Fréttablaðið - 25.01.2007, Qupperneq 82
Kl. 20.00
Tónleikar í Laugarborg, Eyjafjarðar-
sveit. Þórunn Ósk Marínósdóttir
víóluleikari og Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir píanóleikari flytja íslensk
samtímaverk eftir Þórð Magnússon,
Hafliða Hallgrímsson og Kjartan
Ólafsson. Tónleikarnir verða endur-
teknir í Listasafni Íslands næstkom-
andi laugardag kl. 17.30.
!
Uppi varð fótur og fit þegar
fjölfræðingurinn og tón-
listarmaðurinn Dr. Gunni
fékk styrk úr leiklistarráði
í fyrra til að vinna söng-
leik fyrir börn. Félagi hans
í þeim ráðagerðum var
leikarinn góðkunni Felix
Bergsson.
Leið og beið og kvisaðist að nýi
söngleikurinn væri byggður á
alræmdri barnaplötu Dr. Gunna,
Abbababb, sem geymdi meðal
annars Prumpulagið. Síðan frétt-
ist að nýja verkið færi á fjalirnar í
Hafnarfirði.
Nú er hið sanna komið í ljós:
leikflokkur Felix, Á senunni, og
Hafnarfjarðarleikhúsið standa
saman að nýjum söngleik fyrir
börn. Söngleikurinn Abbababb
byggir á frábærri barnaplötu
Gunnars Lárusar Hjálmarssonar,
Dr. Gunna, sem kom út árið 1997
og seldist í þúsundum eintaka.
Meðal þekktustu laga eru Prumpu-
lagið fyrrnefnda, Systa sjóræn-
ingi, Herra Rokk og fýlustrákur-
inn og Rauða hauskúpan. Lögin
eru hvert og eitt litlar sögur sem
standa sjálfstætt en geta líka
myndað skemmtilega heild.
Abbababb gerist í lok sumars,
einhvern tímann í kringum 1975,
meðan allir krakkar voru úti að
leika sér. Aðalkarakterarnir eru
börnin í leynifélaginu Rauðu haus-
kúpunni. Þau dreymir um að kom-
ast á forsíðu Moggans fyrir að
koma upp um hrikalega glæpi. Þe-
gar dínamít fer að hverfa úr
vinnuskúrum í nágrenninu fara
dularfullir hlutir að gerast og æsi-
spennandi atburðarás fer af stað.
Þá reynir á Rauðu hauskúpuna,
Herra Rokk og vini þeirra í hverf-
inu...
Listamenn sem koma að verk-
efninu eru þekktir: Sigurjón Kjart-
ansson leikur Herra Rokk, Jóhann
G. Jóhannsson, Álfrún Örnólfs-
dóttir og Orri Huginn Ágústsson
leika krakkana í Rauðu hauskúp-
unni, Atli Þór Albertsson og Sveinn
Þór Geirsson leika stóru strákana
og Jóhanna Friðrika Sæmunds-
dóttir leikur Systu sjóræningja.
Hljómsveitina skipa auk dr.
Gunna, Birgir Baldursson og Elfar
Geir Sævarsson. Jón Skuggi skap-
ar hljóðmyndina. Leikmynd er
verk Lindu Stefánsdóttur, Lárus
Björnsson hannar lýsingu og bún-
ingar eru hugarsmíð Dýrleifar
Ýrar Örlygsdóttur og Margrétar
Einarsdóttur. Sigríður Rósa
Bjarnadóttir hannar gervi. Leik-
stjóri söngleiksins Abbababb er
María Reyndal.
Og meira er í vændum: Geisla-
diskur með tónlistinni í sýning-
unni er tilbúinn. Á plötunni eru 16
skemmtileg lög. Birgir Baldurs-
son og Dr. Gunni stjórnuðu upp-
tökum. Heimasíða sýningarinnar
er www.abbababb.is. Fram-
kvæmdastjóri Abbababb er Felix
Bergsson. Frumsýning er ákveðin
11. febrúar og þá er bara bíða
spenntur.
Skáldafélagsskapurinn Nýhil
stendur fyrir upplestrarkvöldi í
Stúdentakjallaranum við Hring-
braut í kvöld.
Skáldin þreyja þorrann líkt og
aðrir landsmenn og munu nokkrir
„súrsaðir og sviðnir kjammar“
troða upp og lesa ljóð sín og verða
þar bæði óvæntir nýliðar sem og
annálaðir góðkunningjar Nýhil-
samsteypunnar.
Á lista afreksfólksins má finna
Gísla Hvanndal Ólafsson, Þórdísi
Björnsdóttur, Ingólf Gíslason, Unu
Björk Sigurðardóttur, Örvar
Þóreyjarson Smárason og Björk
Þorgrímsdóttur.
Dagskráin hefst kl. 20.30.
Aðgangur að samkomunni er
ókeypis og eru ljóðaunnendur og
annað andans fólk hvatt til að
mæta.
Þrælar þorrans
Hljómsveitirnar Vicky Pollard,
Út-Exit, Gordon Riots og Foreign
Monkeys leika á vegum Fimmtu-
dagsforleiks Hins hússins í kvöld.
Foreign Monkeys eru sigurveg-
arar Músíktilrauna árið 2006.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er
allir 16 ára og eldri velkomnir.
Að venju er frítt inn.
Fimmtudagsforleikur Hins
hússins er tónleikaröð sem er
hugsuð sem vettvangur fyrir
ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára
til að koma tónlist sinni á fram-
færi jafnframt því að fá reynslu í
því að sjá um tónleika. Tónleika-
raðirnar byggja á þeirri hug-
myndafræði að: útvega aðstöðu
og tækjabúnað til tónleikahalds
og búa með því til vettvang í sam-
starfi við ungt tónlistarfólk þar
sem að það getur öðlast reynslu í
því að halda tónleika og koma
tónlist sinni á framfæri.
Fimmtudags
forleikurinn
Styður við menningarlífið
Stórskemmtileg sýning um kostulega konu!
Ólafía Hrönn í ham!
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Ekki missa af...
2400 ára snilld!
Merkilegur menningarviðburður!
Stórbrotin uppsetning!
b akkyn jur