Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 86
Frábærlega leikin mynd sem kemur
í kjölfar Barna og gefur þeirri mynd lítið eftir.
Áhrifarík mynd sem á fullt erindi við samtímann.
Kvikmyndagerð í hæsta gæðaflokki. Krefj-
andi mynd sem lætur engan ósnortinn. Veitir
ekkert af því að sjá hana oftar en einu sinni.
Martin Scorsese var til-
nefndur til Óskarsverð-
launa fyrir The Departed á
þriðjudaginn. Þetta er sjötta
tilnefning Scorsese sem
besti leikstjórinn en þrátt
fyrir það hefur hann aldrei
hampað styttunni eftirsóttu.
Hann er þó síður en svo eina
dæmið um brenglað gildis-
mat Akademíunnar.
Óskarsverðlaunin eru og hafa allt-
af verið umdeild en í gegnum tíð-
inna hefur þó aldrei verið meira
deilt um nokkurn verðlaunaflokk
en besta leikstjórann. Þeir sem
finna Óskarnum flest til foráttu
benda iðulega á leikstjóraverð-
launin sem skýrasta dæmið um að
verðlaunin séu stór brandari sem
hafi ekkert með gæði eða hæfi-
leika að gera enda er það ill-
skiljanlegt að þungaviktarmenn
eins og Alfred Hitchcock, Charlie
Chaplin, Orson Welles og Stanley
Kubrick, hafi farið í gröfina án
þess að hljóta verðlaun fyrir sín
bestu verk.
Þessir fjórir, svo einhverjir séu
nefndir, hafa með myndum sínum
haft ómæld áhrif á minni spámenn
í bransanum og þegar vel er að
gáð gefur listinn yfir þá leikstjóra
sem ekki hafa hlotið Óskarsverð-
launin listanum yfir sigurvegar-
ana lítið eftir.
Kapalsjónvarpsstöðin Turner
Classic Movies gerði skoðana-
könnun á meðal breskra áhorf-
enda sinna árið 2005 um hver væri
besti leikstjórinn sem aldrei hefði
hlotið Óskarinn. Þar leiddi
Hitchcock listann en Scorsese
kom í kjölfarið með Stanley
Kubrick á hælunum.
Hitchcock fékk sex tilnefning-
ar á árabilinu 1941 til 1961, meðal
annars fyrir ekki ómerkari mynd-
ir en Rebecca, Rear Window og
Psycho. Þegar horft er til risa eins
og Hitchcock og manns sem á að
baki jafn magnaðar myndir og
Kubrick hlýtur allt val Akademí-
unnar að gengisfalla en á þeim
bænum er lenska að friða sam-
viskuna með því að veita afskipt-
um meisturum heiðursverðlaun á
gamals aldri.
Þetta á til dæmis við um
Hitchcock, Kubrick, Welles, How-
ard Hawks og Robert Altman.
Scorsese er hins vegar ekki dauð-
ur enn og á því enn möguleika á
langþráðum leikstjóraverðlaunun-
um en er þessa stundina í sporum
Hitchcocks með sex tilnefningar.
Hvort The Departed skili honum
betri árangri en Psycho gerði
Hitchcock kemur í ljós í lok febrú-
ar.
Akademían beindi blinda auganu
að Scorsese með eftirminnilegum
hætti árið 1991 þegar hún tók
Kevin Costner og Dances with
Wolves fram yfir Scorsese og
Goodfellas. Þarna var Scorsese
mættur með eina af sínum allra
bestu myndum en mátti horfa á
eftir styttunni til Costners og
ofmetinnar myndar sem hefur
ekki staðist tímans tönn. Costner
var í kjölfarið hampað sem miklu
efni og framtíð hans virtist björt.
Það kom svo á daginn að hann er
vonlaus leikstjóri sem hefur ekki
skilað af sér almennilegri mynd
frá því hann hampaði Óskarnum.
Tapið fyrir Dances with Wolves er
eitt grófasta dæmið á seinni árum
um vafasamt gildismat Akademí-
unnar þó að fáir hafi kippt sér upp
við það á sínum tíma að Scorsese
skyldi lúta í lægra haldi fyrir
Costner. Þetta er þó hvorki í fyrsta
né síðasta skiptið sem falsspámað-
ur er tekinn fram yfir meistara í
faginu og þessi saga mun halda
áfram að endurtaka sig svo lengi
sem Óskarsverðlaunin verða veitt.
