Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 76
nám, fróðleikur og vísindi
Munnleg saga þykir áhrifa-
rík aðferð innan sagnfræði.
Frásagnir og endurminn-
ingar óbreytts fólks þykja
ljúka sagnfræðingum upp
nýjar gáttir að skilningi að
sögunni en ritaðar heim-
ildir þykja fremur horfa til
sögu valdastéttanna.
„Við erum að fara af stað með
þessa miðstöð því okkur hefur
fundist brotalöm á ákveðnum
þætti í okkar menningu. Við
höfum lagt mikla áherslu á að
varðveita ritaðar heimildir en
þær munnlegu hafa fengið að
sitja á hakanum,“ segir Guðmund-
ur Jónsson sagnfræðingur, einn
þeirra sem koma að opnun Mið-
stöðvar munnlegrar sögu. Mið-
stöðin verður opnuð við hátíðlega
athöfn í Landsbókasafni Íslands á
morgun um klukkan þrjú.
Guðmundur segir miðstöðina
ætla að beita sér fyrir söfnun,
varðveislu, rannsóknum og miðl-
un á munnlegum heimildum sem
snerta sögu lands og þjóðar. Hann
segir munnlegar sögur helst ólík-
ar þeimrituðu að því leyti að þær
miðli fremur sögu alþýðunnar en
valdhafanna. Munnlegar heimild-
ir gefi fólki tækifæri til að nálg-
ast söguna á nýjan og oft óvæntan
hátt, því í henni fái raddir alþýðu-
fólksins að hljóma, sem allt of
sjaldan heyrist í opinberum
sagnaritum.
„Mikil vakning varð meðal
sagnfræðinga í kringum 1970 á
munnlegri sögu og hefur hún
notið hylli víða um lönd síðan.
Einhverra hluta vegna hefur hún
þó aldrei náð almennilegri fót-
festu hér á landi,“ segir Guð-
mundur en nefnir sem líklega
skýringu að lítið hafi verið lagt
stund á samtíma sögu hér á landi.
Guðmundur hvetur fólk til að
senda upptökur sem það telur
eiga erindi við miðstöðina. Upp-
tökurnar verði færðar yfir á staf-
rænt form og frumeinktakið sent
til eigendanna aftur.
Við opnunina verður tekin í
notkun vefsíðan munnlegsaga.is.
„Okkar von er að þetta megi
verða til þess að rödd alþýðufólks
og skilningur þess á sögunni fái
frekar að heyrast,“ segir Guð-
mundur.
Í tilefni af opnun Miðstöðvar-
innar verður haldið norrænt mál-
þing um munnlegar heimildir í
húsnæði Odda, Háskóla Íslands, á
laugardaginn. Nánari upplýsing-
ar má finna á vefsíðu Háskólans.
Alþýðuraddirnar hljóma
„Það hefur ekki verið horft á kenn-
ara sem leiðtoga á námskeiðum
hér á landi og því fannst okkur
áhugavert að snerta á þeim fleti.
Báðar erum við nefnilega sann-
færðar um að þessi stétt gegni
leiðtoga hlutverki þótt það sé van-
metið,“ segja Eiríksína Kr.
Ásgrímsdóttir og Edda Kjartans-
dóttir, verkefnisstjórar SRR
símenntun hjá Kennaraháskóla
Íslands.
Eiríksína og Edda hafa báðar
starfað við kennslu og stjórnun og
segja þær reynslu sína af þeim
störfum ýta enn frekar undir þá
kenningu þeirra að kennarastarfið
sé vanmetið leiðtogastarf. Úr
þessu vilja þær bæta og í samræð-
um þeirra á milli kviknaði hug-
myndin að námskeiðinu „Býr leið-
togi í þér“ sem þær eru nú að fara
af stað með.
Eiríksína segir að dregið hafi
úr áhrifum kennara á eigin störf
að undanförnu þar sem þeir séu
undir stöðugum kröfum og leið-
beiningum frá margs konar sér-
fræðingum sem telji sig hafa fund-
ið upp leiðarvísi að skólastarfi.
Þær Edda og Eiríksína segja
námskeiðinu ætlað að efla áhrifa-
mátt kennara og gera þá að frekari
gerendum í starfi sínu. „Við erum
ekki að hnýta í þau störf sem kenn-
arar vinna nú þegar heldur viljum
við einfaldlega gera fólki og kenn-
urum ljóst að kennarastarfið er
leiðtogastarf og á að vera metið
sem slíkt,“ segir Eiríksína að
lokum.
Kennarar vanmetir leiðtogar
Umbætur í innflytjendamálum
Gítarnámskeið - Einkatímar
r Sími 581-1281
gitarskoli@gitarskoli.is • www.gitarskoli.is