Dwyane Wade er fædd- ur árið 1982 í Chicago en það var ekki fyrr en hann stækkaði um tíu sentimetra eftir fyrsta árið sitt í miðskóla að hann fór að sýna afburðahæfni í körfubolta. Hann er mjög trúaður og þakkar Guði fyrir alla sína hæfileika en hann bætti stigametið í skólanum sínum, H.L Richards í Chicago, á lokaári sínu þar þegar hann skor- aði 676 stig á einu tímabili, eða 27 stig að meðaltali í leik. Wade skar- aði einnig fram úr í frjálsíþróttum í skólanum. Wade fór svo í háskólann Marquette í Milwaukee þar sem hann spilaði ekki körfubolta fyrsta árið vegna vandræða í námi. Þegar hann gat byrjað að spila varð hann samstundis stigahæsti leikmaður Golden Eagles-háskólaliðsins með 17,8 stig að meðaltali í leik og hann bætti um betur tímabilið þar á eftir þegar hann leiddi Ernina í úrslit háskólakörfuboltans í fyrsta skipti síðan 1977 þegar hann skor- aði 21,5 stig að meðaltali. Eftir frábært tímabil var Wade svo valinn fimmti í nýliðavalinu í NBA þegar hann gekk í raðir Miami Heat, án þess að klára háskólann sem mun hengja upp treyjunúmer Wades í febrúar næstkomandi vegna magnaðs árangurs með skólanum. Í ungu liði Miami spilaði Wade vel á sínu fyrsta ári, skoraði sextán stig að meðaltali í leik, tók fjögur fráköst og sendi fjórar stoðsendingar að meðaltali í leik. Aðrir nýliðar stóðu sig þó enn betur og því var Wade í skugganum af þeim, sér- staklega LeBron James og Carm- elo Anthony. Eftir komu Shaquille O´Neal fyrir annað tímabil Wades, 2004- 2005 tímabilið, risu allar tölur kappans sem festi sig í sessi sem einn allra besti ungi leikmaður deildarinnar. Í fyrstu umferð úrslitakeppninnar 2005 varð Wade aðeins sjöundi leikmaðurinn í sögu NBA til að skora yfir 25 stig að meðaltali í leik. Í næstu umferð skoraði hann svo yfir 31 stig að meðaltali, meðal annars 40 og 36 stig í leikjum tvö og þrjú þrátt fyrir að spila fárveikur og meidd- ur á hné. Á tímabilinu á eftir, 2005-2006, var Wade enn og aftur magnaður, með 27,2 stig að meðaltali í leik í deildinni. Wade leiddi Miami svo alla leið í úrslitaeinvígið í NBA keppninni á síðasta tímabili þar sem liðið mætti Dallas Mavericks. Eftir tvö töp skoraði Wade 42, 36 og 43 stig í næstu þremur leikjum og kom Miami í forystu. Miami vann svo síðasta leikinn og þar með NBA-meistaratitilinn og var Wade valinn verðmætasti leik- maður úrslitakeppninnar. Í henni varð hann þriðji stigahæsti leik- maður í sögu NBA með 34,7 stig að meðaltali í leik. Á yfirstandandi tímabili er Wade svo á meðal stiga- hæstu leikmanna deildarinnar, með 27,5 stig að meðaltali, nú þegar tímabilið er hálfnað. „Hann sprengdi alla skala á árinu,“ segir Stan van Gundy, fyrr- um aðalþjálfari Miami og núver- andi ráðgjafi liðsins um Wade. „Í sex vikur spilaði hann leikinn nán- ast betur en nokkur annar hefur gert. Ég held að Michael Jordan hafi aldrei átt betri úrslitakeppni. Hann er besti leikmaður deildar- innar í dag, leiðtogahæfileikar hans gera hann að því. LeBron James, Kobe Bryant og Carmelo Anthony eru frábærir en Wade er bara bestur.“ Wade var nýlega valinn íþrótta- maður ársins af hinu virta tímariti Sports Illustrated, sem þykir mik- ill heiður, sér í lagi fyrir 24 ára gamlan strák sem hefur þó þegar náð að skara fram úr á sínu sviði. NBA-körfuboltinn sá nýja stjörnu skína hvað skærast á nýliðnu ári. Dwyane Wade átti ótrúlegt ár þar sem hann leiddi Miami Heat til meistaratitilsins. Wade hefur nánast alltaf staðið upp úr í körfuboltanum. Ítalíumeistarar Inter hyggjast styrkja miðjuna hjá sér og samkvæmt fjölmiðlum á Ítalíu líta þeir til spænska liðsins Real Madrid þar sem þeir hafa áhuga á að fá þá Mahamadou