Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 48

Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 48
 { húsbyggjandinn } 4 Eins og staðan er núna er lítið um lóðaframboð á höfuðborgarsvæðinu en flest bæjarfélög eru nýbúin að hafa útboð. Í Hafnarfirði er þó ýmis- legt í undirbúningi og ekki langt í næsta útboð. „Eins og er eru engar lóðir lausar, en mikið í byggingu sem nýlega hefur verið úthlutað. Stefnt er að því að úthluta u.þ.b. 150 einbýl- ishúsalóðum, 100 raðhúsalóðum og lóðum fyrir um 160 íbúðir í fjölbýli með vorinu. Siðar á árinu er stefnt að úthlutun u.þ.b. 150 einbýlishúsalóða, 120 raðhúsalóða og lóðum fyrir u.þ.b. 50 íbúðir í fjölbýli. Auk þess erum við að úthluta lóðum fyrir atvinnu- húsnæðí á stórum iðnaðarsvæðum í suðurhluta bæjarins,“ sagði Bjarki Jóhannesson, sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðar. Í Reykjanesbæ hefur úthlutun verið mikil síðustu ár, og úthlutað lóðum undir 1800 íbúðir. Samkvæmt upplýsingum frá bæjaryfirvöldum er verið að ljúka uppbyggingu þriggja hverfa. Enn eru um 40 lóðir lausar í þeim hverfum. Í skipulagningu er hins vegar 700 íbúða hverfi og verður lóðum þar úthlutað á þessu ári. Stefna bæjarins er að hafa ávallt nægt fram- boð af lóðum. - egm Mikið í bygg- ingu í Hafn- arfirði og í Reykjanesbæ „Þetta er rosalega vinsælt og fleiri með arin á heimili sínu en margir halda,“ segir Magn- ús Böðvarsson sem starfar hjá Ákasti. „Þó að hús sé ekki steypt upp með skorstein er alltaf hægt að setja arin í það eftir á og það halda áfram að koma arnar í gömul hús.” Aðspurður segir Magnús að í langflest- um tilfellum sé það ekki mikið vandamál að finna leið til að setja upp arin á heimilum. „Það þarf náttúrulega að vera hægt að koma upp skorsteini og ef það er ekki önnur hæð á húsinu þá er það ekki mikið mál. Settur er upp stál-skorsteinn ef ekki er skorsteinn fyrir. Ég hef enn ekki lent í þeim vandamál- um að ekki sé hægt að finna leið til að koma arni fyrir,“ segir Magnús. „Svo er það spurningin hvernig arinn það er sem fólk vill, inni í eldhólfinu er aðeins um tvennt að velja. Það er gamli múrstein- ninn eða grásteinn sem er íslenskur svart- ur náttúrusteinn. Fólk þarf að velja á milli þessara tegunda en í 90 prósent tilfella í dag velur fólk grásteininn. Hann er hins vegar mikið dýrari en múrsteinninn. Fólk hefur sínar hugmyndir um hvernig arin það vill en ég sé um að hanna innvolsið, ef fólk hefur hugmyndir sem ekki eru mögulegar þá segi ég því það hreint út.“ Ákast tekur að sér að smíða arna eftir teikningum arkitekta, verkkaupa eða eigin hönnun. Fyrirtækið sér um að útvega allt það efni sem þarf í arininn og gerir föst til- boð. Hægt er að kaupa alls konar aukahluti fyrir arnana, meðal annars í versluninni Arinvörum á Krókhálsi. Meðal aukahluta sem þar fást má nefna neistagrindur, ösku- skúffur, hreinsiefni, trekkspjaldastillingar og kubbagrindur í eldhólf. Ákast mælir á heimasíðu sínni með öskuskúffum. Þær gera það að verkum að arinninn er notaður miklu meira. Fyrirtækið býður annars vegar upp á skúffu á hjólum sem rennur undir arininn og hins vegar öskufötu sem sett er ofan í arininn og sést ekki. Það eru ýmis atriði sem gott er að hafa í huga þegar kveikt er upp í arni. Gæta þarf þess að kalt loft streymi ekki niður skor- steininn þegar kveikja skal upp. Ekki skal nota vökva af neinu tagi við uppkveikju, aðeins dagblöð. Nota á þurrkaðan við en ef óþurrkaður viður er notaður fer mikil orka í að losa rakann úr honum sem nýtist ekki til upphitunar. Ef reykur stígur upp úr skor- steini ber það vott um kunnáttuleysi eigand- ans þar sem vanur kyndari kyndir án reyks. - egm Fleiri með arin en margir halda Múrarameistarinn Magnús Böðvarsson starfar hjá Ákasti ehf. en fyrirtækið sérhæfir sig í arinsmíði og arinhönnun. Hann segist ekki enn hafa lent í því að ekki sé hægt að setja arin upp á heimili. Við tilkynnum til vina og viðskiptavina okkar að við höfum unnið verðlaunin í ár, “Q” fyrir gæði í ferðamannageiranum . Við viljum þakka okkar virðulegu viðskiptavinum fyrir tryggðina. Starfsfólk okkar á veitingastaðum Bali, á Kanaríeyjum viljum óska öllum gleðilegs nýs árs. Sjáumst á Kanarí. Avd. de Tirajana, Esq. Avd. Bonn, 23 Apartamentos Tinache 35100-Playa del Ingles Gran Canaria- España Reservas: 0034 928 763 261 www.restaurantebali.com
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.