Fréttablaðið - 25.01.2007, Síða 84
Framlag Sinfóníuhljómsveitar
Íslands til Myrkra músíkdaga að
þessu sinni er glæsilegir tónleikar
þar sem kynnt verða fjögur verk
eftir jafnmörg tónskáld. Sveitin
flytur, ásamt einleikurunum
Guðrúnu Birgisdóttur og Marti-
al Nardeau, verk eftir Karól-
ínu Eiríksdóttur, Herbert
H. Ágústsson, Erik
Mogensen og Örlyg
Benediktsson.
Hljómsveitarstjóri
er Roland Kluttig.
Tónlistarunn-
endur kannast við verk Karólínu
Eiríksdóttur en hún hefur starfað
ötullega að sköpun sinni um árabil.
Nýlega frumsýndi Íslenska
óperan verk hennar Strengja-
leiki en að þessu sinni
verður konsert á
efnisskránni
sem Karolína
samdi sérstak-
lega fyrir ein-
leikarana,
hjónin
Martial
Nardeau og
Guðrúnu
Birgisdótt-
ur. Hafa þau
átt farsælt
samstarf
við tónskáld-
ið sem áður
hefur samið
verk fyrir
þau, bæði dúó- og einleiksverk.
Herbert H. Ágústsson stundaði
tónlistarnám í Graz og var horn-
leikari í Fílharmoníuhljómsveit-
inni í Graz á árunum 1945 til 1952
en þá kom hann til Íslands og gerð-
ist fyrsti hornleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Verkið „Conc-
erto breve“ samdi Herbert árið
1965 en Sinfóníuhljómsveit Íslands
lék verkið fyrst árið 1971.
Örlygur Benediktsson hóf tón-
listarnám í Hafralækjarskóla,
lærði síðan hjá tréblásarameistur-
um Tónlistarskólans í Reykjavík
og að því loknu hóf hann nám í tón-
fræðadeild skólans. Framhalds-
nám sitt stundaði hann við rúss-
nesku Ríkiskonservatoríuna í St.
Pétursborg. Tónverk hans „Eftir-
leikur“ er fyrsta verkið sem Sin-
fóníuhljómsveit Íslands flytur.
Tónleikarnir hefjast að vanda
kl. 19.30 í Háskólabíói.
Í tilefni Myrkra músíkdaga
Fjórar ungar konur úr tveimur
ólíkum löndum deildu vist í Arn-
hem við nám í samningu list-
dansa í ArtEZ-skólanum. Tvær
þeirra voru íslenskar, menntaðar
sem dansarar úr Listdansskóla
Íslands, hinar komu frá Ísrael.
Þeim var falið það verk að setja
saman hugmynd að danssýningu
og datt þá í hug að leiða saman
tvo ólíka heima. Hugmyndinni
var vel tekið en það var ekki fyrr
en komið var að skilnaðarstund
að upp rann ljós; innrásin í Líb-
anon stóð sem hæst.
Nú eru þær komnar hingað til
lands allar fjórar og á föstudag
og laugardagskvöld verða þær
með sýningu: Víkingar og gyð-
ingar kallast hún og er sett saman
úr þremur dansverkum og einni
stuttmynd. Sér til liðsinnis hafa
þær stöllur ellefu unga tónlistar-
menn úr skóla FÍH. Verkin eru
ólík: Margrét segir eitt þeirra
afstrakt, annað hafa beina tilvís-
un í hryðjuverk. Þau standi nær
leikverkum og myndverkum í
rými en beinlínis dansi.
Þær stöllur, Margrét Bjarna-
dóttir, Sara Sigurðardóttir, Annat
Eisenberg og Noa Shadur náðu
vel saman. Þeim var ljóst hvað
hlutskipti þeirra voru ólík: stelp-
urnar frá Ísrael rifjuðu upp þá
daga þegar þær urðu að fara í
skólann með gasgrímur í poka
meðan Persaflóastríðið stóð sem
hæst. Þó þær næðu vel saman
var heimur þeirra ekki einn - eða
bjuggu þær þrátt fyrir það sama
heiminn.
Margrét segir að verkefnið
hafi orðið til með stuðningi verk-
efnis Evrópusambandsins - Ungt
fólk í Evrópu. Hún er hvergi
bangin að koma heim og taka upp
þráðinn við frekari dansasamn-
ingu þegar þessari lotu lýkur.
Þær Saga ætla að reyna að vinna
saman að frekari verkefnum.
Ekki er ljóst á þessu stigi hvort
þær komast með vinkonum
sínum til Ísrael til að sýna þar.
Það er erfiðara að finna fjár-
magn til sýninga þar en hér. Þær
voru svo heppnar að komast í
samband við Hafnarfjarðarleik-
húsið, en þar standa nú yfir
æfingar á tveimur verkum,
Abbababb, barnarokksöngleik
dr. Gunna og Felix Bergssonar
og verki sem byggir á Drauma-
landi Andra Snæs. Skammt er í
frumsýningingu á Abbababb og
var danssýningu þeirra vin-
kvenna skotið inn. Einungis eru
fyrirhugaðar sýninga á föstu- og
laugardagskvöld.
Gyðingar og víkingar
Samkeppnin eykst enn milli
háskólanna í landinu og eru menn
teknir að merkja sér ný svið: í gær
var tilkynnt að Háskólinn á Bif-
röst, Íslenska óperan og Félag
íslenskra hljómlistarmanna kæmi
að stofnun Rannsóknaseturs í
menningarfræðum við Háskólann
á Bifröst. Við setrið skulu stund-
aðar rannsóknir á sviðum sem
tengjast listgreinum og öðrum
sviðum menningar. Á Bifröst hafa
menn um tveggja ára skeið staðið
fyrir meistaranámi í menningar-
og menntastjórnun með það að
markmiði að þjálfa stjórnendur í
mennta- og menningarlífi. Á þeim
tveimur árum sem liðin eru síðan
farið var af stað með þetta nám
hefur fjölbreyttur hópur fólks úr
menningar- og listalífi, skólakerf-
inu og fleiri sviðum samfélagsins
stundað þetta nám á Bifröst og
útskrifuðust fyrstu nemendurnir í
fyrra. Menningarstarfsemi er
veigamikill þáttur í íslensku sam-
félagi og skilar verulegum efna-
hagslegum og andlegum verðmæt-
um og er tónlistin skýrt dæmi um
slíkt. Hefur nýráðinn rektor á Bif-
röst, dr. Ágúst Einarsson, lagt sig
fram um að kanna framlegð og
umfang menningarstarfsemi og
flutt um það erindi víða, síðast á
aðalfundi Bandalags íslenskra
listamanna í Borgarnesi um síð-
ustu helgi. Frekari rannsóknir á
þessum sviðum eru nauðsynlegar
til að efla listgreinar enn frekar.
Stofnaðilar skuldbinda sig til
að leggja setrinu lið eftir föngum,
með ráðgjöf, aðstoð, kennslu eða á
annan hátt. Segir í yfirlýsingu
þeirra að rannsóknir skuli taka
mið af íslenskum og erlendum
aðstæðum og niðurstöður rann-
sókna skulu birtar á aðgengilegan
hátt og vera grundvöllur umræðu
um menningarmál í íslensku sam-
félagi.
Rannsóknasetur stofnað
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR