Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 80
Um daginn fékk
ég senda lesn-
ingu í formi
reglugerðar
fyrir húsfreyj-
ur á sjötta ára-
tugnum. Þó að
ég ímyndi mér
ekki að sömu
reglur séu enn
við lýði gat ég
hugsað mér að
þarna færi ágætis áminning um
hvernig dekra mætti við sambýl-
inginn á tyllidögum.
Efst á blaði var eðli málsins
samkvæmt að hafa kvöldmatinn
tilbúinn á réttum tíma, svo kauða
fyndist hann velkominn heim.
Einnig er mikilvægt að púðra
nefið og koma sér í gírinn, svo
maður (kona, öllu heldur) sé nú
sætur og hress þegar bóndi snýr
heim. Nefpúðrun má þó ekki hefj-
ast fyrr en búið er að snyrta íbúð
og börn.
Þegar þessum undirbúningi er
lokið og húsbóndi kominn inn um
dyrnar er afar mikilvægt að stein-
halda sér saman og passa að kvart-
anir sleppi ekki út fyrir varirnar.
Með lokaðan munn ber húsfreyju
því næst að hlúa að bónda í þartil-
gerðum húsbóndastól, útbúa
drykk handa kauða og klæða hann
úr skóm. Þá má gera rifu á munn-
inn, en bara til að tala blíðlega.
Ekki má heldur gera kröfur um í
hvað kvöldinu skuli varið. Mark-
miðið er, að lokum, að gera heim-
ilið að stað þar sem eiginmaður-
inn getur slakað á í friðarparadís
eftir erfiðan dag.
Það næsta sem ég kemst þess-
ari reglugerð er að á heimili mínu
er til húsbóndastóll. Og ég held ég
láti það alveg eiga sig að leita í
þennan gagnabanka á næsta tylli-
degi. Ég get mögulega teygt mig
yfir í að kaupa bjór til að eiga í
ísskápnum, hvort að sambýlingur-
inn fái nokkuð af honum get ég
ekki ábyrgst. Og mér finnst sam-
bandsslit töluvert vænlegri kost-
ur en að færa sveittan karlmann
úr sokkum að loknum löngum
vinnudegi. Mikil ósköp er ég fegin
og glöð að vera fædd á réttum
tíma og geta þess vegna verið jafn
eigingjörn og ég vil.
ÚTSALA
!ÞAÐ ER A
LLTAF
Hvers vegna eru
gosauglýsingar
alltaf einhvers
konar glansmynd af
raunveruleikanum?
Til að
selja
meira
gos!
Ég meina, af hverju
þurfa allir að vera
svona fjandi ríkir,
grannir, eiga stórar
villur, flottan bíl og
falleg börn?
Til að
selja
meira
gos!
Selur það
meira gos að
láta mér líða
eins og aula?
Já, drekktu frá
þér kvölina með
gosi og þá líður
þér eins og
sigurvegara!
Það virkar ekki,
gos fjandans
sull! Ég drekk
bara Öl!
Eins og svo
margir aular!
Ekki vera sár
mamma,
En kannski ertu bara
of gömul til að verða
ein með símanum!
Það þarf sterka
tilfinningu
Og mikla
þekkingu á
samskiptatækni
21stu
aldarinnar!
Þetta er skondið að Friðrik
hringi, ég er búinn að vera að
hugsa til hans í allan dag!
Þetta er Friðrik, er
pabbi þinn þarna?
Nei! Ég
trúi þessu
ekki
Meistari!
Góðan daginn nemendur
góðir og velkomin í
undraveröld galdra! í dag
ætlum við að renna yfir
grunninn í töfrum.
Jæja, nú ætla ég að breiða
út tónlistina mína, ég
byrja á Tjörninni, fer svo á
Miklatún og þaðan fyrir utan
Kringluna!
Nú hefst Íslandstúrinn!
Minntu mig á að segja þér
nýjasta slúðrið um hana
Birgittu næst þegar við
erum ein.
Minntu mig á það að gleyma
því aldrei að við erum aldrei
ein!