Fréttablaðið - 25.01.2007, Side 93
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í USA
TOPP5.IS
PANAMA.IS
FRÁBÆRLEGA FYNDIN OG
SNIÐUG GAMANMYND...
Þ.J. -FBL
Mynd eftir Óskarsverðlaunahafann Clint Eastwood.
FRÁ LEIKSTJÓRA BATMAN BEGINS OG MEMENTO
MÖGNUÐ OG TÖFRANDI SPENNA SEM HELDUR ÞÉR Í HELJARGREIPUM
HUGHJACKMAN CHRISTIANBALE SCARLETTJOHANSSON MICHAELCAINE
/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI
THE CHILDREN OF MEN kl. 8:30 - 10:30 B.i.16
THE CHILDREN... VIP kl. 5:30
FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal. kl. 3:20 - 5:40 Leyfð
HAPPY FEET M/-Ensk tal kl. 3:20 Leyfð
SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal. kl. 3:20 Leyfð
BABEL kl. 5:30 - 8 - 10:50 B.i.16
BABEL VIP kl. 8 - 10:50 Leyfð
FORELDRAR kl. 4 - 6 - 8 - 10 Leyfð
THE PRESTIGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12
STRANGER THAN FICTION kl. 5:40 - 8 - 10:30 Leyfð
FORELDRAR kl. 6 - 8:30 - 10:30 Leyfð
THE PRESTIGE kl. 6 - 8:15 - 10:40 B.i.12
STRANGER THAN FICTION kl. 10:30 Leyfð
FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal. kl. 5:50 Leyfð
HAPPY FEET M/-Ensk tal kl. 8:10 Leyfð
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 8 - 10:15 Leyfð
KÖLD SLÓÐ kl. 8 B.i. 12
THE PRESTIGE kl. 10:15 B.i. 12
BABEL kl 8 B.i.16
THE PRESTIGE kl 8 B.i.12
Háskólabíó
FORELDRAR kl. 6 - 8 - 10 Leyfð
BABEL kl. 6 - 9 - 10:30 B.i.16
THE PRESTIGE kl. 8 B.i.12
THE HOLIDAY kl. 5:30 B.i. 7
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 B.i. 16
DÉJÁ VU kl. 8 B.i. 12
THE DEPARTED kl. 10:30 B.i. 16
EF ÞÚ VILT FÁ SKILNING .... ÞARFTU AÐ HLUSTA
FRÉTTABLAÐIÐ H.J. MBL
AÐALLEIKARARNIR FARA Á KOSTUM
FRÁ ÞEIM SÖMU OG GERÐU VERÐLAUNAMYNDINA BÖRN
Skráðu þig á SAMbio.is
Verðlaunamyndirnar eru í SAMbíóunum
GOLDE GLOBE
BESTA MYND ÁRSINS
7ÓSKARSVERÐLAUNATILNEFNINGAR TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA3TILNEFNINGAR TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA5TILNEFNINGAR TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA2TILNEFNINGAR TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA2TILNEFNINGAR TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA1TILNEFNING TIL
FBL
Nýjasta plata Benna Hemm
Hemm, Kajak, er nú fáanleg í
vínylútgáfu. Með útgáfunni fylgir
sjö tommu plata þar sem sænski
tónlistarmaðurinn Jens Lekman
tekur lagið með Benna Hemm
Hemm.
Lekman, sem hefur gefið út
tvær plötur, hefur notið töluverðra
vinsælda undanfarið. Spilaði hann
m.a. á síðustu Iceland Airwaves-
tónlistarhátíð. Með vínylútgáfunni
fylgir með plakat sem var sér-
hannað fyrir útgáfuna.
Kajak hefur verið tilnefnd til
Íslensku tónlistarverðlaunanna í
flokki popptónlistar. Verðlaunin
verða afhent hinn 31. janúar næst-
komandi.
Vínylútgáfa
af Kajak
Tónlistarkonan Björk Guðmunds-
dóttir mun koma fram á Glaston-
bury-hátíðinni í Bretlandi í sumar.
Stígur hún á svið föstudagskvöld-
ið 22. júní.
Þessi mikilsvirta hátíð er önnur
hátíðin sem Björk hefur boðað
komu sína á því stutt er síðan hún
samþykkti að koma fram á
Coachella-hátíðinni í Bandaríkjun-
um. Björk er að leggja lokahönd á
nýja plötu þar sem hún vinnur með
þekktum nöfnum á borð við Timba-
land og Antony úr hljómsveitinni
Antony and the Johnsons.
Syngur á
Glastonbury
Tónlistargagnrýnandinn
Árni Matthíasson er að
verða fimmtugur. Af því
tilefni blæs hann til mikill-
ar veislu á þriðjudag þegar
hann býður vinum og sam-
starfsmönnum upp á eyrna-
konfekt að hætti hússins.
