Fréttablaðið - 02.01.2007, Qupperneq 62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
... fær Eiríkur Karlsson sem
staðið hefur vaktina í flugelda-
sölu Hjálparsveitar skáta í 38 ár.
„Það var bara afskaplega fín
stemning í stofunni hjá mér á gaml-
árskvöld,“ segir Þorsteinn Guð-
mundsson, leikari og einn af hand-
ritshöfundum Áramótaskaupsins.
„Þetta virðist að minnsta kosti hafa
fallið í kramið hjá mínu fólki. Ég
las á Vísi að um 97 prósent þjóðar-
innar hefðu horft á skaupið og held
að það sé frekar sundurleitur
hópur, þannig það er ekki hægt að
ætlast til að allir hafi haft
gaman af en ég hef hing-
að til bara fengið góð viðbrögð,“
segir Þorsteinn og bætir við að það
sé viss áfangi á ferlinum að búa til
áramótaskaup. „Þetta er kannski
eitthvað sem maður
þarf að ganga í
gegnum.“
Þorsteinn
skemmti lands-
mönnum ekki
aðeins í skaupinu á
gamlárskvöld því
fyrr um kvöld-
ið birtist
auglýsing
frá Kaup-
þingi þar
sem Þor-
steinn lék
á móti
enska
leikaranum John Cleese. „Við
fórum til Hollywood og gerðum
nokkrar auglýsingar með honum
fyrir jólin og ætlum að sýna
Íslendingum að minnsta kosti
þrjár auglýsingar með honum.“
Þorsteinn hefur lengi haft
dálæti á Cleese og viðurkennir að
það hafi verið dálítið stressandi að
hitta hann. „Þetta er goðsögn í
grínheiminum og hefur gert stór-
kostlega hluti. Hann er hins vegar
fínn í viðkynningu, dálítið alvar-
legur. Það kom mér á óvart hvað
hann tekur vinnuna gríðarlega
alvarlega. Vildi alltaf vera að bæta
handritið, tala um það og æfa sig.
Ég held ég hafi aldrei hitt jafn
mikinn fagmann, hann tekur grín-
inu ekki af neinni léttúð.“
John Cleese tekur grínið alvarlega
„Pjúsari nýtur unaðssemda hins
tæknivædda heims,“ segir Lára
Stefánsdóttir kennari, sem skipar
þriðja sæti á lista Samfylkingar-
innar í Norðausturkjördæmi fyrir
alþingiskosningar í vor og er jafn-
framt æviráðinn forseti íðilstjórn-
ar Pjúsarafélags Íslands.
Lára er titluð pjúsari í síma-
skránni, en samkvæmt heimasíðu
Pjúsarafélags Íslands, www.pjus.
is, er markmið félagsins að veita
núverandi og upprennandi pjúsur-
um stuðning til áframhaldandi
pjúss.
Félagið er sprottið upp úr upp-
hafi internetvæðingar Íslands.
„Ég tók þátt í því að stofna Íslenska
menntanetið á sínum tíma og barð-
ist fyrir því að það yrðu opnaðar
spjallrásir á Íslandi til að ungt
fólk úr hinum ýmsu skólum gæti
spjallað saman á netinu,“ segir
Lára.
„Mér fannst eðlilegt eins og
staðan var þá að ég liti til með
þeim og var því dálítið á spjallrás-
unum með þeim. Eitt kvöldið
kvaddi ég þau með orðunum:
Kúldrist nú og knúsist, partíist og
pjúsist. Þetta þótti þeim svona
rosalega fyndið og þau byrjuðu að
nota orðið „pjús“ í miklu magni,“
segir Lára.
Pjúsið þróaðist áfram og meðal
annars Lára samdi þjóðsöng pjús-
ara. Árið 1998 var Pjúsarafélag
Íslands loks formlega stofnað.
Margar hefðir eru innan félags-
ins og eiga pjúsarar sér meira að
segja eigin orðabók. „Við höldum
svo aðalfundinn okkar árlega á
Ruby Tuesday þar sem okkur ber
að panta alla eftirrétti á matseðl-
inum,“ segir Lára.
Lára skipar 3. sæti framboðs-
lista Samfylkingarinnar í Norð-
austurkjördæmi fyrir komandi
kosningar. „Það er sannarlega
kominn tími á pjúsara á þing,“
segir Lára. „Kúldur, knús, partí og
pjús munu aukast af miklum mun
í þingheimi.“
Lára hefur unnið við tölvur frá
því á níunda áratugnum og segir
marga vera hissa á því að mið-
aldra amma þekki eitthvað til
tækninnar. Aðspurð hvort hún
væri aldursforseti félagsins, segir
Lára það ekki vera mikilvægt í
augum pjúsara. „Aldur skiptir
okkur ekki máli. Við erum bara
nördar.“
Hvernig fannst þér Áramótaskaupið?