Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 85
22 23 24 25 26 27 28
Það styttist í Tvíæringinn í Feneyj-
um: Steingrímur Eyfjörð Krist-
mundsson myndlistarmaður var
valinn af fagnefnd sem mennta-
málaráðherra skipaði til að vera
fulltrúi Íslands á þessari stærstu og
virtustu myndlistarmessu Evrópu.
Í vikunni var tilkynnt að Lands-
virkjun kæmi honum til stuðnings.
Forstöðumaður Kynningarmið-
stöðvar myndlistar, dr. Christian
Shoen, er „commissioner“ verkefn-
isins en Hanna Styrmisdóttir er
sýningarstjóri og heldur um alla
þræði. Sagði hún í samtali við
Fréttablaðið að fjármögnun verks-
ins gengi vel og stefnt væri á að
ljúka henni í mars. Steingrímur
hefur þegar lagt verkið niður og er
vinnsla þess langt komin. Verður
það kynnt í smáu sem stóru við
sama tækifæri. Nú er lokið langri
dvöl íslenskra myndlistarmanna í
finnska skálanum á sýningarsvæð-
inu. Shoen fór suður eftir og fann
nýtilega jarðhæð í palazzo við
Grand Canale, um 180 fermetra, og
er hún leigð undir sýninguna.
Þar er aðgengi gott, bæði frá
götu og síkinu. Fer sendinefnd til
Feneyja 20. maí en kynningardag-
ar eru 7.-9. júní og hin formlega
opnun hinn 10. júní. Tvíæringur-
inn stendur svo fram á haust.
Steingrímur sagði í samtali við
Fréttablaðið að verkefnið væri
býsna stórt og kostnaðarsamt. Þó
að ákvörðun hafi verið tekin um
þátttöku hans í vor hafi ekki byrjað
vinna af alvöru við útfærslu fyrr
en í haust. Framlag Landsvirkjunar
væri mikilvægt.
Styttist í Tvíæringinn í Feneyjum
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
NÁNARI UPPLÝSINGAR
HÚSIÐ OPNAR KL. 23
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
MIÐAVERÐ 1500 KR.
LAUGARD. 26 JAN. 2007
NÝDÖNSK
LOKSINS, LOKSINS
Á ÞESSU ÁRI MUN HLJÓMSVEITIN NÝ-DÖNSK FAGNA TUTTUGU ÁRA AFMÆLI
OG ÞVÍ ÁSTÆÐA TIL AÐ SLETTA ÚR KLAUFUNUM. MÆTA ÞEIR ÞVÍ HÉR Á NASA
Í FANTAFORMI, ÆTLA ÞEIR AÐ HEFJA LEIK UM KL 00.30 OG SPILA Í EINUM RYKK.
BETRA ER ÞVÍ AÐ KOMA SNEMMA TIL AÐ TRYGGJA SÉR MIÐA OG
MISSA EKKI AF NEINU.
STEPHEN KING
MIÐASALA Á WWW.NASA.IS
EINNIG Á NASA MILLI KL.
13 OG 17 DAGLEGA.
PANTANIR Í SÍMA 511 1313
FR
26. JAN
Sérstakt tilboÐ til VISA kreditkorthafa í janúar:*
MiÐinn í forsölu á 1.950 kr. í staÐ 2.900 kr.
*500 kr. afsláttur á miÐa eftir þaÐ.
LEIKRIT BYGGT Á SÖGU STEPHEN KING