„Þetta er nú ekki frægasta liðið
en þetta er fólk sem mig langaði
til að sjá,“ segir tónlistargagn-
rýnandinn Árni Matthíasson, sem
hyggst bjóða upp á tónlistarhlað-
borð á Nasa hinn 30. janúar. Til-
efnið er ærið. Árni
er fimmtugur
og tuttugu ár
liðin síðan
hann hóf að
skrifa um
tónlist
fyrir Morg-
unblaðið.
Þær hljómsveitir sem heiðra
Árna með nærveru sinni eru
meðal annars Ghostigital, Benni
Hemm Hemm, Mínus og rokk-
risaeðlurnar í Ham. „Þetta verð-
ur reyndar hálfgerður tónlistar-
gjörningur enda hef ég parað
hljómsveitirnar tvær og tvær
saman til að heyra eitthvað nýtt,“
útskýrir hann.
Árna telst til að yfir sjö þús-
und greinar um tónlist liggi eftir
hann. Og er þá aðeins dregið úr.
„Fyrsta viðtalið sem ég tók var
við Sykurmolana Einar Örn og
Þór Eldon á lítilli knæpu í mið-
borg Reykjavíkur. Mjög eftir-
minnilegt því hljómsveitin hafði
nýverið gefið út smáskífuna
Ammæli,“ segir Árni.
Þar að auki hefur tónlistar-
gagnrýnandinn verið formaður
dómnefndar á Músíktilraunum
svo lengi sem elstu menn muna.
„Mér finnst bara ekkert skemmti-
legra en að heyra eitthvað nýtt.
Þetta verður einhver árátta. Að
finna nýjar hljómsveitir er ein-
hver sérstök upplifun.“
Tónlistargjörningur í fimmtugsafmælinu
Ef Norah Jones væri ekki sjálf að
gefa út plötu þessa dagana myndi
ég hiklaust mæla með þessari
dömu hér með erfiða nafnið,
Madeleine Peyroux, til þess að
fylla upp í skarðið.
Erfitt að segja hvort þetta sé
létt popp undir djassáhrifum, eða
djass undir léttum poppáhrifum.
Tilfinningin er a.m.k. sérstaklega
afslöppuð og útsetningar ber-
strípaðar. Einhver reyndi að
ljúga því að mér að Madeleine
syngi eins og Billie Holiday, en
það er fjarri lagi.
Hún er miklu keimlíkari
nútíma djasssöngkonum, sem
syngja letilega og lýtalaust. Eins
og ég get ímyndað mér að freðin
Idol-stjarna myndi hljóma í
kvöldmessu á sunnudagskvöldi.
Eitthvað sem aldrei væri hægt að
segja um Lady Day, en það var
akkúrat meingölluð rödd hennar
sem færði henni sjarmann ódauð-
lega.
Madeleine syngur svo sannar-
lega fallega, sérstaklega í jóla-
lega laginu River (sem fær að
„láni” stef úr Jingle Bells), þar
sem hún fær skosku vinkonu sína
K.T. Tunstall til halds og trausts.
Ég myndi þó aldrei segja að hún
sé með auðþekkta, hvað þá eftir-
minnilega rödd. Það er svolítill
kántríkeimur í túlkun hennar,
sem fer vel við þetta gítardrifna
djasspopp.
Flest lögin á plötunni eru töku-
lög, og Madeleine vandar valið.
Hún fer ágætlega með Tom
Waits-lagið Looking for the Heart
of Saturday Night sem og Serge
Gainsbourg-lagið La Javanaise.
Útgáfu hennar af Charlie Chapl-
in-laginu Smile fannst mér þó
ekkert varið í. Kannski þess
vegna sem það er síðast. Hennar
eigin lagasmíðar falla svo vel inn
í heildina.
Þetta er afskaplega ljúf plata
sem ég get ekki ímyndað mér að
geti mögulega farið í taugarnar á
nokkurri lifandi manneskju,
nema kannski hörðustu Waits-
aðdáendum sem vilja helst ekki
heyra neinn annan flytja hans
lög.
Djassað popp eða poppaður djass
Jonny Quinn, trommari Snow
Patrol, missir af væntanlegri tón-
leikaferð sveitarinnar um Evrópu
og Ástralíu vegna handleggs-
brots.
Quinn brotnaði þegar hann var
að leika sér á snjóbretti í Ölpun-
um. Hefur hann fengið vin sinn
Graham Hopkins, sem hefur spil-
að með Therapy og Cranberries,
til að hlaupa í skarðið. Tónleika-
ferðin hefst 4. mars og er farin til
að fylgja eftir hinni vinsælu plötu
Eyes Open.
Brotnaði á
snjóbretti