Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 62
Baujan er aðferð til að stjórna
eigin líðan. Nú er komin út
bók um hana eftir Guðbjörgu
Thoroddsen.
Guðbjörg hefur sjálf byggt upp og
þróað aðferðir sem hún nefnir
Baujuna og kennt þær um alllangt
skeið. Bókin sem hún hefur nú
gefið út er framhald af þeirri
vinnu og nafnið er táknrænt því
baujur eru leiðarljós og vegvísar.
Með lestri bókarinnar getur hver
og einn tileinkað sér þá þekkingu
sem þarf til að styrkja sjálfsör-
yggi sitt og vellíðan að sögn Guð-
bjargar. Vegna mikillar eftirspurn-
ar segir hún fyrirhugað að þýða
Baujuna á ensku svo hún verði til-
tæk fleirum en Íslendingum.
Guðbjörg er leikaramenntuð og
segir það hafa komið sér til góða
við að finna upp Baujuna. „Leikar-
inn þarf andlega og líkamlega slök-
un til að geta kastað sér í hvaða
hlutverk sem er og jafnframt að
vera í stöðugu sambandi við til-
finningaróf sitt. Þetta lærði ég að
heimfæra upp á daglega lífið.
Þegar hugurinn er í jafnvægi og
við erum í góðum tengslum við til-
finningar okkar kemur innbyggt
lækningakerfi okkur til hjálpar ef
eitthvað bjátar á,“ útskýrir hún.
Guðbjörg dvelur nú í Kenía í
Afríku. Þar hefur hún haldið
kennslufyrirlestra um Baujuna og
einnig tekið að sér einstaklinga
sem þurfa á hjálp að halda. „Fólk
hér í Afríku er áfjáð í sjálfsstyrk-
ingu enda eru erfiðleikar þess
meiri en nokkrum manni eru holl-
ir,“ segir hún og nefnir sem dæmi
munaðarlausa 12 ára stúlku á heim-
ilinu Diani Childrens Village sem
hefur búið við afar erfið skilyrði á
sinni stuttu ævi. „Foreldrar hennar
og bróðir dóu úr eyðni og hún
hraktist stað úr stað. Stundum í
stöðugri límvímu til að gleyma
sorgum dagsins, ofbeldi og vanlíð-
an,“ segir Guðbjörg og heldur
áfram. „Eftir kennslufyrirlestur
fyrir starfsfólk heimilisins var ég
beðin að setjast niður með stúlk-
unni til að kanna hvort Baujan gæti
orðið henni til hjálpar. Eftir fimm
stutta fundi með henni er hegðun
og líðan hennar gjörbreytt og hún
horfir nú glöð og vongóð til fram-
tíðarinnar.“
Baujan sjálfshjálparbók verður
til sölu í allnokkrum bókabúðum en
fólki er einnig bent á heimasíðu
Baujunnar, www.baujan.is.
Baujan virkar á
Íslandi og í Afríku
Tvær mínútur í örbylgjuofni
drepa 99 prósent sýkla á upp-
þvottaburstum.
Matareitrun er algengari en marg-
ir telja. Hún er sjaldnast alvarleg
en þeim mun oftar óþægileg. Ein
af uppsprettum baktería sem
valda matareitrun eru uppþvotta-
burstar og -svampar.
Tveggja mínútna bakstur í
örbylgjuofni drepur 99 prósent
sýkla sem lifa á þessum áhöldum.
Frá þessu er greint á vef breska
ríkisútvarpsins.
Það eru ekki örbylgjurnar sem
valda dauða bakteríanna heldur
hitinn. Best er að hafa áhöldin
örlítið blaut til að auka áhrifin og
minnka líkur á að kveikja í þeim.
Hitunin drepur meðal annars
saurgerla á 30 sekúndum og drep-
ur algjörlega ýmsar Bacillus-bakt-
eríur sem erfitt getur reynst að
losna við.
Eldhúsáhöld
í örbylgjuna
Hvernig mannslíkaminn
stjórnar hreyfingum sínum er
ráðgáta. Nú hafa frændur vorir
Danir flækt þessa gátu enn
frekar.
Danskir vísindamenn hafa komist
að því að í mænunni fyrirfinnast
handahófskennd boð. Hingað til
héldu vísindamenn að slík boð
væri einungis að finna í heilanum
sjálfum.
Vöðvum er stjórnað af þúsund-
um taugafrumna sem með rafboð-
um gera nákvæmnishreyfingar
okkar mögulegar. Þrátt fyrir að
sama hreyfingin sé endurtekin
nákvæmlega eru allt önnur tauga-
boð í gangi í hvert skipti. Það að
boð í mænu séu ekki mekanísk
heldur handahófskennd vekur upp
spurningar um hvort einhvers
konar hugsun sé að finna í
mænunni.
Hugsun í mænunni
90% heimila ná Sirkus TV á ADSL kerfinu, Breiðbandinu, Digital Ísland en einnig er hægt að ná Sirkus TV með venjulegu UHF loftneti
www.minnsirkus.is/tv