Diarra og David Beckham. Forráðamenn Al-Ittihad frá Sádi-Arabíu halda því fram að þeir muni fá Luis Figo frá Inter í næstu viku og ef það reynist rétt er líklegt að ítalska liðið fái sér nýja leikmenn á miðsvæðið. Diarra var keyptur til Real Madrid frá Lyon í sumar en eftir að hafa lent í deilum við Fabio Capello, þjálfara Madrídinga, var hann settur út úr liðinu. Hann lék ekki í 3-0 tapi fyrir Recreativo Huelva í kjölfarið en spænska liðið gaf út þá skýringu að leikmaðurinn var meiddur. Ætla að styrkja miðsvæðið Darren Williams, leikmaður Denver Broncos í ameríska fótboltanum, var skotinn til bana snemma á nýársmorgun. Williams var 24 ára og var farþegi í limósínu sem var að keyra um miðbæ Denver þegar skot sem kom frá manni í öðru ökutæki hitti hann. Tveir aðrir farþegar slösuðust í skotárásinni. „Við erum algjörlega orðlaus, þetta er hræðilegur harmleikur,“ sagði Jim Saccomano, talsmaður Broncos. Atburðurinn átti sér stað nokkrum klukkustundum eftir að Broncos töpuðu fyrir San Francisco 49ers í framlengdum leik og liðið komst því ekki í úrslitakeppni NFL-deildarinnar. Williams var á sínu öðru tímabili með Broncos en á árinu 2006 var hann fjórum sinnum í byrjunar- liðinu. Leikmaður skotinn til bana Phil Jagielka, leikmaður Sheffield United, hefur sagt að leikmenn Arsenal hafi neitað að taka í höndina á sér eftir óvæntan sigur Sheffield 1-0 í ensku úrvals- deildinni á laugardag. Jagielka leikur sem útispilari en hann þurfti að fara í markið í viðureign liðanna og náði að halda hreinu þær 35 mínútur sem hann lék þar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jagielka bregður sér í markið í miðjum leik og þegar Paddy Kenny, markvörður Sheffield United, þurfti að yfirgefa völlinn á 60. mínútu voru honum réttir hanskarnir. Þennan rúma hálftíma sem Jagielka stóð í markinu gekk Arsenal erfiðlega að láta reyna á hann og þurfti hann aðeins einu sinni að taka á honum stóra sínum, varði þá vel skot frá Robin van Persie. Heimamenn voru ekki sáttir við viðbrögð leikmanna Ars- enal eftir leikinn þó Jagielka segði að þau hefðu ekki komið sér á óvart. „Ef þeir vilja hegða sér eins og smákrakkar eigum við að leyfa þeim að vera stórir smákrakkar. Þetta er bara eitthvað sem við búumst við núna frá Arsenal, þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir hegða sér svona.“ Jagielka segir að Arsenal-menn hafi ekki sýnt íþróttamannslega framkomu eftir leik. „Þeir neituðu að taka í höndina á mér. Svona getur gerst þegar þú hefur svona marga erlenda leikmenn sem þekkja ekki hörkuna í enska bolt- anum. Auðvitað skil ég að það hafi verið þeim mikil vonbrigði að tapa leiknum en þeir hefðu mátt sýna íþróttamannslega hegðun eftir leikinn,“ sagði Jagielka. Leikmenn neituðu að taka í höndina á mér Stilian Petrov segir að Aston Villa gæti átt erfiða tíma fram undan á seinni helmingi tímabilsins ef liðið styrkir sig ekki í félagaskiptaglugganum. Villa heldur áfram að hrapa niður töfluna í ensku úrvalsdeildinni en í síðasta leik tapaði það fyrir Charlton og mætir Englands- meisturum Chelsea í kvöld. Liðið hefur ekki landað sigri í síðustu níu leikjum. Petrov var keyptur frá Celtic síðasta sumar en hann segir að Villa þurfi að fá fleiri leikmenn. „Okkur skortir ákveðinn stöðugleika því við virðumst bara spila vel annan hálfleikinn. Nú er félagaskiptaglugginn að opnast svo ég vona að knattspyrnustjór- inn og eigandinn fái nýja leikmenn til að gera okkur að betra liði. Þegar ég var fenginn til liðsins var sagt að metnaðurinn væri mikill svo ég bíð,“ sagði Petrov. Þarf að styrkja liðið talsvert

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.