Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 50
{ húsbyggjandinn } 6
Lýsingin á heimilinu skiptir mjög
miklu máli og er eitt af því sem
huga þarf að þegar nýtt hús er
byggt. Lumex er lampaverslun og
ráðgjafafyrirtæki þar sem ráðgjöfin
felst í þekkingu á þeim lömpum sem
fyrirtækið hefur til sölu. Starfsmenn
Lumex hafa mikla reynslu í hönnun
lýsingar.
„Algengustu spurningarnar varð-
andi lýsingu í dag eru annars vegar
um innfellda halogen-lýsingu,
díóðu-lýsingu sem er oft notuð
sem næturlýsingu eða ratlýsingu
og óbeina lýsingu þar sem notast
er við flúrperur eða díóður,“ segir
Charlotta Björk Steinþórsdóttir sem
er tækniteiknari hjá Lumex.
Hún segir talsvert hraða þróun
hafa átt sér stað í stýringum sem
tengjast m.a. lýsingu heimila. „Þar
efst á baugi má nefna kerfi sem
heitir Funk bus. Einnig starfrækjum
við hjá Lumex teiknistofu sem tekur
við stærri verkum,“ segir Charlotta.
Fyrirtækið býður upp á hönn-
un á úti- og innilýsingu en þetta á
bæði við um nýbyggingar sem og
eldri byggingar. „Það sem við þurf-
um til að geta unnið okkar vinnu
eru annars vegar grunnmyndir af
húsunum eða íbúðunum. Best er að
fá þær á tölvutæku formi en ef þær
eru ekki fáanlegar er hægt að notast
við útprentaðar grunnmyndir,“ segir
Charlotta þegar spurt er um það ferli
sem viðskiptavinir gagna í gegnum.
„Viðskiptavinurinn getur annars
vegar komið á staðinn og farið yfir
byggingu hússins með sölumanni,
lofthæð og óskir um lýsingu. Sölu-
maðurinn kemur þeim skilaboðum
síðan til teiknara sem gerir grunn-
inn kláran fyrir lýsingarhönnuðinn.
Næsta skref er síðan að lýsingar-
hönnuður hannar lýsinguna eftir
óskum og þörfum hvers og eins.“
Þegar þessu er síðan lokið tekur
sölumaður teikninguna og gerir
sölutilboð sem viðskiptavinurinn
fær með teikningunni. „Teiknari
klárar að útfæra teikninguna og
hefur samband við kúnnann,“ segir
Charlotta.
Viðskiptavinurinn fær sent ein-
tak í tölvupósti eða getur komið
og fengið útprentun á verkinu. Allt
þetta ferli tekur að meðaltali tíu
virka daga og kostnaður vegna þess
er allt frá 7.345 krónum. - egm
Lýsing í nýbyggingum
Fyrirtækið Lumex býður upp á hönnun á úti- og innilýsingu. Charlotta Björk Stein-
þórsdóttir tækniteiknari segir talsverða þróun hafa átt sér stað í þessum efnum.
Sífellt eru gerðar meiri kröfur til
ljósastýringa á heimilum en Funk-
Bus kerfið nýtur mikilla vinsælda.
Einfalt er að forrita Funk-Bus og allar
breytingar eftir að kerfið er komið upp.
Funk-Bus hefur margt að bjóða og má þar
meðal annars nefna að hægt er að slökkva
öll ljós á heimilinu á leiðinni út og kveikja á
mismunandi ljósum þegar heim er komið.
Í kerfinu eru sendar og móttakarar. Sendar eru
hreyfiskynjarar, veggsendar og handsendar í
formi fjarstýringar eða lyklakippu.
Upplýsingar af reykjafell.is
Eins og úrvalið og möguleikarn-
ir eru núna ættu allir að fá þann
eldhúsvask sem þeim hentar best.
Algengastir eru þeir úr stáli, enda
eru þeir sterkir og endingargóðir.
Ný efni hafa þó verið að ryðja sér
til rúms, eins og silgranít og corian.
Silgranít er sterkara efni en stálið
og er framleitt í nokkrum litum.
Corian er efni sem hægt er að móta
hvernig sem er, og algengt er að
fólk láti smíða vask og borðplötu
úr Corian-efninu. Alltaf eru það
einhverjir sem sækjast eftir að hafa
vaskana undir borðplötunni til að
vaskurinn verði ekki eins áberandi,
á meðan aðrir sækjast eftir stórum
vaski sem lætur mikið fyrir sér fara.
Postulínsvaskar sem notaðir voru
hér mikið áður fyrr eru að mestu
leyti horfnir, og eru sérpantaðir
að utan ef fólk sækist eftir þeim.
Gallinn við postulínsvaskana er sá
að það brotnar mikið upp úr þeim,
enda eldhúsvaskar oft undir miklu
álagi.
Búið vel um uppvaskið
Hvað er
Funk-Bus?