Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 43
Kartöfluættin er í þriðja sæti þeirra plöntuætta sem mannkynið
ræktar til matar. Í fyrsta sætinu er grasættin með allar sínar korn-
tegundir og í annað sætið fer ertublómaættin með ótal baunategund-
ir. Korn, baunir og kartöflur er undirstaða hins daglega brauðs fyrir
meginþorra alls fólks í heiminum og um 98% alls ræktunarlands fer
undir þennan jarðargróða. En það eru ekki bara kartöflur sem máli
skipta í kartöfluættinni. Til hennar teljast líka mikilvægar matjurtir
eins og eggaldin, paprika og tómatar. Og reyndar mun fleiri tegundir,
svo sem tóbak, sem ekki verða gerðar hér að umtalsefni. Hér fara á
eftir nokkur orð um tómata í framhaldssöguformi, því rýmið er tak-
markað.
Þegar Spánverjar gerðu sig heimakomna í Nýja-heiminum gættu
þeir grannt að lifnaðarháttum heimamanna þar og ekki síst að því
hvað innfæddir lögðu sér til munns. Fyrr en varði hafði Spánverjun-
um tekist að ná saman góðum lista af matjurtum sem óþekktar voru
Evrópumönnum á þeim tíma. Og það var ekki nóg með það, heldur
fengu þeir sýnishorn af öllu og fluttu til ræktunar í heimalandinu
austan Atlantshafs. Eina af þessum jurtum fengu þeir hjá Aztekum,
jurtkenndan hálfrunna með rauðum berjum á stærð við þrastaregg.
Aztekar kölluðu plöntuna „xitomatl“ en berin „tomatl“ – svona skrif-
að án þess að „ellið“ sé borið fram. Azteka-nafnið þýðir eiginlega
bara „þessi frískandi safaríku“ og forskeytið „xi“ – framborið „sjí“ er
tilvísun á plöntuna sem tómatarnir vaxa á. Flóknara er það ekki!
Tómat-nafnið eins og við notum það er sem sagt komið úr aztekamáli,
nánar tiltekið Nahuatl-mállýskunni, og hefur fleytt kerlingar inn í
flest tungumál veraldar og mun líklega sitja fast í íslenska orðaforð-
anum það sem eftir er, öllum að meinalausu vonandi.
Uppruni tómataræktunar er ekki alveg augljós. Eins og kartaflan og
paprikan voru tómatar til í mörgum gerðum þegar Spánverjar komu
að. Margt virðist benda til að ræktun á tómötum hafi byrjað á ýmsum
stöðum, nokkurn veginn sjálfstætt. Útbreiðsla tegundarinnar sem er
meginuppistaðan í genamengi ræktaðra tómata nær frá Mexíkó til
háfjalladala í Perú og fer í gegn um útbreiðslusvæði annarra
náskyldra tegunda sem hún blandast auðveldlega. En upprunalega er
um tvær deilitegundir að ræða. Á norðursvæðinu, þ.e. í Mexíkó, bera
tómatplönturnar stóra klasa með smágerðum, allt að því hnöttóttum
tómötum. Þaðan eru „kirsiberjatómatar“ komnir. Í Perú bera klasarn-
ir stærri og ögn ílengri tómata, þeir eru af „plómugerðinni“. Um allt
svæðið þarna á milli voru til tómatar af margvíslegri stærð, lögun og
lit. En stórir tómatar sem líktust „bufftómötum“ munu líka hafa verið
komnir fram sem stökkbreyting í ræktuðum tómötum á því svæði
sem nú er Panama og Hondúras áður en Spánverjar komu til sögunn-
ar, en þessir tómatar komu ekki inn í ræktunarsögu alls heimsins
fyrr en öldum síðar.
Tómatarnir sem Spánverjar komu fyrst með til Evrópu árið 1520
voru „kirsiberjatómatar“ og í fyrstu voru þeir einkum ræktaðir til
skrauts og sýningar, enda þótt vel væri staðið að því að kynna þessa
nýju guðsgjöf. Fólk var tregt til að borða framandi ávöxt af plöntu
sem hafði orð á sér að vera vera ögn eitruð eins og þær tegundir
sömu ættkvíslar sem menn þekktu í Gamla-heiminum. En í nýlendum
Spánverja var tómötunum tekið höndum tveim umsvifalaust. Ítalir
höfðu orðið sér úti um tómatfræ strax í upphafi sextándu aldar og
fóru lengri leiðina, því þeir fengu fyrst gula tómata frá Tyrklandi,
hvernig svo sem Tyrkirnir komust yfir þá. Á Ítalíu ríkti ekki sami ótt-
inn við hið ókunna. Ítalirnir nefndu tómatana „pomi di oro“, gullepli,
eftir gula litnum og síðan hafa allir tómatar heitið „pomodoro“ á
ítölsku, hinn tyrkneski uppruni hafði slitið tengsl við tómatnafnið.
Ítalir voru orðnir meistarar í tómatamatseld á tiltölulega stuttum
tíma. Og að sjálfsögðu bárust þeim líka rauðir tómatar vestan frá
Spáni ásamt uppskriftum að því hvernig væri best að matreiða þá:
Fyrsta matreiðslubókin með tómatréttum kom svo út í Napólí árið
1692 og er sögð undir sterkum spænskum áhrifum. Við þessi tímamót
má segja að saga tómatanna í nútímanum hefjist. Meira um það í
næsta pistli.
Gerið góð kaup, mörg húsgögn undir kostnaðarverði,
full búð af nýjum vörum á tilboði.
Útsala
10-70% afsl.
39.900 kr 13.500 kr Frá 16.900 kr 34.000 kr
PARKET & GÓLF
ÁRMÚLI 23
108 REYKJAVÍK
SÍMI: 568 1888
FAX: 568 1866
WWW.PARKETGOLF.IS
PARKET@PARKETGOLF.IS
ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI