Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 56
{ húsbyggjandinn } 12
„Það er mjög merkjanleg aukning
á byggingu íbúðarhúsnæðis hér á
Húsavík og ég held að það sé fyrst
og fremst vegna bjartsýni íbúa hér
á svæðinu,“ segir Þórólfur Aðal-
steinsson, framkvæmdastjóri verk-
takafyrirtækisins Norðurvíkur á
Húsavík.
„Fólk hefur miklar væntingar
vegna umræðu um atvinnuupp-
byggingu hér í bænum og sú bjart-
sýni skilar sér í aukinni eftirspurn
eftir húsnæði.“
Norðurvík hefur nýlega reist stórt
raðhús í bænum og segir Þórólfur að
þær íbúðir hafi selst á mjög skömm-
um tíma. Fyrirtækið fæst þó ekki
bara við smíði íbúðarhúsnæðis held-
ur sér fyrirtækið um alhliða smíða-
vinnu. „Við erum núna að vinna
að byggingu Gljúfrastofu í Ásbyrgi
fyrir Umhverfisstofnun. Þar er verið
að endurbyggja fjárhús og hlöðu
sem verða upplýsingamiðstöð og
sýningarsalur.“ Norðurvík er einn-
ig að reisa nýtt pósthús á Húsavík
sem tekið verður í notkun 17. júní
næstkomandi. „Þetta er gjörbreytt
aðstaða fyrir Póstinn hér í bænum.
Aðgengi fyrir póstbíla er allt betra
og starfsmannaaðstaða rýmri.“
Það starfa um 25 manns hjá fyr-
irtækinu og segir Þórólfur fjölgun
starfsfólks hafa haldist í hendur við
aukin verkefni.
„Við höfum auk þess að vinna
hér á nærsvæðinu einnig unnið
töluvert á Austurlandi,“ segir Þór-
ólfur. Hann segir að fyrir utan húsa-
smíðar bjóði fyrirtækið einnig upp á
smíði eldhúsinnréttinga og sé hægt
að koma með eigin hugmynndir til
Norðurvíkur sem framkvæmi þær.
„Við höfum smíðað mikið úrval eld-
húsinnréttinga og erum að selja um
allt land.“ -öhö
Aukin eftirspurn
Þórólfur Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Norðurvíkur
á Húsavík, segir aukna eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði á
Húsavík og ástæðan sé bjartsýni fólks á svæðinu. Fyrir-
tækið vinnur nú að byggingu nýs pósthúss í bænum sem
tekið verður í notkun í sumar.
Metnaðarfull hönnun virðist teygja
sig inn á öll svið heimilisins og er
áhersla lögð á minnstu smáatriði.
Rofar og innstungur eru meðal þess
sem tekið hefur miklum stakka-
skiptum hvað hönnun varðar og er
ekki lengur bara um hvítt plast að
ræða fyrir rofana.
S. Guðjónsson í Kópavoginum
selur vörur frá Gira sem er í senn
einföld rofahönnun og tæknilegur
rafbúnaður fyrir heimilið í heild
sinni. Tæki og einingar í Gira-vöru-
línunni eru til í miklu úrvali og eru
yfir 40 gerðir til. Gira-kerfið getur
samhæft allt rafkerfi hússins, bæði
innandyra og utan og til að mynda
er hægt að kveikja öll ljós í húsinu
með einum takka. Samsetningar-
möguleikar virðast vera endalausir
og með uppsetningu einnar mið-
stöðvar hægt að stýra öllu í húsinu,
og þegar farið er úr húsi er hægt að
slökkva öll ljós, slökkva á eldavél,
ræsa þjófavörn og jafnvel draga
fyrir gluggana eða setja upp sólar-
vörn, allt með einu handtaki. Aftur
á móti er Gira líka fyrir þá sem
vilja einfaldlega hafa fallega rofa
á veggjunum eða skipta um ítölsku
innstungurnar (ticion) sem leynast
víða í húsum og eru til vandræða
vegna þess að til þess að nota þær
þarf millistykki. - keþ
Rofar fyrir nútímaheimili
laugavegi 47 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-16 www.kokka.is kokka@kokka.is
Brauðristar-
gæðaeftirlit
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl.is
•
S
ÍA
Framleiðendur bresku Rowlett brauðristanna hafa aldrei verið sammála
því að brauðristar eigi að vera ódýrar, ónákvæmar og ónýtar alltof snemma.
Rowlett ristar hratt, vel og nákvæmlega og er fljót að borga sig upp því
þú kaupir eina og átt hana svo alla ævi. Rowlett brauðristar fást í mörgum
stærðum, með og án samlokugrindar. Þær hafa verið handsmíðaðar í 60 ár
og hvert einasta tæki er prófað áður en það fer úr húsi. Það hlýtur að vera
öfundsvert starf að sjá um gæðaeftirlitið með öllu þessu ristaða brauði.