Ingjaldsfíflið er eftirminnilegt
Flestir eru á því að Martin Scorsese muni loksins hampa Óskarsverð-
laununum fyrir bestu leikstjórn þegar verðlaunin verða afhent í næsta
mánuði. Hann er nú tilnefndur fyrir glæpamyndina The Departed.
Scorsese er minn maður og ég held með honum en samt held ég að það
færi best á því að hann fengi verðlaunin ekki að þessu sinni. Fari svo
að Akademían sjái loks aumur á honum væri sterkast hjá honum að
afþakka heiðurinn. Best væri einfaldlega að hann sleppti því að mæta í
Kodak-höllina en með því að láta sjá sig er hann að kyssa vönd þeirra
sem hafa niðurlægt hann fimm sinnum.
Scorsese var ekki tilnefndur fyrir Taxi Driver en hlaut tilnefningar
fyrir Raging Bull, The Last Temptation of Christ, Goodfellas, Gangs of
New York og The Aviator. Allt stórfínar myndir ef frá er talin Gangs of
New York, sem verðskuldaði varla tilnefningu á sínum tíma.
The Departed er fantagóð mynd en samt telst hún ekki til bestu verka
leikstjórans og þó hann þrái verðlaunin heitt er eitthvað bogið við það
ef hann þarf að þiggja þau fyrir mynd sem stendur Goodfellas og
Raging Bull að baki. Þá verður ekki horft framhjá því að að þessu sinni
etur Scorsese kappi við Alejandro González Iñárritu og Babel. Mynd
Iñárritu er stórvirki og Scorsese hlýtur að taka við verðlaununum með
nokkru óbragði í munni fari leikar svo að Akademían ákveði loks að
stinga dúsu upp í hann. Babel er betri og sterkari mynd en The
Departed. Um það þarf vart að deila og eftir að hafa sjálfur þurft að
lúta í lægra haldi, með sín bestu verk, fyrir minni spámönnum getur
Scorsese vart hugnast að hafa verðlaunin af leikstjóra sem er líklegur
til þess að hafa álíka mikil áhrif á kvikmyndagerð á fyrri
hluta 21. aldar og hann hafði sjálfur á seinni hluta
þeirrar tuttugustu.
Fái Scorsese verðlaunin nú eftir allt sem á undan hefur
gengið, og í ljósi þess við hvern er að etja nú, er í raun
um álíka málamyndun að ræða og að þiggja heiðurs-
óskar á áttræðisaldri. Brenglað gildismat Akademí-
unnar liggur fyrir og er öllum ljóst sem vilja
sjá það þannig að það er miklu flottara að
vera í flokki með Hitchcock, Kubrick og
Orson Welles. Sagan er eini marktæki
dómarinn í þessum málum og það er því
ekki stórmennum sæmandi að míga utan í
Akademíuna.
Gefðu hyskinu því bara langt nef Marty
minn og segðu „nei, ómögulega takk“.
„Nei, ómögulega takk“
Barna- og fjölskyldummyndin
Charlotte‘s Web verður frumsýnd
í Sam-bíóunum annað kvöld. Mynd-
in byggir á samnefndri og víðles-
inni barnabók og fjallar um lítinn
grís, Wilbur að nafni, sem ung
stúlka bjargar frá slátrun og tekur
að sér að býlinu sínu. Í hlöðunni
kynnist Wilbur kóngulónni Char-
lotte sem tekur hann upp á sína
arma.
Dag einn komast Wilbur og
Charlotte að því að grísinn þykir
ekki á vetur setjandi og hefst þá
kapphlaup við tímann þar sem
Charlotte reynir með vef sínum að
stafa skilaboð til mannanna og
forða honum frá glötun.
Dakota Fanning leikur stúlkuna
sem bjargar grísnum í upphafi en
fjölmargir heimsþekktir leikarar
ljá dýrunum á býlinu rödd sína.
Fremst í flokki fara Julia Roberts,
sem talar fyrir Charlotte, Steve
Buscemi, Oprah Winfrey og Robert
Redford.
Grísinn og kóngulóin
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG BETRA GRAS...
WWW.GRAS.IS