Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 4
MARKAÐURINN
á www.visir
alla daga
Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu mun leita til dóm-
stóla, verði ekki orðið við kröfu
hennar um að fá afhent gögn er
varða grunaða barnaníðinga.
Þetta kemur fram í greinar-
gerð lögreglunnar vegna umfjöll-
unar þáttarins Kompáss um kyn-
ferðisbrot gegn börnum. Í kjölfar
þáttarins þar sem mátti sjá Ágúst
Magnússon, dæmdan barnaníðing,
mæta til að hitta þrettán ára stúlku
sem hann hafði talið sig vera kom-
inn í samband við á netinu, hafa
Fangelsismálastofnun og lögregl-
an á höfuðborgarsvæðinu sent
greinargerð til dómsmálaráðu-
neytis, að beiðni ráðuneytisins.
Í greinargerð lögreglu kemur
fram að þáttargerðarmenn Komp-
áss hafi undir höndum upptökur
af fjórum til fimm öðrum einstakl-
ingum, sem svarað hafi auglýs-
ingu tálbeitu þáttarins með sama
hætti og Ágúst. Telur lögregla
almannahagsmuni krefjast þess
að þessar upplýsingar verði skoð-
aðar nánar og hefur því óskað eftir
að fá þær í hendur. Þáttargerðar-
mennirnir hafi neitað að afhenda
þær en óskað eftir skriflegri
beiðni frá lögreglunni af þessu til-
efni. Hún hefur verið send Stöð 2,
sem Kompás heyrir undir.
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
fréttastjóri Stöðvar 2, segir for-
ráðamenn stöðvarinnar vera að
fara yfir málið með lögmanni.
Engin ákvörðun hafi verið tekin
og gögnin verði í öllu falli ekki
afhent fyrir helgi.
Í greinargerð lögreglu segir
enn fremur að kynferðisbrotadeild
embættisins muni kanna ítarlega
hvort sú háttsemi Ágústs sem
rekja megi til frumkvæðis tálbeitu
á vegum Kompáss geti orðið
grundvöllur refsimáls. Einnig er
hafin rannsókn á meintum brotum
hans gagnvart fleiri einstakling-
um sem hann viðurkenndi í viðtali
sem birt var í þættinum.
Dómsmálaráðuneytið hefur
farið yfir niðurstöðu vistunarmáls
Ágústs á Vernd og telur að fang-
elsismálastjóri og lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu hafi gripið
til fullnægjandi aðgerða vegna
þessa einstaka tilviks. Telur ráðu-
neytið mikils virði að mótaðar hafi
verið reglur um miðlun upplýs-
inga á milli þessara tveggja emb-
ætta, sem eigi að tryggja sam-
ræmdar aðgerðir til að halda aftur
af síbrotamönnum og hindra eins
og kostur er að þeir brjóti gegn
því trausti sem þeim er sýnt.
Lögreglan krefst
gagna um níðinga
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur krafið Stöð 2 um gögn sem sýna fjóra eða
fimm meinta barnaníðinga sem komu til að hitta tálbeitu. Lögregla kveðst munu
leita til dómstóla, verði ekki orðið við kröfu hennar. Málið er í athugun hjá Stöð 2.
Umhverfisstofnun
hefur veitt eigendum flutninga-
skipsins Wilson Muuga frest til
mánaðamóta til að skila inn
áætlun um hreinsun eða brottnám
Wilson Muuga úr Hvalsnesfjöru í
Sandgerði.
Wilson Muuga er í eigu
Unistar Shipping Company, sem
aftur er að tæpum helmingi í
eigu Nesskipa. Tryggingafélag
skipsins hefur lýst yfir að það
muni ekki að greiða fyrir
hreinsun og brottflutning
skipsins nema sem nemur um
sjötíu milljónum króna.
Guðmundur Ásgeirsson,
stjórnarformaður Nesskipa,
hefur lýst yfir áhuga á því að
skipið standi áfram sem minnis-
merki í fjörunni. Hann segir að
ástandið á skipinu sé gott, það
standi eins og klettur í fjörunni.
Bæjarstjórnin í Sandgerði er
mótfallin því.
Fá frest fyrir
hreinsun Wil-
son Muuga
Tveir hópar áhugafólks
um bætt kjör eldri borgara og
öryrkja hafa í vikunni tilkynnt
framboð til alþingiskosninganna í
maí. Stefnumál framboðanna eru
þau sömu og samruni í stórt sam-
eiginlegt framboð er óskastaða
forsvarsmanna beggja framboð-
anna. Ekki kemur þó til greina af
þeirra hálfu að hætta við til að
ganga til liðs við hitt framboðið.
Baráttusamtök eldri borgara og
öryrkja tilkynntu framboð sitt í
gær. Samtökin eru sprottin af fund-
um tólf manna undirbúningshóps
sem skipaður var í byrjun janúar
af Félagi eldri borgara til að vinna
að framboðinu. Formaður samtak-
anna, Arndís H. Björnsdóttir, segir
ekki koma til greina að tvenn sam-
tök bjóði fram til komandi kosn-
inga. „Það er mjög slæmt ef fram-
boðin verða tvö og því þarf að
afstýra með öllu móti. Þeim er vel-
komið að tala við okkur því allir
eru velkomnir í okkar samtök.“
Áhugafólk um málefni aldraðra
og öryrkja tilkynntu á þriðjudag
að ákveðið væri að stofna framboð
fyrir kosningarnar. Arnþór Helga-
son, fyrrverandi formaður
Öryrkjabandalags Íslands, er í sex
manna undirbúningsnefnd. „Við
munum halda okkar striki. Ég ósk-
aði eftir að fá að mæta á
kynningarfund Arndísar og félaga
en því var hafnað. Hins vegar var
óskað eftir samstarfi. Ég vænti
þess að þetta fólk muni ganga í
okkar samtök þegar þau verða
stofnuð. Hvernig þau hafa staðið
að stofnun síns framboðs finnst
okkur í raun hlægilegt.“
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, krafði í
gær dómsmálaráðherra svara á
Alþingi um eðli leyniþjónustu-
starfsemi hjá lögreglu á síðustu
öld. Vísaði Steingrímur til
heimildar í stjórnarskrá til að óska
eftir upplýsingum frá ráðherrum.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra svaraði því til að hann gæti
ekki svarað fyrirspurn um
eitthvað sem hann vissi ekki, en
sagði svokallaða kaldastríðsnefnd
hugsanlega geta svarað spurning-
unni. Ekkert í stjórnarskrá
skyldaði ráðherra til að svara því
sem þeir ekki vissu.
Ekkert svar um
leyniþjónustu