Fréttablaðið - 25.01.2007, Side 80

Fréttablaðið - 25.01.2007, Side 80
Um daginn fékk ég senda lesn- ingu í formi reglugerðar fyrir húsfreyj- ur á sjötta ára- tugnum. Þó að ég ímyndi mér ekki að sömu reglur séu enn við lýði gat ég hugsað mér að þarna færi ágætis áminning um hvernig dekra mætti við sambýl- inginn á tyllidögum. Efst á blaði var eðli málsins samkvæmt að hafa kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma, svo kauða fyndist hann velkominn heim. Einnig er mikilvægt að púðra nefið og koma sér í gírinn, svo maður (kona, öllu heldur) sé nú sætur og hress þegar bóndi snýr heim. Nefpúðrun má þó ekki hefj- ast fyrr en búið er að snyrta íbúð og börn. Þegar þessum undirbúningi er lokið og húsbóndi kominn inn um dyrnar er afar mikilvægt að stein- halda sér saman og passa að kvart- anir sleppi ekki út fyrir varirnar. Með lokaðan munn ber húsfreyju því næst að hlúa að bónda í þartil- gerðum húsbóndastól, útbúa drykk handa kauða og klæða hann úr skóm. Þá má gera rifu á munn- inn, en bara til að tala blíðlega. Ekki má heldur gera kröfur um í hvað kvöldinu skuli varið. Mark- miðið er, að lokum, að gera heim- ilið að stað þar sem eiginmaður- inn getur slakað á í friðarparadís eftir erfiðan dag. Það næsta sem ég kemst þess- ari reglugerð er að á heimili mínu er til húsbóndastóll. Og ég held ég láti það alveg eiga sig að leita í þennan gagnabanka á næsta tylli- degi. Ég get mögulega teygt mig yfir í að kaupa bjór til að eiga í ísskápnum, hvort að sambýlingur- inn fái nokkuð af honum get ég ekki ábyrgst. Og mér finnst sam- bandsslit töluvert vænlegri kost- ur en að færa sveittan karlmann úr sokkum að loknum löngum vinnudegi. Mikil ósköp er ég fegin og glöð að vera fædd á réttum tíma og geta þess vegna verið jafn eigingjörn og ég vil. ÚTSALA !ÞAÐ ER A LLTAF Hvers vegna eru gosauglýsingar alltaf einhvers konar glansmynd af raunveruleikanum? Til að selja meira gos! Ég meina, af hverju þurfa allir að vera svona fjandi ríkir, grannir, eiga stórar villur, flottan bíl og falleg börn? Til að selja meira gos! Selur það meira gos að láta mér líða eins og aula? Já, drekktu frá þér kvölina með gosi og þá líður þér eins og sigurvegara! Það virkar ekki, gos fjandans sull! Ég drekk bara Öl! Eins og svo margir aular! Ekki vera sár mamma, En kannski ertu bara of gömul til að verða ein með símanum! Það þarf sterka tilfinningu Og mikla þekkingu á samskiptatækni 21stu aldarinnar! Þetta er skondið að Friðrik hringi, ég er búinn að vera að hugsa til hans í allan dag! Þetta er Friðrik, er pabbi þinn þarna? Nei! Ég trúi þessu ekki Meistari! Góðan daginn nemendur góðir og velkomin í undraveröld galdra! í dag ætlum við að renna yfir grunninn í töfrum. Jæja, nú ætla ég að breiða út tónlistina mína, ég byrja á Tjörninni, fer svo á Miklatún og þaðan fyrir utan Kringluna! Nú hefst Íslandstúrinn! Minntu mig á að segja þér nýjasta slúðrið um hana Birgittu næst þegar við erum ein. Minntu mig á það að gleyma því aldrei að við erum aldrei ein!
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.