Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 48
{ húsbyggjandinn } 4
Eins og staðan er núna er lítið um
lóðaframboð á höfuðborgarsvæðinu
en flest bæjarfélög eru nýbúin að
hafa útboð. Í Hafnarfirði er þó ýmis-
legt í undirbúningi og ekki langt í
næsta útboð. „Eins og er eru engar
lóðir lausar, en mikið í byggingu sem
nýlega hefur verið úthlutað. Stefnt er
að því að úthluta u.þ.b. 150 einbýl-
ishúsalóðum, 100 raðhúsalóðum og
lóðum fyrir um 160 íbúðir í fjölbýli
með vorinu. Siðar á árinu er stefnt að
úthlutun u.þ.b. 150 einbýlishúsalóða,
120 raðhúsalóða og lóðum fyrir u.þ.b.
50 íbúðir í fjölbýli. Auk þess erum
við að úthluta lóðum fyrir atvinnu-
húsnæðí á stórum iðnaðarsvæðum
í suðurhluta bæjarins,“ sagði Bjarki
Jóhannesson, sviðsstjóri skipulags-
og byggingarsviðs Hafnarfjarðar.
Í Reykjanesbæ hefur úthlutun
verið mikil síðustu ár, og úthlutað
lóðum undir 1800 íbúðir. Samkvæmt
upplýsingum frá bæjaryfirvöldum er
verið að ljúka uppbyggingu þriggja
hverfa. Enn eru um 40 lóðir lausar
í þeim hverfum. Í skipulagningu er
hins vegar 700 íbúða hverfi og verður
lóðum þar úthlutað á þessu ári. Stefna
bæjarins er að hafa ávallt nægt fram-
boð af lóðum. - egm
Mikið í bygg-
ingu í Hafn-
arfirði og í
Reykjanesbæ
„Þetta er rosalega vinsælt og fleiri með arin
á heimili sínu en margir halda,“ segir Magn-
ús Böðvarsson sem starfar hjá Ákasti. „Þó að
hús sé ekki steypt upp með skorstein er alltaf
hægt að setja arin í það eftir á og það halda
áfram að koma arnar í gömul hús.”
Aðspurður segir Magnús að í langflest-
um tilfellum sé það ekki mikið vandamál að
finna leið til að setja upp arin á heimilum.
„Það þarf náttúrulega að vera hægt að koma
upp skorsteini og ef það er ekki önnur hæð
á húsinu þá er það ekki mikið mál. Settur
er upp stál-skorsteinn ef ekki er skorsteinn
fyrir. Ég hef enn ekki lent í þeim vandamál-
um að ekki sé hægt að finna leið til að koma
arni fyrir,“ segir Magnús.
„Svo er það spurningin hvernig arinn það
er sem fólk vill, inni í eldhólfinu er aðeins
um tvennt að velja. Það er gamli múrstein-
ninn eða grásteinn sem er íslenskur svart-
ur náttúrusteinn. Fólk þarf að velja á milli
þessara tegunda en í 90 prósent tilfella í dag
velur fólk grásteininn. Hann er hins vegar
mikið dýrari en múrsteinninn. Fólk hefur
sínar hugmyndir um hvernig arin það vill en
ég sé um að hanna innvolsið, ef fólk hefur
hugmyndir sem ekki eru mögulegar þá segi
ég því það hreint út.“
Ákast tekur að sér að smíða arna eftir
teikningum arkitekta, verkkaupa eða eigin
hönnun. Fyrirtækið sér um að útvega allt
það efni sem þarf í arininn og gerir föst til-
boð. Hægt er að kaupa alls konar aukahluti
fyrir arnana, meðal annars í versluninni
Arinvörum á Krókhálsi. Meðal aukahluta
sem þar fást má nefna neistagrindur, ösku-
skúffur, hreinsiefni, trekkspjaldastillingar
og kubbagrindur í eldhólf. Ákast mælir á
heimasíðu sínni með öskuskúffum. Þær gera
það að verkum að arinninn er notaður miklu
meira. Fyrirtækið býður annars vegar upp á
skúffu á hjólum sem rennur undir arininn
og hins vegar öskufötu sem sett er ofan í
arininn og sést ekki.
Það eru ýmis atriði sem gott er að hafa í
huga þegar kveikt er upp í arni. Gæta þarf
þess að kalt loft streymi ekki niður skor-
steininn þegar kveikja skal upp. Ekki skal
nota vökva af neinu tagi við uppkveikju,
aðeins dagblöð. Nota á þurrkaðan við en ef
óþurrkaður viður er notaður fer mikil orka
í að losa rakann úr honum sem nýtist ekki
til upphitunar. Ef reykur stígur upp úr skor-
steini ber það vott um kunnáttuleysi eigand-
ans þar sem vanur kyndari kyndir án reyks.
- egm
Fleiri með arin en margir halda
Múrarameistarinn Magnús Böðvarsson starfar hjá Ákasti ehf. en fyrirtækið sérhæfir sig í arinsmíði og arinhönnun. Hann segist ekki
enn hafa lent í því að ekki sé hægt að setja arin upp á heimili.
Við tilkynnum til vina og viðskiptavina okkar að
við höfum unnið verðlaunin í ár, “Q” fyrir gæði í
ferðamannageiranum . Við viljum þakka okkar
virðulegu viðskiptavinum fyrir tryggðina.
Starfsfólk okkar á veitingastaðum Bali,
á Kanaríeyjum viljum óska öllum gleðilegs
nýs árs. Sjáumst á Kanarí.
Avd. de Tirajana, Esq. Avd. Bonn, 23
Apartamentos Tinache
35100-Playa del Ingles
Gran Canaria- España
Reservas: 0034 928 763 261
www.restaurantebali.com