Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 31
Ákveðið hefur verið að skipta upp
fyrirtækinu Kreditkort hf. og
færa útgáfu greiðslukorta og
þjónustu við þau yfir í nýtt dóttur-
félag. Breytingin verður kynnt
nánar af hálfu fyrirtækisins í
dag.
Samkvæmt heimildum blaðsins
er ákvörðunin tekin að frumkvæði
eigenda fyrirtækisins og gerð með
hliðsjón af samkeppnisreglum.
Sérstaða Kreditkorts hf. meðal
greiðslumiðlunarfyrirtækja hefur
verið útgáfa eigin greiðslukorta,
en eftir breytinguna keppir fyrir-
tækið ekki lengur við bankana og
fleiri í útgáfu þeirra. Bankastofn-
anir hafa um árabil gefið út kort
sjálfar. Þannig gefur Visa ekki út
greiðslukort.
Samkeppnisyfirvöld eru með
greiðslukortamarkaðinn til skoð-
unar og þá sérstaklega yfirburða-
stöðu Kreditkorts hf., sem er með
MasterCard á sínum snærum og
Greiðslumiðlunar hf, sem er með
Visa, en ekki er vitað hvernær
henni muni ljúka.
Kreditkort hf. er í eigu Glitnis
banka sem á yfir helming í fyrir-
tækinu, Landsbanka Íslands sem á
um fimmtung og svo sparisjóð-
anna. Glitnir og Kaupþing sömdu í
sumar um skipti á eignarhlut
sínum í Greiðslumiðlun og Kredit-
korti.
Kreditkorti hf. verður skipt upp
Stofnað verður dótturfélag til að annast útgáfu og þjónustu vegna greiðslukorta.
Glitnir hefur gengið frá samning-
um um útgáfu skuldabréfa að
upphæð 500 milljónir evra, sem
jafngildir tæplega 45 milljörðum
íslenskra króna, á föstum vöxtum
sem nema 4,375 prósentum, með
gjalddaga árið 2010.
Fram kemur í tilkynningu
bankans til Kauphallar að þetta
sé fyrsta opinbera skuldabréfa-
útgáfa Glitnis í evrum frá því í
júní 2005. Íslensku bankarnir
hafa til þessa að mestu látið vera
að sækja fjármagn á Evrópu-
markað með þessum hætti eftir
þær sviptingar sem urðu á mörk-
uðum fyrri hluta síðasta árs, utan
tæplega 12 milljarða króna útgáfu
Kaupþings í Sviss fyrr í þessum
mánuði.
Umsjón með skuldabréfa-
útgáfu Glitnis var að þessu sinni í
höndum ABN Amro og Deutsche
Bank, en nær tvöföld umfram-
eftirspurn var eftir bréfum í
útboðinu. „Í viðtökunum sem
þetta skuldabréfaútboð fær felst
mikil hvatning,“ segir Tómas
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Glitnis, og telur
umræðu um íslenskt efnahagslíf
í meira jafnvægi en áður.
Glitnir gefur aftur
út bréf í Evrópu
Novator, fjárfestingarfélag í eigu
Björgólfs Thors Björgólfssonar,
hefur fengið bandaríska fjárfest-
ingarbankann Lehman Brothers
til ráðgjafar um hugsanlega sölu á
öllum hlutum félagsins í búlg-
arska símafyrirtækinu Bulgarian
Telecommunications Company,
BTC, sem var einkavætt fyrir
þremur árum. Ákvörðun liggur
ekki fyrir um hvort hluturinn
verði seldur.
Áhugi fjárfesta á BTC mun
hafa aukist eftir að Búlgaría gekk
í Evrópusambandið um síðustu
áramót en við það var fjármögnun
til fyrirtækjakaupa í landinu auð-
veldari en áður.
Novator á hluti í fjölda síma-
fyrirtækja víða í Evrópu, meðal
annars í Póllandi, Grikkland og í
Finnlandi. Þá átti félagið tékk-
neska símafélagið Ceske Radio-
kommunicace, CRa, en seldi hann
undir lok nóvember í fyrra.
Hluturinn í BTC, sem Novator
tryggði sér fyrir tveimur árum,
er stærsta eign fjárfestingafé-
lagsins í símafyrirtækjum í Evr-
ópu. Verðmæti þess hefur fimm-
faldast frá einkavæðingu og
nemur markaðsvirði þess nú um
1,7 milljóna evra, jafnvirði 152
milljarða íslenskra króna. Gera
má ráð fyrir að verðmæti hlutar
Novators í símafyrirtækinu hlaupi
á tæpum 99 milljörðum íslenskra
króna.
Novator skoðar sölu á BTC
Fjárfestingarbankinn Lehman Brothers gefur Novator ráð varðandi tilboð.Króatíska samheitalyfjafyrir-tækið Pliva hefur lagt fram kæru
á hendur HANFA, fjármálaeftir-
liti Króatíu.
Pliva upplýsti um málið í gær
og segir kæruna lagða fram í
kjölfar athugasemdar HANFA
um að fyrirtækið hafi haldið
verðmyndandi upplýsingum frá
hluthöfum á tímabilinu 13. til 17.
mars síðastliðinn. Upplýsingarnar
vörðuðu bréf Actavis til fyrir-
tækisins sem þá stefndi að
kaupum á því, sem Pliva segir að
hafi ekki falið í sér formlegt til-
boð og því ekki borið að upplýsa
um það strax. Formlegt boð hafi
borist 17. mars og þá frá því
greint ásamt þeirri staðreynd að
stjórninni þætti það óviðunandi.
Pliva segist fylgja tilmælum
HANFA og upplýsa þá sem kunna
að hafa selt bréf sín á umræddu
tímabili um niðurstöðu eftirlits-
ins.
Actavis reyndi fjandsamlega
yfirtöku á Pliva, en laut í lægra
haldi fyrir bandaríska lyfjarisan-
um Barr Pharmaceuticals í slagn-
um.
Pliva kærir HANFA
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is • Póstsendum um allt land
Tryggvabraut 1–3, Akureyri • Sími 460 3630
Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16 og sunnud. 12–16
Mótorhjólakerra 751, ver› áður 89.900 kr.
Nú 67.900 kr.
Daxara 238, ver› áður 238.000 kr.
Nú 177.900 kr.
Daxara 239X4, ver› áður 339.379 kr.
Nú 253.900 kr.aútsa
la