Fréttablaðið - 25.01.2007, Síða 22
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Hafliði Skúlason stundar
nám í golfvallarfræðum
við Elmwood College í
Skotlandi. Í síðustu viku
hlaut hann viðurkenningu
frá The Royal and Ancient
Golfclub of St. Andrews
sem er einn virtasti golf-
klúbbur heims.
Fyrir skömmu ákvað félagsfræð-
ingurinn Hafliði að breyta aðeins
til. Hann sagði upp starfi sínu við
útflutning og markaðsmál, stóð
upp frá tölvunni og skellti sér í
nám til Skotlands. Í dag sér hann
ekki eftir þeirri ákvörðun enda
blómstrar hann í golfvallarfræð-
unum. Svo mikið að á dögunum
hlaut hann hæstu viðurkenningu
sem Royal and Ancient golf-
klúbburinn veitir á hverju ári.
„Þetta er náttúrlega golfklúbb-
ur golfklúbbanna og þar af leið-
andi mikill heiður að hljóta viður-
kenningu þaðan,“ sagði Hafliði
þegar blaðamaður Fréttablaðsins
sló á þráðinn til Skotlands. Klúbb-
urinn styrkir ýmis verkefni víða
um heim sem tengjast golfíþrótt-
inni og á hverju ári hljóta útvaldir
nemar í golfvallarfræðum styrk.
„Allir nemendur fá umsóknar-
eyðublöð og geta sótt um styrk-
inn. Í umsókninni þarftu að svara
alls kyns flóknum spurningum og
leggja fram 500 orða greinargerð.
Svo er valið úr umsóknunum og
nokkrir boðaðir í viðtal í klúbb-
num hjá þriggja manna nefnd,“
segir Hafliði, sem var heldur
betur hissa þegar í ljós kom að
hann hefði hlotið styrk og ekki
bara einhvern styrk heldur
stærsta styrkinn sem í boði var.
„Það voru veittir tveir svokallaðir
UK-styrkir upp á 1.500 pund sem
komu í hlut Íra og Skota en styrk-
urinn sem ég hlaut var upp á 2.500
pund og kallast European schol-
arship,“ segir Hafliði og
viðurkennir að hann sé dálítið
montinn með sig. „Ég er rosalega
ánægður með þetta. Þeir sem ég
hef talað við hamast við að benda
mér á að peningarnir séu algjört
aukaatriði í þessu. Royal and
Ancient golfklúbburinn er mjög
virtur og þetta er viðurkenning
sem ég á eftir að búa að lengi,
mun lengur en peningarnir end-
ast. Þarna liggur líka heilmikil
vinna að baki. Það er ekki eins og
ég hafi unnið þetta í happdrætti
eða þeir hafi séð aumur á mér af
því ég er blankur Íslendingur,“
segir Hafliði og hlær.
Viðurkenningarathöfnin fór
fram um síðustu helgi í einu helg-
asta musteri golfsins – Klúbbhúsi
Royal and Ancient golfklúbbsins
í St. Andrews. Hafliði segir að
það hafi verið afar sérstakt að
koma inn í bygginguna enda fær
ekki hver sem er að stíga fæti
þar inn. „Aðeins meðlimir klúbbs-
ins fá að koma inn í húsið svo
þetta var svona eins og að fá inn-
göngu í Páfagarð. Klúbburinn
hefur verið starfræktur frá árinu
1754 og þarna inni er að finna
sögu golfsins næstum eins og hún
leggur sig. Þetta er klúbburinn
sem setti golfreglurnar sem allir
klúbbar í heiminum fara eftir,“
segir Hafliði, sem klæddist að
sjálfsögðu skoskum búningi við
viðurkenningarathöfnina. „Ég
leigði mér dress fyrir tilefnið,“
segir hann og bætir því við að
skotapilsið sé einstaklega þægi-
legur klæðnaður. „Ég held að
þróun síðbuxna hafi verið mikið
feilspor og skil ekki hvers vegna
karlmenn létu hafa sig út í að
taka þátt í henni.“
Hafliði er ánægður með námið
í Elmwood College enda er skól-
inn einn sá besti í heiminum
þegar kemur að golfvallarfræð-
um. „Skotarnir kunna þetta og
námið hefur verið mjög skemmti-
legt. Við lærum í rauninni allt
sem hægt er að læra um golfvelli,
allt frá fræðum um áburð og jarð-
veg upp í sögu golfvallanna,“
segir Hafliði, sem sér fram á
starfsframa á þessum vettvangi
þegar heim er komið. „Það eru
ekki margir Íslendingar með
þessa menntun og ég held áfram
að vinna fyrir Golfklúbb Kópa-
vogs og Garðabæjar þegar ég
kem heim. Það er alveg nauðsyn-
legt að breyta til annað slagið og
það væri óskandi að fleiri hefðu
kjark til að gera eitthvað svona.“
Hlaut hæstu viðurkenningu klúbbsins
Hjá LCN naglaskólanum er ekki
einungis boðið upp á nám í nagla-
ásetningu á íslensku heldur geta
erlendir nemendur einnig fengið
kennslu á rússnesku, þýsku og
ensku. „Það er mikið af útlending-
um í landinu og við höfðum áhuga
á að bjóða þeim upp á kennslu í
þessu fagi,“ segir Linda Sig. Aðal-
björnsdóttir, framkvæmdastjóri
skólans og eigandi snyrtistofunn-
ar Heilsa og fegurð.
Hugmyndin að kennslu fyrir
erlenda nemendur er komin frá
Anastasiu Pavlova sem starfar á
stofunni hjá Lindu. Anastasia er
rússnesk en hefur búið hér á landi
í þrettán ár. Hún er snyrti-, nagla-
og förðunarfræðingur og ekki nóg
með það heldur talar hún líka
íslensku, þýsku, ensku og rúss-
nesku reiprennandi. „Mig langaði
að gefa fleira fólki tækifæri á að
læra þetta fag. Ég þekki margar
erlendar konur hér á landi og veit
að margar hafa áhuga á að læra
eitthvað gagnlegt en koma sér
ekki í það vegna þess að kennslan
er á íslensku,“ segir Anastasia,
sem þekkir það vel sjálf að flytja á
milli landa. „Pabbi minn var sendi-
herra og ég hef búið í ýmsum lönd-
um. Ég er rússnesk en er fædd í
Austurríki. Við bjuggum líka í
þýskalandi í mörg ár og ég hef líka
búið í Bandaríkjunum. Svo kom ég
hingað til Íslands þegar pabbi
gerðist sendiherra hér,“ segir
Anastasia, sem er nú þegar komin
með tvo rússneska nemendur.
Eftir útskrift frá naglaskólan-
um hefur nemandinn rétt á að
kalla sig naglafræðing og Linda
segir að námið gefi mikla mögu-
leika. „Nemendur útskrifast með
diplóma sem er viðurkennt um
allan heim. Með það í höndunum
færðu vinnu sem naglafræðingur
á hvaða snyrtistofu sem er eða
getur sett upp þitt eigið fyrirtæki.
Þetta er því gott tækifæri fyrir
erlendar konur sem langar að
koma sér af stað í atvinnulífinu,“
segir Linda.
Naglaásetning á rússneskuMARKAÐURINN
Hafliði Helgason
í hádegisfréttu
Stöðvar 2
alla virka daga
Fjölgum
útlendingum
Hvar skyldu þau nú
vera?
Vökulir laganna
verðir
Fyrsta sinn í splitt á báðum