Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 6
Fylgist þú með bandarískum
stjórnmálum?
Hefur þú verslað á útsölunum?
ÚTSALA
50%
ALLT AÐ
AFSLÁTTUR
Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og laugardaga: 11-16
Reykjavík - Akureyri - Egilsstaðir - Sími: 533 3500
Verð á geisladiskum er
almennt um 25 prósentum hærra
hér en á Norðurlöndunum. Verð-
munurinn á Íslandi og Bretlandi
er enn meiri, um 75 prósent.
Ástæður fyrir þessu háa geisla-
diskaverði hér á landi eru sagðar
vera fyrirkomulag og smæð tón-
listarmarkaðsins.
Fréttablaðið er um þessar
mundir að vinna verðkannanir á
ýmsum vörum hér á landi og í
nágrannalöndunum í þeim tilgangi
að sjá hver verðmunurinn er milli
landanna og reyna að grafast fyrir
um í hverju munurinn liggur. Í
þetta skipti er geisladiskaverð
tekið fyrir og þá sérstaklega disk-
urinn Modern Times með Bob
Dylan.
Verð á disknum var kannað í
geisladiskaverslunum í Reykja-
vík, Stokkhólmi, Ósló, Kaup-
mannahöfn og London. Sé miðað
við meðaltal af verði disksins á
Norðurlöndunum fæst að hann er
um 25 prósentum dýrari hér en
þar. Miðað við Bretland er hann
rúmlega 75 prósentum dýrari.
Sena er stærsti heildsali geisla-
diska á Íslandi og sér meðal annars
um heildsölu á tónlist til Skífunnar.
Björn Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Senu, segir hærra geisla-
diskaverð hér vera að mestu leyti
vegna fyrirkomulagsins á mark-
aðnum, sem sé allt annað en
erlendis.
„Í öðrum löndum eru plötu-
útgefendurnir flestir með skrif-
stofur og selja þaðan beint til smá-
sala. Hér er markaðurinn hins
vegar það lítill að útgáfufyrirtæk-
in leggja ekki í að halda úti skrif-
stofum og því bætist heildsalinn
við sem milliliður.“
Hann segir Senu kaupa geisla-
diska beint frá útgáfufyrirtækj-
unum og selja þá smásölum, með
álagningu. Björn vildi ekki gefa
upp hversu stór hlutur fyrirtækis-
ins af heildsöluverði væri
nákvæmlega en nefndi tölur sem
samsvara um 20 til 25 prósentum
af heildsöluverði.
„Okkar hlutur af heildsöluverði
þarf að dekka fjárbindingu, lager-
hald, starfsmenn og dreifingu svo
eitthvað sé nefnt,“ segir Björn.
„Þegar virðisaukaskattur af þess-
um vörum verður lækkaður síðar
á árinu geri ég ráð fyrir að verðið
verði samkeppnishæfara við lönd-
in í kringum okkur.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er algengur hlutur smá-
sala af útsöluverði geisladiska
einnig á bilinu 20 til 25 prósent.
Borgum fjórðungi
meira fyrir Dylan
Geisladiskar eru 25 prósentum dýrari hér en annars staðar á Norðurlöndum. Miðað við
Bretland eru þeir 75 prósentum dýrari. Framkvæmdastjóri Senu segir smæð markaðar-
ins hækka verðið. Virðisaukaskattslækkun ætti að gera Ísland samkeppnishæfara.
Ríkisstjórnin hefur
samþykkt stefnu um aðlögun inn-
flytjenda að íslensku samfélagi.
Þetta er gert til að tryggja að inn-
flytjendur njóti jafnra tækifæra
á við Íslendinga og verði virkir
þátttakendur í samfélaginu, sagði
Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra þegar hann kynnti
stefnuna í gær.
„Umræðan um útlendinga sem
koma hingað til lands hefur verið
mikil að undanförnu og að mörgu
leyti er það skiljanlegt,“ sagði
Magnús og bætti við að „margt í
þeirri umræðu hefði eflaust
betur verið ósagt“.
Innflytjendaráð vann að stefn-
unni og hafði þá helstu áherslur
ríkisstjórnarinnar í innflytjenda-
málum til hliðsjónar. Rík áhersla
er þar lögð á grunngildi íslensks
samfélags, svo sem mannrétt-
indi, en einnig á áþreifanlegri
atriði, til að mynda íslensku-
kennslu fyrir aðflutt börn og for-
eldra. Innflytjendur eiga að læra
samfélagsfræði en Íslendingar í
heilbrigðisþjónustu kynni sér
ólíka menningarheima.
Í stefnunni er einnig fjallað
um vinnumarkaðinn. Þar er til að
mynda stefnt að því að tryggja
betur að útlendingar njóti sömu
kjara og réttinda og aðrir.
Allir njóti jafnra tækifæra
Guðjón Arnar Kristj-
ánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, hefur sent frá sér
yfirlýsingu þar sem hann hafnar
ásökunum Sólborgar Öldu
Pétursdóttur, miðstjórnarfulltrúa
flokksins, í garð Magnúsar Þórs
Hafsteinssonar varaformanns.
Sólborg hefur fullyrt í fjölmiðlum
að trúnaðarbrestur hafi orðið á
milli miðstjórnar og þingflokks
Frjálslyndra þegar Nýtt afl
sameinaðist flokknum. Hún sagði
vinnubrögð þingflokksins
gerræðisleg og rógsherferð hefði
verið hrint af stað gegn Margréti
Sverrisdóttur.
Guðjón Arnar segir orð
Sólborgar ómakleg og ekki eiga
við rök að styðjast. Í yfirlýsing-
unni ítrekar hann stuðning sinn
við Magnús Þór í sæti varafor-
manns flokksins.
Ásökunum al-
farið hafnað
Vopnaður súdanskur
maður rændi Boeing 737-farþega-
þotu sem var flogið frá Kartúm,
höfuðborg Súdans, með 103
farþega og áhöfn innanborðs í
gær. Enginn slasaðist.
Flugræninginn krafðist þess að
flogið yrði til London en þegar
honum var tjáð að vélin hefði ekki
nóg eldsneyti til þess samþykkti
hann að fljúga til höfuðborgar
Tsjad, N´Djamena, þar sem hann
gafst upp. Þegar vélin lenti gekk
flugræninginn út úr vélinni og
óskaði hælis í Bretlandi. Ráða-
menn í Tsjad sögðu manninn vera
hryðjuverkamann og að réttað
yrði yfir honum sem slíkum.
Rændi flugvél
með 103 manns