Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 42
Pottablómin geta verið
eymdarleg á þessum árstíma
þegar dagsbirtan hefur verið af
skornum skammti svo mánuð-
um skiptir. Þá koma silkiblóm-
in sterk inn.
Silkiblóm eru býsna raunveruleg
að sjá enda kemst silkið næst því
að líta út eins og lifandi blóm. Það
liggur við að maður fari að vökva!
Í Soldis í Blómavali og Euro-
pris er úrval af silkitrjám og silki-
blómum til að prýða með bæði
heimili og fyrirtæki. Fyrir utan
afskorin blóm og greinar til að
láta standa í vösum og skálum má
fá pálma, fíkustré, drekatré,
burkna og hengiplöntur. Blómstr-
andi pottablóm eins og pelargón-
íur, alparósir og ástareldur geta
fært lit og líf inn á heimilið og fyllt
upp tómið sem hið nýhorfna jóla-
skraut skapaði.
Vökvun allsendis óþörf
Allt of margir eiga allt of mikið af rúmfötum.
Af ókunnri ástæðu eiga margir það til að halda fast í
gömul rúmföt. Rúmfötin taka þar með skápapláss
sem væri betur varið til geymslu á öðru. Brún og
appelsínugul rúmföt frá 1978 liggja enn innan um
barnasængurver af sæng barns sem í dag er orðið 23
ára, koddaverin eru horfin yfir í aðra vídd og þetta
gerir lítið annað en að skapa óþarfa óreiðu á heimil-
inu.
Til að átta sig á því hversu mörg rúmföt við þurf-
um í raun og veru, er nægilegt að telja þau rúm sem
eru í reglulegri notkun á heimilinu og bæta við einu
rúmfatasetti á hvert rúm. Fyrir gesti dugar að hafa
eitt auka sett á hvert gestarúm. Ef það eru til dæmis
þrjú rúm sem eru notuð á hverri nóttu heima hjá þér,
og tvö gestarúm, þá áttu að eiga fimm sett af rúmföt-
um í rúmfataskápnum.
Í stað þess að vera með ósamstæð rúmföt er því
tilvalið að fjárfesta í góðum rúmfötum úr þínu uppá-
haldsefni (t.d. damask) og henda svo öllum gömlu
rúmfötunum út í tunnu eða gefa til góðgerðasamtaka.
Rúmföt frá 1985
w w w . u n i k a . i s
Fákafeni 9 Sími: 568 6700
mán-fös. 10-18, laug. 11-16 og sun 13-16
afsláttur af nýjum vörum
aðeins til föstudags
®
Útsala – Útsala
10-80% afsláttur af öllum vörum
Hægt er að sjá sýnishorn af því sem í boði
er á vefnum keramikgallery.is
Keramikgallery, Dalbrekku 14, 200 Kópavogur, s: 544-5504
Opið virka daga frá 10.00-18.00 – Lokað laugardaga
ÚTSALA!
ÚTSALA!