Fréttablaðið - 25.01.2007, Qupperneq 90
Hlustendaverðlaun FM 957
voru afhent með pompi og
prakt í Borgarleikhúsinu í
fyrrakvöld. Hljómsveitin
Jeff Who? var sigurvegari
kvöldsins með þrenn verð-
laun.
Jeff Who? fékk verðlaun sem
hljómsveit ársins, nýliði ársins og
fyrir lag ársins, Barfly. Magni
Ásgeirsson fékk tvenn verðlaun;
annars vegar sem söngvari ársins
og hins vegar fyrir tónleika árs-
ins, Rockstar-tónleikana í Höll-
inni, sem hann hafði veg og vanda
af.
Stúlknasveitin Nylon fékk
tvenn verðlaun; fyrir myndband
ársins við lagið Closer, auk þess
sem Klara Ósk Elíasdóttir var
kjörin söngkona ársins. Loks var
plata Sálarinnar hans Jóns míns,
Undir þínum áhrifum, valin plata
ársins. Heiðursverðlaun FM 957
hlaut skemmtikrafturinn Laddi,
sem varð sextugur á dögunum.
Hugh Hefner, útgefandi Playboy,
segist ekki hafa áhuga á að birta
myndir af Kelly Osbourne í tíma-
ritinu. „Ég sé það ekki gerast í
framtíðinni. Við breytum mynd-
unum okkar ekki nógu mikið til
þess að það geti gerst,“ sagði
hann.
Ekki er langt síðan Kelly sagð-
ist hafa mikinn áhuga á að láta
taka nektarmyndir af sér fyrir
Playboy en svo virðist sem þær
vonir séu nú orðnar að engu.
Kelly ekki í
Playboy
Einn af upptökustjórum rappar-
ans 50 Cent, Dave Shayman, fannst
látinn á heimili sínu í New York.
Talið er að hinn 26 ára Shayman
hafi framið sjálfsvíg, enda átti
hann við þunglyndi að stríða.
Shayman, sem var einnig þekkt-
ur sem Disco D, tók m.a. upp lagið
Ski Mask Way á hinni vinsælu
plötu 50 Cent, The Massacre. Hann
hafði einnig unnið með Kevin
Federline að hans fyrstu plötu.
Upptöku-
stjóri látinn
Clive Owen, sem síðast lék í fram-
tíðarmyndinni Children of Men,
mun að öllum líkindum leika banda-
ríska rannsóknarlögreglumanninn
Philip Marlowe í nýrri mynd.
Margir leikarar hafa farið með
hlutverk skáldsagnapersónunnar
Marlowe, þar á meðal Humphrey
Bogart sem lék kappann í mynd-
inni The Big Sleep árið 1946.
Einnig má nefna þá Dick Powell,
Robert Mitchum og Elliott Gould.
Myndin með Clive Owen verður
byggð á einum af bókum Raym-
ond Chandler um Marlowe.
Owen leikur
Marlowe
„Það er ekkert komið á hreint,
ekki ennþá,“ segir Búi Bendtsen,
annar stjórnandi morgunþáttarins
sáluga Capone. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins eru hann og
Andri Freyr Viðarsson að skoða
þann möguleika að stofna nýja
útvarpsstöð. „Þetta er mikið mál,“
bætir Búi við og vill sem minnst
segja. „Þetta er á frumstigi“,
útskýrir hann.
Þeim félögum var sem kunn-
nugt er sagt upp á gamlársdag
þegar útsendingum XFM og Kiss
FM var hætt. Búi segir að þessi
ráðstöfun hafi komið flatt upp á þá
og að aðdáendur þáttarins hafi
látið vel í sér heyra. „Þeir vilja fá
okkur sem fyrst í loftið,“ bætir
Búi við og segir þá róa að því
öllum árum að ráða bót á þessum
skorti. „Þetta eru enn bara þreif-
ingar enda mikið mál að koma á
fót heilli útvarpsstöð,“ segir Búi.
Hann fer þó ekki í felur með að
þeir séu að athuga hvort þetta sé
raunhæfur möguleiki og útilokar
ekki að ef útvarpið gangi ekki upp
komi sjónvarp til greina.
Andri Freyr sagðist vera
spenntur fyrir þessum hugmynd-
um en vildi lítið tjá sig. „Já, hvað,
það er ekki eins og maður hafi
ekki gert þetta áður,“ segir hann
kokhraustur. Bloggarinn Ómar
Valdimarsson lét í veðri vaka á
heimasíðu sinni að félagarnir
væru komnir í samband við fjár-
sterka aðila en Búi vísaði því alfar-
ið á bug.
Capone í útvarpsrekstur