Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 35
Marc Jacobs sem oft er nefnd-
ur „grunge“-gúrúinn, opnar
nýja þemaverslun í London í
byrjun tískuvikunnar í London
sem hefst 12. febrúar.
Samtímis verður dömulínan ásamt
fylgihlutum, kynnt til sögunnar í
verslunarkeðjunni Selfridge á
meðan öll hönnunarlína Jacobs er
á boðstólum í þemaverslununni.
Marc Jacobs er kannski þekkt-
astur fyrir sinn sérstaka „grunge“-
stíl í bland við stílhreinan einfald-
leika ásamt því að endurskapa
hönnun Louis Vuitton tískuhússins
árið 1997.
Marc Jacobs er mikið uppáhald
stórstjarna á borð við Stellu Tenn-
ant, Liv Tyler, Charlotte Ramp-
ling, Sophiu Coppola og Jennifer
Lopez.
Hann er fæddur í New York
árið 1963 og ólst upp hjá ömmu
sinni sem kenndi honum að prjóna.
Amma hans prjónaði lokaverkefn-
ið hans frá Parsons School of
Design árið 1984, en með þeirri
línu vann hann hin þekktu hönnun-
arverðlaun Perry Ellis Golden
Thimble Award.
Hann byrjaði strax að hanna
undir eigin nafni og var ekki lengi
að ná toppnum í hönnunarheimin-
um.
Árið 1988 var hann ráðinn af
Perry Ellis og fékk þar gælunafn-
ið „grunge“-gúrúinn fyrir hönnun
sína árið 1992.
Jacobs hætti hjá Ellis ári síðar
og hóf að hanna undir eigin nafni á
ný árið 1994. Árið 1997 endurskap-
aði hann hönnun Louis Vuitton, en
einbeitir sér nú að eigin línu.
www.marcjacobs.com
Marc Jacobs opnar
búð í London
Sígild litasamsetning í heldur óvenjulegum
útsetningum.
Portúgalski fatahönnuðurinn Felipe Oliveira Baptista
var meðal þeirra sem sýndu verk sín í París nú á dög-
unum, en þar fer fram hver tískusýningin á fætur ann-
arri um þessar mundir.
Felipe er meðal rísandi stjarna í tískuheiminum um
þessar mundir, en hönnun hans þykir óvenjuleg og
áræðin. Hann leikur sér mikið með form og setur
þannig saman flíkur sem virka einfaldar
í fyrstu sýn en eru það ekki þegar betur
er að gáð.
Hestar virðast hafa átt sinn þátt í að
veita þessum framúrstefnulega hönnuði
innblástur fyrir næstu vor- og sumarlínu
hátískunnar í París, en undarleg höfuð-
föt og skófatnaður sem minnir á hófa
var meðal þess sem fyrirsætur á hans
vegum báru þegar þær tipluðu niður
pallana síðastliðinn mánudag.
Svarthvítar hetjur
NÝ SENDING
GLÆSIBÆ S: 553 7060
Skór &
fylgihlutir
GLÆSIBÆ