Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 13
Stefnuræða
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta í gær hlaut blendnar viðtökur.
Það sem hann sagði um nauðsyn
þess að draga verulega úr notkun
á olíu og bensíni hlaut þó mun
betri viðtökur heldur en áform
hans um að fjölga í bandaríska
herliðinu í Írak. Það á bæði við
meðal þingmanna á Bandaríkja-
þingi og hjá stjórnmálamönnum
víða um heim.
„Hugmyndin um loftslags-
breytingar er loksins komin á
varir hans,“ sagði Barack Obama,
ein helsta stjarna Demókrata-
flokksins og einn þeirra sem ætla
að bjóða sig fram í forsetakosn-
ingunum árið 2008. „Það var löngu
orðið tímabært,“ bætti hann við.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagðist hafa fyllst
bjartsýni á þróun umhverfismála
eftir að hafa hlýtt á Bush flytja
ræðuna, en ýmsir sögðu Bush þó
engan veginn hafa talað nægilega
skýrt. „Þetta hefði getað verið enn
betra ef hann nefnt hvað banda-
rísk heimili og fyrirtæki þurfa að
gera,“ sagði til dæmis Connie
Hedegaard, umhverfisráðherra
Danmerkur.
Íraksáformin mættu hins vegar
sterkri andstöðu, einkum frá
demókrötum á Bandaríkjaþingi,
sem vinna að því að fá þingið til að
samþykkja ályktun gegn því að
fjölga hermönnum í Írak. Jafnvel
repúblikaninn Chuck Hagel, sem
hefur lýst stuðningi sínum við
þessa ályktun, sagði í gær: „Við
verðum öll að vita hvað við erum
að gera áður en við sendum 22
þúsund Bandaríkjamenn í viðbót í
þessa kvörn.“
Í stefnuræðunni hvatti Bush
þingmenn til þess að gefa Íraks-
áformum sínum tækifæri áður en
þeir hafni þeim. Í staðinn bauð
hann demókrötum samvinnu í
innanlandsmálum. Með ræðunni
tókst honum þó ekki að sannfæra
demókrata um Íraksmálið en þeir
vildu meira tala um það heldur en
hitt sem þeim fannst jákvætt í
ræðunni.
„Þótt forsetinn haldi áfram að
horfa framhjá vilja þjóðarinnar
munum við ekki horfa framhjá
misheppnaðri stefnu þessa for-
seta,“ sögðu demókratarnir Nancy
Pelosi, þingforseti fulltrúa-
deildarinnar, og Harry Reid, sem
er leiðtogi demókrata í öldunga-
deildinni, í sameiginlegri yfirlýs-
ingu sinni.
Stefnuræðan
hlýtur blendn-
ar viðtökur
Bush tókst ekki að sannfæra andstæðinga sína um
nauðsyn þess að senda fleiri hermenn til Íraks. Yfir-
lýsingar hans um orkumál og andrúmsloftið hlutu
mun betri viðtökur, bæði heima fyrir og erlendis.
Forseti Íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, átti í gær og fyrradag
fundi með forseta Indlands, dr. A.P.J.
Kalam, og Soniu Gandhi, leiðtoga Kong-
ress-flokksins.
Á báðum fundunum sögðu Kalam og
Gandhi að það væri ríkur vilji þeirra að
efla og styrkja tengslin við Ísland og efna
til samvinnu á mörgum sviðum, svo sem í
orkumálum, vísindum, tækni og viðskipt-
um.
Forseti Íslands þakkaði forseta Indlands
fyrir þann ríka og einlæga áhuga sem hann
sýndi samstarfi Íslendinga og Indverja.
Sonia Gandhi þakkaði Ólafi Ragnari fyrir vináttu hans við Indland.
Forseti fundaði með
Indlandsforseta
Björgunarsveitin Dag-
renning á Hólmavík var kölluð út
um klukkan fjögur í gærdag vegna
þakplatna sem voru að losna af
skemmu við bæinn Fell í Kollafirði.
Bálhvasst var á svæðinu og þegar
björgunarsveitarmenn komu á stað-
inn var þakið fokið af skemmunni
og hafði lent um 150 metra frá bygg-
ingunni. Skemman sjálf sprakk
síðar í veðurofsanum.
Björgunarsveitarmenn komu í
veg fyrir fok með aðstoð bænda,
auk þess sem þeir rifu niður veggi
sem eftir stóðu. Á Felli í Kollavík er
ekki búskapur en þar er rekið heim-
ili fyrir fatlaða einstaklinga. Þeir
voru að heiman.
Skemma fauk í Kollafirði